Vikan - 21.01.1988, Side 43
Rafmagn
víð sársauka,
vöðvabólgu,
mígreni
og mörgu f leiru
NÝJUNG /
„Stórir strákar fá raflost“
söng Bubbi einu sinni há-
stöfum og þjóðin söng með.
Nú er komið á markaðinn
hér á landi lítið taeki sem
gefúr mönnum reyndar ekki
raflost, en stuð þó. Þetta er
smágert taeki sem hjálpar
fólki að losna við sársauka
og spennu í líkamanum -
með aðstoð rafmagns.
Tækið heitir „Statiquick" og
þegar því er strokið yfir sárs-
aukasvæði á líkamanum þá verð-
ur svæðið fyrir þrýstiáhrifum frá
16 rafskautum sem eru í haus
tækisins, sem hvetja líkamas-
starfsemina til að vinna gegn
sársaukanum. Tækið getur dreg-
ið úr sársauka og herpingu
vöðva sem orsakast af gigt,
bólgum, hálsríg, vöðvakrampa,
tognun, höfuðverk svo eitthvað
sé nefht og einnig á það að geta
bætt einhverja þessara kvilla.
Erlendis er tækið notað á mörg-
um heilbrigðisstofhunum með
góðum árangri.
Hvernig virkar
þetta undratæki?
Þegar því er strokið létt og
samfellt ffam og til baka yfir
sársaukasvæðið þá ertir það
taugaendana í húðinni. Við það
framkallast ósjálffáð viðbrögð í
líkamanum sem yfirgnæfa strax
sársaukann og spennuna og
hvetja um leið líkamsstarfsem-
ina til að vinna sjálfa gegn sárs-
aukanum, sem gerist u.þ.b. 5
mínútum eftir notkun tækisins.
Best er að nota tækið strax og
sársauka eða spennu verður
Tækið gagnast vel þeim sem hættir til að vera spenntir í öxlum, sem oft leiðir til vöðvabólgu, t.d.
þeim sem vinna við vélritun og á tölvur, eða prjónaskap. Einnig á þreyta í fótum að hverfa með
notkun tækisins.
vart, þá er hægt að losna við
hvoru tveggja á örfáum mínút-
um, en tækið virkar einnig vel á
langvarandi verki en þá þarf
jafhvel að meðhöndla sársauka-
svæðið nokkrum sinnum. Tækið
á að geta linað sársauka hvar
sem hann kemur ffam á líkam-
anum: t.d. þreytu í fótleggjum
og baki eftir langa stöðu, sina-
drátt og stífhi vegna ofreynslu
vöðva, eða vöðvaslysa eins og
tognun eða misstig. Einnig get-
ur það dregið úr ýmsum kvill-
um af völdum húðsjúkdóma, s.s.
kláða. Tækið getur jafnvel kom-
ið í veg fýrir að menn þurfi að
taka lyf, t.d. bólgu- og verkjalyf.
í bæklingi sem tækinu fylgir
er sagt ffá nokkrum sjúkdóms-
tilfellum þar sem læknir í Frakk-
landi notaði tækið á sjúklinga
sína með góðum og varanlegum
árangri. Rúmlega sjötug kona
þjáðist af verkjum í báðum
hnjám vegna liðabólgu. Hún fór
í meðferð tvisvar á dag, 30 sek-
úndur í senn, og tók meðferðin
15 daga. Við meðferðina hurfu
verkirnir í hnjánum þegar í stað
og árangurinn vasöi í 8-10 klst.
og eftir 12 daga var allur sárs-
auki horfinn.
Karlmaður þjáðist af liðagigt
aftan á hálsi, sem orsakaði
snarpan sársauka og herping á
svæðinu. Hann hlaut 10 daga
meðferð og við það hvarf allur
sársauki. Mörg fleiri dæmi eru
tekin sem sanna eiga ágæti
tækisins. Greinargóðar leiðbein-
ingar fylgja tækinu sem segja til
um notkun og meðferð. Notkun
tækisins á að vera algjörlega
hættulaus en fólki er samt sem
áður ráðlagt að nota það ekki til
langvarandi meðferðar án sam-
ráðs við lækni. „Statiquick" er
flutt inn af innflutningsverslun-
inni Kristínu á Seltjarnamesi,
sími 91-611659.
VIKAN 43
UÓSM.: PÁLL KJARTANSSON.