Vikan - 14.01.1988, Blaðsíða 7
Þorsteinn: „Hver er þessi spákerling, Jón? Við verðum að láta
rannsaka þetta. Hún virðist hafa aðgang að trúnaðarmálum! Hún
er ekki í Hvöt, ég lét kanna það.“
Jón Baldvin: „Spumingin er þessi: 1) Hvaðan kemur hún? 2)
Hvert er hún að fara?“
Svar: „Hef ekki hugmynd!“ ' LJÓSM.: Páll KJARTANSSON
Steingrímur Hermannsson:
. . .hef litla trú á að um-
ræður um Evrópubanda-
lagið verði aðalmálið. . .
Jón Baldvin Hannibalsson:
Tek undir spá völvunnar
um gjaldmiðilsbreytingu!
„Ég hef aldrei haft mikla trú
á spádómum. Ég treysti frek-
ar á mátt minn og megin og
trúi frekar á manninn og það
sem hann gerir heldur en á
spámenn og völvur. En
kannski er fleira í kýrhom-
inu en ég veit,“ sagði Stein-
grímur Hermannsson utan-
ríkisráðherra þegar hann var
spurður álits á spá völvunn-
ar. Um samskipti íslendinga
við Evrópubandalagið og spá
völvunnar þar að lútandi,
svaraði hann:
„Ég hef mjög litla trú á því að
umræður um Evrópubandalagið
verði aðalmálið á þessu ári því
að Evrópubandalagið er í mótun
og það mun taka að minnsta
kosti fjögur til flmm ár að koma
málum á hreint þar. Ég er sam-
mála því að málið þarf að ræða
hér heima en það er hvergi
nærri nauðsynlegt að taka af-
stöðu á þessu ári. Þessvegna
held ég að þetta verði ekki það
hitamál sem völvan gefur til
kynna.
Hvað uppskipti í Framsóknar-
flokknum snertir er ég mjög
spenntur fyrir að sjá hvað það
verður. Ég veit ekki um neina þá
stöðu sem einhver sækist eftir
eins og geflð er í skyn.
Ég hef enga trú á uppreisn í
Austur Þýskalandi, hún yrði þá
frekar í einhverju öðru Austur-
Evrópu landi. Slík uppreisn
myndi alla vega koma mér mjög
á óvart og þá yrði ég líklega að
taka til baka það sem ég sagði
hér í upphafi.
Hinsvegar hefur völvan fylli-
lega rétt fyrir sér þegar hún seg-
ir að ég muni beita mér fyrir
auknum kynningum á íslensk-
um útflutningsvörum. Við-
skiptadeildin er að mótast, en
hún mun taka til fúllra starfa um
áramótin og þá er ætlunin að
hún verði mjög virk í því að
veita alla þá þjónustu sem hún
getur. Þarna verður að hafa í
huga bæði útflutningsviðskipta-
deildina og útflutningsráð sem
koma til með að starfa mjög
saman.“
,Já, þetta getur vel staðist.
Hver er þessi völva eigin-
lega?“ „Vissulega rök fyrir
því að veruleg uppstokkun
verði á krónunni þegar á
þessu ári,“ segir Jón Baldvin
Hannibalsson.
Svör Jóns Baldvins Hannibals-
sonar við nýársspádómum
völvu Vikunnar boða mikil tíð-
indi fyrir íslenskt efnahagslíf.
Völvan spáði orðrétt: „Formað-
ur Alþýðuflokksins mun heim-
sækja erlenda stofnun tengda
stjórnun peningamála og koma
þaðan með mikilvægar fréttir,
sem leiða til uppstokkunar á
gjaldmiðli okkar..
Við gefum fjármálaráðherra
orðið:
„Mér er bara spurn: Hver er
þessi völva eiginlega? Það hníga
vissulega öll rök til þess að
veruleg uppstokkun verði á
krónunni og þá mun mikilvæg-
ari breyting en pennastriksað-
gerðin 1981 þegar núllin tvö
voru strokuð út. Ástæðan fyrir
þessum hugmyndum er sú að
utanríkisviðskiptamynstur okk-
ar hefúr verið að breytast með
róttækum hætti. Viðskipti okkar
fara sívaxandi fram í öðrum
gjaldmiðlum en dollaranum og
allt bendir til að þróunin haldi
áfram í þá átt. Prósenta dollar-
ans í viðskiptum okkar hefur
minnkað úr 60% niður í tæp
40%. Menn hafa að undanförnu
íhugað í alvöru að tengja ís-
lenskan gjaldmiðil við ECU,
Evrópumyntina. Það gæti orðið
tímabært strax á þessu ári.
Annars er mér nær að halda að
völvan hafi villst á nöfnum í
kirstalskúlunni sinni þar sem
þessi mál heyra frekar undir við-
skiptaráðherrann, Jón Sigurðs-
son, og hann ætti að ganga frá
þessum samningum. Ég er hins
vegar ákaflega heimakær og
leggst lítt í ferðalög. Þessar
breytingar gætu sem sé orðið ef
við þurfum að leiðrétta gengi
krónunnar.
Evrópubandalagið
í sambandi við aðild að
Evrópubandalaginu vil ég taka
það fram að við munum ekki
I segja okkur til sveitar í skrifræð-
inu í Brússel. Hins vegar er okk-
ur lífsnauðsyn að ná við þá
samningum. Að sjálfsögðu
munu verða miklar umræður
um þetta mál og við skulum
vona að völvan biðji guðræki-
lega fyrir Steingrími á ferðalög-
um hans í því sambandi.
Fjárfesting og
peningamarkaður
Völvan segir að ég muni valda
fjárfestingarfélögum vanda á
þessu ári og það er kannski ekki
út í hött. Það þarf að gera rót-
tækar breytingar á peninga-
markaðnum mjög í líkingu við
það sem kom fram í afar skil-
merkilegu erindi Tryggva Páls-
sonar á spástefnu Stjórnunar-
félagsins í nóvember og þar eru
reyndar höfð uppi svipuð orð
og eru viðhöfð í stjórnarsáttmál-
anum. Núna er markaðurinn
margskiptur, bankar og spari-
sjóðir sem lúta lögum og tak-
markanareglum, því næst eru
opinberir og hálfopinberir fjár-
festingarlánasjóðir sem njóta
annarra starfsskilyrða og eru til
dæmis ekki skattlagðir og eru
óháðir bindiskyldu. í þriðja lagi
eru svo verðbréfa- og ávöxtun-
arfyrirtækin sem leika lausum
hala utan við lög og rétt. Þennan
peningamarkað þarf að endur-
skipuleggja í heild sinni. í fyrsta
lagi stefnum við að því að fækka
bönkum, að breyta þeim úr hálf-
pólitískum ríkisbáknum í við-
skiptastofnanir. í annan stað
höfum við þegar byrjað að af-
nema ríkisábyrgðarheimildir
fjárfestingarlánasjóða og stefn-
um að því að endurskipuleggja
þá og koma þjónustu þeirra fyr-
ir í viðskiptabönkum. í þriðja
lagi verðum við að endurskoða
alla löggjöf í sambandi við verð-
bréfamarkaðinn til að tryggja
hag viðskiptaaðila og öryggi
þeirra. Loks stendur fyrir dyrum
að fylla upp í stærstu eyðuna í
íslenskri skattalöggjöf sem er
skattaleg meðferð á fjármagns-
kostnaði. Allt þetta mun valda
gerbreytingu á þessum fjár-
magnsmarkaði og er liður í sam-
ræmdum aðgerðum til þess að
hafa hóf á vaxtaþenslu," sagði
fjármálaráðherra að lokum.
VIKAN 7