Vikan


Vikan - 28.01.1988, Síða 14

Vikan - 28.01.1988, Síða 14
anin og þó ekki væri nema bara vegna þessa þá ættu menn að fara í nudd. Og þegar þú spyrð hvort fólk eigi að hætta í nuddi þegar nuddið hefur orðið til þess að það hefur losnað við þann kvilla sem þjáði það, þá svara ég með því að segja að fólki geti aldrei liðið of vel - og þess vegna er í rauninni aldrei hægt að hætta í nuddi.“ Þeir sem aldrei hafa farið í nudd halda flestir að mikil átök og kraftmikil handtök séu þar viðhöfð og að nuddinu fylgi mikill sársauki. Þannig er þetta ekki; handtökin eru yfirleitt mjúk, mismunandi þó eftir því hvar og hvers vegna er verið að nudda, sársauki fylgir aðeins ef mikil bólga er í líkamanum eða ef viðkomandi hefúr meitt sig. Eins og fyrr segir er algengt að fólk komi fyrst í nudd vegna vöðvabólgu og fyrst í stað getur bólgusvæðið verið grjóthart og helaumt viðkomu og þá er nuddið ekkert sérlega þægilegt. En þegar búið er að fara nokkr- um sinnum í nudd er líðanin orðin allt önnur vegna þess að bólgan hefur hjaðnað eða horfið og með henni allur sársauki og jafnvel þráláti höfiiðverkurinn sem oft er fylgifiskur vöðva- bólgu í herðum og þá fyrst er orðið reglulega gott að fara í nudd. Rick sagði að nudd væri einnig mikið notað á þá sem skaddað hafa hina ýmsu vöðva líkamans og nefndi í því sam- bandi meiðsli á öxl sem sund- menn verða t.d. oft fyrir, einnig skaddast axlavöðvarnir oft þeg- ar verið er að lyfta einhverju mjög þungu að ekki sé talað um bakvöðvana. Einnig er nuddi beitt á svæði þar sem stöðugur og nagandi verkur þjáir viðkom- andi. Nudd er viðurkennd aðferð til að lækna ýmis meiðsl og kvilla sem hrjá menn og því eru ýmis tryggingafélög í Banda- || í námunda við nafla eru punktar sem slaka á ristli og maga ef á þá er þrýst. Ristil- punkturlnn er þrem fingrum fýrir neðan nafla og síðan eru punktar sitt hvoru megin við nafla, utan í magavöðvanum. ríkjunum farin að greiða kostn- aðinn við nuddið fyrir þá við- skiptamenn sína sem á því hafa þurft að halda. Hér á landi greiða tryggingar nudd fýrir fólk sem að læknisráði fer í nudd hjá sjúkranuddara. Slysum getur enginn gert við en Rick Gaines telur að hægt sé að koma í veg fyrir ýmsa líkam- lega kvilla með því að hugsa vel um sig og að nuddið geti komið þar að gagni. „Það sem gerist þegar menn eiga við vöðvabólgu að stríða er að vöðvarnir eru sífellt krepptir og stífir en í nuddi eru þeir „minntir á“ að þeir þurfa að slakna. Fari menn reglulega í nudd, þar sem þeir verða að slaka á og þar sem er kannski eini staðurinn sem þeir gefa sér tíma til að hugsa um sjálfa sig og hvert líf þeirra stefnir, þar sem þeir spyrja sig spurninga eins og: Hvenær gerði ég eitthvað síðast með syni mínum?, þá kemur að því að þeir læra að hægja aðeins á ferð- inni og að slappa af - og þá er síður hætta á að menn fái vöðva- bólgu. Ég hef orðið var við að sumum nuddaranna hér finnst það nudd sem ég er að kenna of „mjúkt", en mér finnst skipta miklu máli að kenna að nudda „innri" manninn. Nudd kemur ekki að fúllu gagni fýrr en næst að láta fólkið slaka vel á. Þetta kemur einnig að miklu gagni þegar um gamalt fólk er að ræða. Gamalt, rúmliggjandi fólk sem á ekkert framundan nema dauðann er oft mjög hrætt og líður því illa. Nuddið hjálpar því að slaka á og finna innri ró og um leið á það betra með að sætta sig við það sem ffamund- an er.“ Streituþjóðfélagið fer illa með okkur á margan hátt og glöggt gestsaugað er ekki lengi að sjá að við erum þjóð sem ekki kann að slaka á og njóta lífsins á heil- næman hátt. Rick Gaines finnst að nauðsynlegra sé fyrir okkur að fara í nudd en margar aðrar þjóðir, því auk þess að öðlast þá líkamlegu vellíðan sem nuddið veitir þá veiti okkukr ekki af að öðlast þá andlegu, sem hann telur að skorti á í þessu landi vinnuálags og streitu. Víst er það að við sem höfúm kynnst þessari vellíðan getum ekki hugsað okkur að vera án hennar og erum hjartanlega sammála Rick þegar hann segir: „Það er aldrei hægt að láta sér líða OF vel.“ B.K. Svæðið umhverfis herðablöðln er oft mjög stíft og aumt. Þama er mikið um festingar og svæðið þarf að nudda sérlega vel til að losa vei um stífnina - helst að „losa“ herðablaðið, segja nuddararnir. í svæðanuddi er allur fóturinn nuddaður, en í fætinum em taugaendar allra líffæra líkam- ans. Þannig að þegar fóturinn er nuddaður má segja að í rauninni sé verið að nudda lík- amann. Rick Gaines sagði að þetta nudd væri lítið þekkt í Bandaríkjunum og að íslensku nuddararnir væm betur að sér í svæðanuddi en hann. Hér áður þegar mennimir gengu að mestu berfættir þá nuddað ist fóturinn sjálfkrafa, nú koma nuddaramir nútímamanninum tU hjálpar, með því að ákveðin svæði á fótunum er hægt að hafa bætandi áhrif á aumt líffæri. 14 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.