Vikan - 21.01.1988, Síða 29
Taugasterkur
alhfiia
skákmaður
„Hann er fyrst og fremst mjög
yfirvegaður skákmaður og
með afbrigðum taugasterk-
ur. Það er £átt sem kemur
honum úr jafiivægi. Hann
hefúr mjög heilbrigðan
skákstíl, það er hann leggur
aldrei út í tvísýnu á kostnað
stöðunnar í skákum sín-
um ...
Þannig lýsir einn af stórmeist-
urum okkar Jóhanni Hjartarsyni
sem skákmanni, en í tilefhi af
einvígi Jóhanns og Kortsnojs,
sem hefst 24. janúar í Kanada,
ákváðum við að kryfja aðeins
skákmanninn og persónuna Jó-
hann Hjartarson. I því sambandi
ræddum við við fjölda manns
sem kynnst hafa honum bæði í
lífl og leik.
Jóhann er fæddur 8. febrúar
1963, einbirni, sonur hjónanna
Hjartar Magnússonar og Sigur-
laugar Jóhannsdóttur. Hann fékk
snemma áhuga á skák og eins og
hjá svo mörgum öðrum skák-
mönnum af sömu kynslóð vakn-
aði áhuginn er heimsmeistara-
einvígi þeirra Fischers og Spas-
skýs var haldið hér í Laugardals-
höllinni 1970. Frá þeim tíma fór
hann að stunda taflmennsku hjá
Taflfélagi Reykjavíkur á Grens-
ásveginum og segja má að hann
hafi vart átt sér annað áhugamál
síðan.
Einn æskuvinur Jóhanns segir
að hann hafi ávallt verið vel
þokkaður í skóla. Hann tranaði
sér aldrei lfam þar en var held-
ur ekki feiminn, „... að öðru
leyti minnist ég þess að hann
stundaði aldrei fótbolta eða
íþróttir með okkur hinum, hafði
óbeit á þeim og taldi þær tíma-
sóun ef undan er skilið að stund-
um brá hann sér á skíði."
Á barns- og unglingsárum sín-
um var Jóhann við nám í Álfta-
mýrarskóla og er hann kom í
grunnskólann þar tefldi hann á
fyrsta borði fyrir skáksveit
skólans. Hún var mjög sterk á
þessum árum, vann til dæmis
alltaf Norðurlandamót grunn-
skóla.
Frá Álftamýrarskóla lá leiðin í
Menntaskólann við Hamrahlíð
og þar tefldi hann einnig á fyrsta
borði fyrir skáksveitina sem
einnig vann stöðugt Norður-
landameistaratitilinn á sínu
sviði þau ár sem hann var þar að
einu undanskildu, en þá gat Jó-
hann ekki verið með.
Þeim sem þekktu Jóhann á
menntaskólaárunum ber saman
um að hann hafi verið ósköp
venjulegur ungur maður, mjög
góður námsmaður með fáa eða
enga kæki eða lesti. Helst er það
tínt til að hann og Jón L. Árnason
höfðu gaman af því að herma eft-
ir öðrum skákmönnum, sérstak-
lega ef viðkomandi skákmenn
voru „týpur“ eða á einhvern hátt
frábrugðnir venjulegu fólki.
.Jóhann varð strax mjög efni-
legur skákmaður á sínum yngri
árum en segja má að hann hafi
fyrst slegið í gegn í ársbyrjun
1984. í janúar það ár vann hann
óvænt hið sterka Búnaðarbanka-
skákmót og í febrúar sama ár
varð hann efstur ásamt þeim
Helga Ólafcsyni og Reshevsky á
Reykjavíkurskákmótinu. Þarna
kom hann mönnum á óvart og
tók stórt og skyndilegt stökk
framávið...“
Með sigri sínum á Búnaðar-
bankamótinu hlaut Jóhann
áfanga að stórmeistaratitli og
varð hann þar með sá fyrsti af
kynslóð yngri skákmanna til að
ná þeim áfanga. Árið eftir, eða
1985, varð hann svo stórmeist-
ari en það ár vann hann að því
að tryggia sig í sessi sem skák-
maður. Árið 1986 tók hann svo
aftur gífurlegum framförum, þá
um sumarið vann hann til dæm-
is Opna breska samveldismótið
með töluverðum yfirburðum,
hlaut 8 vinninga af 9 möguleg-
um. Árangur Jóhanns á síðasta
ári ætti svo að vera öllum kunn-
ur en segja má að með þátttöku
sinni í áskorendaeinvígjunum sé
hann kominn í hóp 16 sterkustu
skákmanna heims.
Alhliða skákmaður
Einn viðmælenda okkar sem
fylgst hefúr með skáklífi íslend-
inga um langan aldur hafði þetta
að segja um Jóhann:
„Hann er alhliða skákmaður
bæði í sókn og vörn en samt má
segja að hann sé meiri sóknar-
skákmaður en varnar. Hann teflir
þannig að hann leggur mikið
upp úr því að ná frumkvæðinu
strax, og halda því...“
Þegar talið berst að veikleik-
um Jóhanns sem skákmanns
virðast þeir ekki vera miklir á
yfirborðinu. Einn viðmælenda
okkar lét þess þó getið að ákveð-
in brotalöm væri til staðar í
skákstíl Jóhanns eins og glögg-
lega hefði komið frarn á hinu
sterka móti í Júgóslavíu fyrir síð-
ustu áramót, „ ... þar springur
hann í restina er hann fér mót-
byr eftir góða byrjun. Hann fer í
„pattstöðu" og hún nagar hann
það sem eftir er mótsins. Helgi
Ólafcson er til dæmis ffægur fyrir
þennan veikleika. Þetta á til að
koma fyrir Jóhann en það þarf
náttúrlega ákveðna reynslu til að
halda jafnvæginu gegn sterkum
skákmönnum...“
Mikill innri styrkur
Þegar talið berst að persónu-
leikanum Jóhanni Hjartarsyni er
fátt sem sker hann úr hinu al-
menna móti, a.m.k. hvað ytri hlið
hans snertir. Allir sem við rædd-
um við sögðu hann þægilegan í
umgengni og blátt áffarn.
„ .. .Jóhann er mjög stabíll og
ágætispiltur, alveg til fyrirmynd-
ar. Hann er þar að auki alveg
hrekklaus ef svo má að orði
komast...“
Eins og við gátum um í upp-
hafl ber öllum saman um að Jó-
hann búi yfir miklum taugastyrk
við skákborðið, eða miklum
innri styrk sem erfitt er að koma
auga á án þess að sitja á móti
honum við skákborðið og þessi
styrkur, sem hefúr fleytt honum
yfir margan erfiðan hjallann á
skákferli hans, gæti raunar orðið
leynivopn Jóhanns í baráttunni
gegn Kortsnoj, því atriði sem
þetta geta hæglega valdið úrslit-
um þegar einvígið er svona stutt,
aðeins sex skákir.
Einn viðmælenda okkar sem
þekkir Jóhann vel sagði að auk
þess að vera þægilegur í viðmóti
tæki hann lífinu yfirleitt létt,
þannig hefði ekkert borið á
stressi hjá honum þessar síðustu
vikur er á undirbúningi fyrir ein-
vígið stóð eins og búast hefði
mátt við. Hann bætti því síðan
við að svipað og hjá öllum okkar
bestu skákmönnum væri húm-
orinn hjá Jóhanni í lagi, svona á
góðum stundum. - FRI
VIKAN 29