Vikan


Vikan - 28.01.1988, Qupperneq 5

Vikan - 28.01.1988, Qupperneq 5
Öllum brögðum beitt — Darraðadansinn í Leifsstöð Það var mikill darraðardans fjölmiðla í kringum komu Paul Watson hingað til lands en eins og kom fram í mikl- um reiðilestri Guðna Braga- sonar í ríkissjónvarpinu var ekki öllum hleypt inn í flug- stöðina til að taka á móti kappanum. Liðið sem kom frá Stöð 2 með Kristján Má Unnarson í broddi fylkingar ætlaði að vera sniðugt og keypti sér farseðla til New York, aðra leið, til að komast inn í flugstöðina í Keflavík. Þetta bragð dugði þó skammt þar sem Kristján Már var ekki með vega- bréfið sitt með sér og fékk því ekki að fara í gegn. Hvað Guðna varðar þá laum- aði einhver kunningja hans að honum brottfararspjöldum og komst hann inn í flugstöðina með sitt lið en þar voru þeir settir afsíðis, eða hólfaðir af, og komust því heldur ekki nálægt Watson. Þannig að segja má að þótt öllum brögðum hafi verið beitt hafi ljósvakamiðlarnir ekki getað séð við stífum tollurum í flugstöðinni. Erla B. Skúladóttir í sínu stærsta hlutverki til þessa. Fyrir og efitir mat, en í matartímanum eldist per- sónan um tiu ár. Súrsæt leiksýning — Eggleikhúsið í hádeginu á Mandarínanum Eggleikhúsið hefúr nú hafið sýningar í hádeginu á veit- ingastaðnum Mandarínan- um á verkinu Á sama stað eftir Valgeir Skagfjörð en verkið er samið sérstaklega með hádegisleikhús fyrir augum. Aðalhlutverkið, og raunar eina hlutverkið, er í höndum Erlu B. Skúladótt- ur. Leikstjóri er Ingunn Ásdísardóttir og búningar eru í höndum Gerlu. Leikritið er ætlað hádegis- verðargestum Mandarínans og er borin ffarn fjórréttuð kín- versk máltíð með því sem samanstendur af súpu, súrsæt- um rækjum, vorrúllum og kjúkl- ingum í ostrusósu. Viðar Eggertsson er stofhandi og aðaldrifíjöðrin í Eggleikhús- inu sem hann segir byggt á draumum og þrám og ætlað að framfylgja þeim. „Þetta er sjöunda verkefhið sem við ráðumst í og þarna er í fyrsta sinn leikkona í aðalhlut- verki þannig að segja má að við róum á ný mið,“ segir Viðar. Eggleikhúsið hefur starfað í 7 ár en undanfarin ár hefur það verið vinsælt á leiklistarhátíðum víða um heim og er svo enn og sýnir það yfirleitt íslensk verk, svo sem Skjaldbakan kemst þangað líka eftir Árna Ibsen og einþáttung sem Viðar hefur leik- ið fyrir einn áhorfanda í einu. Hádegisleikhús eru nýjung hér á landi en Alþýðuleikhúsið reið á vaðið í fyrra í Kvosinni með leikritið Eru tígrisdýr í Kongó? en Viðar fór einmitt með annað hlutverkanna þar. „Þetta reyndist mjög vel og áhorfendur voru almennt mjög ánægðir, segir hann. Á sama tíma er fyrsta svið- sverk Valgeirs Skagfjörð og Við- ar segir að hann hafi trú á þessu verki en það verður flutt þrisvar í viku, á þriðjudögum, fimmtu- dögum og laugardögum. Verð- inu er mjög stillt í hóf eða 1090 krónur fyrir leikritið og matinn. - FRI Jóhann gegn Kortchnoi: Modern lceland safnaði 15.000 $ Tímaritíð Modern Iceland, sem gefið er út á ensku og aðallega selt tíl áskriftar fyrir útíendinga, safnaði um 15.000 dollurum tíl styrktar Jóhanni Hjartarsyni í skák- einvígi hans við Victor Korc- hnoi í Saint John í Kanada. Nýjasta tölublað Modern Ice- land, sem kom út um síðustu helgi er að miklu leyti helgað skáklistinni á íslandi, en tímarit- inu var m.a. dreift í stóru upp- lagi á hótel í Bandaríkjunum og Kanada í tilefhi skákmótsins. Að sögn talsmanna Modern Iceland, var ákveðið síðastliðið haust, að blaðið hæfi samstarf við Skáksamband íslands, með það fyrir augum að styðja við bakið á Jóhanni í einvíginu. Steingrímur Hermannsson utan- ríkisráðherra féllst einnig á að leggja málinu lið. Mörg íslensk fyrirtæki féllust m.a. á að greiða sérstakt auglýsingaverð, þar sem ágóðinn rann í söfhunar- sjóðinn fyrir Jóhann og árangur- inn urðu tæplega 15.000 dollar- ar í farareyri fýrir skákmeistar- ann unga, eða sem næst 600 þúsund krónur. Ritstjórar og ábyrgðarmenn Modern Iceland eru Robert Mellk og Magnús Ólafsson, en Magnús er jafhffamt fram- kvæmdastjóri blaðsins. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.