Vikan - 28.01.1988, Qupperneq 4
í BYRJUN VIKUNNAR
t
Mexíkóferð í stað
Þingvallahringsins
Ýmsar uppákomur í skólanum
fram að utanferðinni voru til
þess fallnar að auka á spenn-
inginn.
Stúdentar
frá þremur
skólum saman
í hópferð
Það er af sem áður var að
nýútskrifaðir stúdentar færu
austur fyrir Fjall eða bara
Þingvallahringinn til að
halda upp á áfangann. í dag
heimsækja nýstúdentar fjar-
lægar heimsálfur. í síðustu
viku komu þrtr stúdenta-
hópar til landsins eftir tæp-
lega þriggja vikna ferðalag
um Mexíkó.
Það voru nýstúdentar úr Fjöl-
brautaskólanum Breiðholti,
Kvennaskólanum og Fjölbrauta-
skóla Vesturlands, sem ákváðu í
haust að halda til Mexíkó að af-
loknum prófum um jólin. Ferða-
iagið hófst rétt fyrir áramót með
því að flogið var til New York.
Nýr Þórs-
kabarett
af stað
„Svart og hvítt“ heitir eld-
fjörugur kabarett sem Þórskaffl
hóf sýningar á um síðustu helgi.
Margir af okkar þekktustu
skemmtikröftum taka þátt í þess-
ari grínveislu ársins. Má þar
nefna Jörund Guðmundsson,
Magnús Ólafeson, Sögu Jónsdótt-
ur dansara og síðast en ekki síst
stórsöngvarann og grínistann
Tommy Hunt sem sló í gegn svo
um munaði í fjörugum Þórs-
kabarett í fyrra. Tommy hefúr
notið mikilia vinsælda erlendis á
undanförnum árum og komið
fram með Sammy Davis jr, Stevie
Wonder, Díönu Ross og fleirum.
Morguninn eftir var haldið
áleiðis til Mexíkóborgar, höfúð-
borgar Mexíkóríkis og þar dval-
ist í þrjá daga. Enginn veit með
vissu hvað þar búa margir. Töl-
ur um íbúafjölda rokka á milli
12—20 milljóna. Þar fögnuðu
hóparnir komu nýs árs á þjóð-
legum mexíkönskum veitinga-
og skemmtistað. Að lokinni
skemmtilegri og forvitnilegri
dvöl í Mexíkóborg kom að því
sem alla hafði hlakkað mest til;
tæplega tveggja vikna dvöl t Ac-
apulco, ferðamannaparadís á
Kyrrahafsströndinni. Mexíkó-
borg liggur í rúmlega 2 km hæð
á háslettu. Þaðan eru rúmlega
300 km til Acapulco. Þangað var
ekið í rútum eftir hlykkjóttum
fjallavegum.
Dvölin í Acapulco var kær-
komið frí eftir prófannir. Þar
sem hóparnir fóru ekki á vegum
sömu ferðaskrifstofú dvöldu
þeir á tveimur hótelum. Fjöl-
brautaskólinn í Breiðholti og
Kvennaskólinn voru saman á
vegum Pólaris en Fjölbrauta-
skóli Vesturlands fór með
Útsýn.
Úr 35-40 stiga hita í Acap-
ulco var haldið til New York þar
sem frosthörkur voru svo gífúr-
legar að fólki var ráðlagt að
halda sig innandyra nema það
ætti bráðnauðsynlegt erindi út í
gaddinn. Þar dvöldu nýstúdent-
arnir svo í þrjá daga og skoðuðu
stórborgina. - ÁS
skemmti sér rækilega um leið og þeir njóta þríréttaðrar veislu-
máltiðar. Ljósm.: Lárus Wöhler.
Auk þess koma við sögu í kabar-
ett ársins hljómsveitin Burgeisar
sem skipuð er nokkrum af fær-
ustu tónlistarmönnum landsins.
Hljómsveitin leikur jafiiffamt
fyrir dansi fram á rauðanótt.
Um tónlistarflutningfyrirmat-
argesti sér ítalski gítarsnillingur-
inn Leone Tinganelli.
Þórskabarett í Þórskaffi er
sýndur matargestum öll föstu-
dags- og laugardagskvöld og
boðið er upp á þríréttaða veislu-
máltíð.
Nokkrir stúdentanna sjást hér veifa Visa-kortum sínum í flugstöðinni í New York, en Visa studdi
hópinn að nokkru leyti til fararinnar.
4 VIKAN