Vikan - 21.01.1988, Síða 30
Jóhann Hjartarson á nú fyrír höndum erfiða baráttu við gamla
jaxlinn Kortsnoj en eins og kemur fram í viðtalinu hér til hliðar
telur hann litlar líkur á sigri sínum í þessum sex skákum ein-
vigisins.
Glíma
Jóhanns
°9
Korisnojs
Sunnudaginn 24. þessa mán-
aðar hefjast áskorendaein-
vígin í Saint John í Kanada.
Hugur íslenskra skákunn-
enda verður eflaust þar á
'sveimi til að styðja Jóhann
Hjartarson í glímunni við
áskorandann margreynda,
Viktor Kortsnoj.
Einvígi Jóhanns og Kortsnoj
verður eitt sjö einvígja, sem
frarn fara á sama tíma og á sama
stað í Kanada. Þetta eru sex
skáka einvígi, nokkurs konar
bráðabanar miðað við það sem
áður hefur tíðkast. Sovét-
mennirnir Jusupov og Ehlvest
eigast við; Englendingurinn
Short teflir við Ungverjann Sax;
Timman, Hollandi, við Salov,
Sovétríkjunum; Seirawan,
Bandaríkjunum, við Speelman,
Englandi; Ungverjinn Portisch
við Sovétmanninn Vaganjan og
loks teflir Sokolov, Sovétríkjun-
um, við heimamanninn Spragg-
ett. Sigurvegararnir sjö halda
áfram keppni ásamt áttunda
manni, Anatoly Karpov. Þessir
tefla síðan einvígi og svo koll af
kolli þar til einn stendur eftir til
að skora á heimsmeistarann
Garrí Kasparov.
Jóhann hélt utan 16. janúar til
„fel IMar
líkur á sigri"
- segir Jóhann Hjartarson
Jóhann Hjartarson nýtui að-
stoðar stórmeistaranna Frið-
riks Ólafssonar og Margeirs
Péturssonar í einvíginu við
Kortsnoj og var Margeir með
Jóhanni í að undirbúa hann
undir einvígið nú síðustu
vikumar. Við ræddum stutt-
lega við Jóhann og spurðum
hann fyrst hvemig undir-
búningnum hefði verið
háttað.
„Þetta var mjög hefðbundið.
Við kynntum okkur andstæðing-
inn, byrjanir hans og skákir. Eg
get ekki sagt að við höfum fúnd-
ið neina nýja veikleika hjá hon-
um en þetta er baráttujaxl eins
og flestir þekkja."
Hvernig líst þér á viðureign
ykkar?
„Bara þokkalega. Maður fer í
þetta einvígi með jákvæðu hug-
arfari.“
Hverjar telur þú líkur á sigri
þínum?
„Ég hef oft svarað þessu áður.
Ég tel litlar líkur á því að mér
takist að sigra hann.“
En nú hefúr þú unnið aðra og
gert jafntefli í hinni af þeim
tveimur skákum sem þið hafið
teflt...
„Það segir lítið að mínu áliti.“
Nú höfúm við heyrt að sex
skákir séu of lítið til að skera úr
um hvor sé betri. Hvaða skoðun
hefúr þú á því?
„Það er rétt, þetta er stutt,
óvenjulega stutt af svona einvígi
að vera en heimsmeistara-
keppnin öll var orðin svo þung í
vöfum að einhvers staðar varð
að skera niður.“
Hér sitja þeir Kortsnoj og Jóhann að tafli í Belgrad en þeirri
viðureign lyktaði með stórmeistarajafntefli. Jóhann vann hins-
vegar það afrek á IBM mótinu að leggja Kortsnoj að velli en hér
til hliðar má sjá lokaleikinn í þeirri viðureign.
að venjast aðstæðum og loftslagi
í tæka tíð fyrir slaginn. Stór-
meistararnir Friðrik Olafsson og
Margeir Pétursson voru í för
með honum. Margeir hefur ver-
ið aðalaðstoðarmaður Jóhanns
við undirbúninginn og Friðrik
verður formaður íslensku sendi-
nefndarinnar. Verði Campo-
manes með eitthvað rnúður
kemur til kasta Friðriks, sem
ætti að vera reglum og venjum
30 VIKAN