Vikan - 21.01.1988, Síða 38
Samkvæmt „áreiðanlegum"
fréttum National Examiner birt-
ist draugur Sharon Tate nú á
hverri nóttu í klefa fjöldamorð-
ingjans Charles Manson í San
Quentin fangelsinu.
„Þetta er hið fúrðulegasta
sem ég hef séð,“ segir einn
fangavarðanna. „Ég heyri Man-
son öskra og gráta á hverri
nóttu."
Þessi vörður og aðrir stað-
hæfa að þeir hafi margoft séð
draug Tate á sveimi í klefa
Mansons, hann kemur fram í
sterku ljósi en greina má útlínur
ljóshærðrar konu í því. „Hún
hvíslar að Charlie. Draugurinn
virðist næstum því vera að
skamma hann fyrir það sem
hann gerði. Manson svarar
draugnum ekki en þegar líður
að lokum heimsóknarinnar bið-
ur hann drauginn um að fyrir-
gefa sér.“
Charles Manson á ekki sjö dagana sæla í fangelsi þar sem draugur
Sharon Tate heimsækir hann á hverri nóttu.
Samkvæmt frásögn fangavarð-
anna eru nokkrir mánuðir síðan
tók að bera á draugnum í klefan-
um og nokkrum sinnum hefur
hann birst með barn í fanginu
en Sharon Tate var sem kunnugt
er vanfær þegar Manson og
gengi hans myrtu hana ásamt
öðru fólki árið 1969.
Draugur Sharon Tate
angrar Manson
Tannpínan sem drap 25000 manns
Sársaukafull tannpína varð
um 25000 manns að bana í
myrkviðum Afríku á síðustu öld.
Tannpínan sem hér um ræðir
hrjáði drottningu Uganda,
Namasold, sem því miður komst
ekki undir hendur tannlækna
þar sem þeir voru ekki til staðar
þarna á þessum tíma.
Töfralæknar drottningarinnar
sem stunduðu hana gátu ekki
læknað tannpínuna og því ætl-
aði drottningin að láta drepa þá.
Þeim tókst hinsvegar að sann-
færa hana um að sársaukinn væri
vegna synda þegna hennar og
lét hún þá umsvifalaust drepa
25.000 þeirra. Þegar það dugði
ekki til voru allir töffalæknarnir
hálshöggnir og höfúð þeirra sett
á stjaka.
Blóðsugur í Hvíta húsinu
ATT EÐA. ■ ./
Dr. Stephen Kaplan sem
ku vera fremsti blóðsugu-
fraeðingur (vampirology) í
heiminum segir að hundruð
blóðsuga vinni fyrir ríkis-
stjóm Bandaríkjanna, allt frá
lágtsettum embættismönn-
um upp í starfsmenn Hvíta
hússins.
„Almenningur á rétt á að vita
ef það eru vampýrur í Hvíta hús-
inu. Það varðar við þjóðar-
öryggi," segir doktorinn.
Dr. Kaplan er forstjóri Vam-
pire Research Center í New
York og hefur hann varið síð-
ustu 16 árum ævi sinnar í að
rannsaka þessi mál. Hann segir
að stofnun sín sé tilbúin, verði
þess óskað, að athuga hvort
forsetaframbjóðendur séu blóð-
sugur. Samkvæmt honum er
ekki hægt að lækna þennan ó-
fögnuð en hinsvegar er hægt að
hafa stjórn á ástríðu þeirra.
f viðtali við Washington Post
sagði Kaplan: „Þær ganga ekki
um með stórt V á brjóstinu. Þær
eru aðeins öðruvísi en fólk er
flest en erfitt er að þekkja þær.“
VERÐ>
LAUNA- I
HAFAR ’
Eftirtaldir hlutu verðlaun
fyrir krossgátulausnir nr.
47: 1. verðlaun, 1000 krón-
ur, hlaut Þóra Ólafsdóttir,
Hlíðarvegi 2, 660 Reykjahlíð;
2. verðlaun, 750 krónur,
hlaut Rannveig G. Ágústs-
dóttir, Kleppsvegi 48, 105
Reykjavík og 3. verðlaun,
500 krónur, hlaut Dóra
Tryggvdóttir, Hamrahlíð 30,
690 Vopnafirði.
Lausnarorð:
LAUGARVATN
Þrátt fyrir galla á krossgát-
unni að þessu sinni bárust
fjölmargar lausnir. Eru þátt-
takendur beðnir velvirðing-
ar á mistökunum sem urðu.
38 VIKAN
UTANÁSKRIFT: VIKAN, krossgáta, Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavík