Vikan - 21.01.1988, Side 44
Kvikmynd um framhjáhald er nú sú
sem flestir tala um vestur
Bandaríkjunum.
„Fatal attraction" heitir
myndin sem nefha mætti
„Lífshættulegt skot“ upp á ís-
lensku og segir frá því þegar
eiginmaður í lukkulegu
hjónabandi laumast til að
halda framhjá þegar konan
er að heiman.
Hjónin hafa verið gift í næst-
um tuttugu ár, eiga eina tánings-
dóttur barna og frúin og dóttir-
in skreppa út í sveit einhverja
helgi. Maðurinn hittir þá af til-
viljun greinda og skemmtilega
konu og á með henni eina nótt.
- Fjölmargir karlar hafa
hringt í mig og sagt: „Þakka þér
fyrir félagi, nú ertu búinn að
eyðileggja allt grínið fyrir
okkur,“ segir leikstjóri myndar-
innar, Adrian Lynne.
— Karlmenn eru alltaf að velta
því fyrir sér að hressa upp á
grámósku hversdagsins með því
að verða sér úti um kátan ból-
félaga í laumi.
Klár boðskapur
Karlinn í myndinni heitir
Dan. Það er Michael Douglas
(sonur gamla Kirks og iíkist föð-
ur sínum mjög) sem fer með
hlutverk hans. Boðskapur
myndarinnar er: Takirðu kyn-
ferðislegt hliðarspor, þá tek-
urðu þá áhættu að eyðileggja
allt þitt líf.
Dan í myndinni er hamingju-
samlega gifitur - en fellur fyrir
freistingunni. Sú heitir Alex
(Glenn Close ieikur hana).
Hann hafði hugsað sér stutt grín
yfir eina helgi, enda hefúr hann
ekki meiri tíma fyrir hana. Hún
hrífst hinsvegar af honum og vill
meira. Og tekur nú að herja á
litlu kjarnafjölskylduna sem
samanstendur af eiginkonunni
Beth (sem Anne Archer leiku*-
dótturinni, hundi og kanínu.
— Hvernig stendur á því
allir áhugaverðir karlmenn eru
giftir, spyr Alex þegar þau hitt-
ast fyrst.
— Þér fínnst þeir kannski bara
áhugaverðir vegna þess að þeir
eru giftir, segir Dan. Og þegar
hann segir henni að hann sé
sjálfur hamingjusamlega giftur,
spyr hún hvað hann sé þá að-
gera þarna með henni.
- Við gripum tækiferið þegar
það gafst, segir hann, skemmt-
um okkur ágætíega. En svo átt
Glenn Close sem Alex Forrest í „Lífshættulegt skot“
þú að vera stór stelpa og sjá um
þig sjálf, gleyma þessu bara. En
Alex vill halda áfram samband-
inu eftir að Beth og dóttirin eru
komnar í bæinn.
Dan fer slæma samvisku og
verður elskulegri eiginmaður
og faðir en nokkru sinni fyrr.
Alex gefst ekki upp. í fyrstu dok-
hún álengdar, fylgist með
ffamvindu mála, en þegar hún
sér að Dan ætlar að ýta henni í
burtu breytist ástandið í hrein-
an hrylling. Myndin breytist úr
ástarvellu í Hitchcock-þriller af
bestu gerð. Og myndin er sögð
svo vel gerð að venjulegur bíó-
gestur þekkir sjálfan sig hér og
þar, karlar kannast vel við Dan,
konur við ástkonuna ellegar
firúna. Alex verður vitanlega
óffísk. Og þegar Dan býðst til að
borga fýrir fóstureyðingu segist
hún enga eyðingu vilja þar eð
hún elski föðurinn og sé að auki
orðin 36 ára, ekki mörg feri á að
verða óífísk aftur.
Flestir þeir sem séð hafa
myndina taka upp hanskann
fýrir Beth. Alex er af flestum tal-
in vera hrein kynferðisnorn sem
aðeins vill spilla heiðarlegum
heimilisfriði. Kvenréttindakon-
ur kvarta hins vegar hástöfúm
yfir að hinni einstæðu konu í at-
vinnulífinu sé lýst sem nánast
geðbilaðri blóðsugu — þær líta á
konuna sem árás á hina frjálsu
konu í atvinnulífinu. En hús-
fireyjan er aftur hyllt sem einn af
máttarstólpum þjóðfélagsins.
Ýmsir gagnrýnendur líta á
myndina sem hreint drasl, en
aðrir hafa bent á merkilega
staðreynd: Leikstjórinn er karl-
kyns og hann lýsir eiginmannin-
um í myndinni sem næsta veik-
lyndum manni sem sé dauð-
hræddur við kvenfólk. Það er
víst tímanna tákn. (DN)
STILLTU Á STJÖRNUNA
Stjarnan er stillt á þig.
FM 102 og 104
Auglýsingasími 689910
44 VIKAN