Vikan


Vikan - 28.01.1988, Síða 23

Vikan - 28.01.1988, Síða 23
Að mati nefhdarinnar mega kvikmyndir innihalda ótakmarkað ofbeldi svo fremi að ekki sé neitt kynlíf sýnt í þeim. Frekar má sýna fólk sundurlimað en í samförum. finna má í flestum myndbanda- leigum og bókabúðum hér á landi, lieldur reyndu nefndar- rnenn að grafa upp allan þann versta ósóma sem þeir gátu og dæma svo alit út frá honum. Þannig kom það til að Sears, í nafhi nefndarinnar, sendi versl- unarkeðjum út um öll Bandarík- in hótunarbréf sem ritað var á bréfsefni dómsmálaráðuneytis- ins vegna þess að þær seldu blöð eins og Penthouse og Playboy. Nú eru flestir sammála um að þessi blöð geti varla talist til klámblaða og hvað þá skaðleg fyrir iesendur sína. Rithöfundar mótmæla Enda urðu viðbrögð almenn- ings og fjölmiðla geysilega hörð þegar störf nefndarinnar kom- ust upp á yfirborðið. Þekktir rit- höfúndar þustu fram á ritvöllinn og fordæmdu störf nefndarinn- ar. Meðal þeirra má nefna John Updike, John Irving, Susan Is- aacs og William Kennedy. Susan Isaacs segir meðal annars: „Hvar drögum við línuna og hver á að draga hana? Ég veit það ekki og ég held að enginn viti það. Það sem getur virkað svolítið kitl- andi á mig getur verið fullkom- inn viðbjóður í þínum augum. Sú manneskja er ekki til sem ég treysti til að veija fyrir mig. Ég vil ekki hafa Jerry Falweli eða Andreu Dwarkin (Dwarkin er vinstrisinnuð kvenréttindakona sem berst gegn klámi með svip- uðum hætti og Siðprúði meiri- hlutinn) nálægt bókasafninu mínu eða kvikmyndahúsi til að ákveða hvað má sýna mér og hvað ekki.“ Meðal annarra fjölmiðla sem mótmæltu þessari aðför nefnd- arinnar er hið íhaldssama blað Chicago Tribune, en þar er efast um getu Reaganstjórnarinnar til að fylgja stjórnarskránni í hinni siðferðilegu krossför hennar. í leiðara blaðsins segir orðrétt: „Bréf nefndarinnar varaði verslunarkeðjurnar við því að þær væru að dreifa klámi vegna þess að þær seldu tímarit sem nefhdin hefði úrskurðað óvið- unandi, þar á meðal Playboy og Penthouse... Nefndin heldur kannski að hún komist upp með svona lagað í þetta sinn vegna þess að hún ræðst á blöð eins og Playboy og Penthouse. Nefnd- armeðlimir álykta kannski að venjulegt, siðprútt fólk muni ekki mótmæla þar sem það sé ekki svo hrifið af útgáfú þessara blaða. En þetta er ekki spurning um smekk. Þetta er spurning um grundvallar lagafram- kvæmdir. Þetta er gróf misnotk- un á ríkisvaldi og ætti að vera fordæmt, sama hvað manni kann að þykja um blöðin sem ráðist er á.“ Ráðuneytið fór fram á frávísun Eins og sagði í upphafi grein- arinnar höfðaði Playboy fyrir- tækið mál á hendur bæði nefnd- inni og Edwin Meese og vann það í undirrétti. Þegar undirrit- aður hafði samband við Iög- fræðinginn sem sótti málið fyrir Playboy, Bruce Ennis, og innti hann eftir fréttum hafði hann þetta að segja: „í júlí í fyrra úrskurðaði undirréttur að nefndinni væri óheimilt að birta svartan lista eða gera nokkuð til að koma í veg fyrir málfrelsi og prentfrelsi. Störf nefndarinnar voru harð- lega vítt og markmið hennar fordæmd. Eftir að þessi dómur féll fór dómsmálaráðuneytið ffam á það við hæstarétt að mál- in'u yrði vísað frá vegna form- galla. Ekkert hefur ennþá komið út úr því svo segja má að málið sé í biðstöðu. En dómsmála- ráðuneytið er þegar búið að ffamfylgja nokkrum af þeim til- lögum sem nefndin lagði fram í áttina að því að skerða prent- ffelsi." Sem fyrr eru andstæðurnar í bandarísku þjóðfélagi miklar en þar er tjáningarfrelsið og frelsi einstaklingsins lofsungið meira en víðast annars staðar. Samt sem áður komast samtök heitt- trúaðra kristinna hægri manna upp með það að stunda ritskoð- un í stórum stíl. Nærtækt dæmi um það eru hinir vinsælu sjón- varpsþættir Löður sem sýndir voru hér á sínum tíma. Fram- leiðslu þeirra var hætt vegna þess að félagar í Siðprúða meiri- hlutanum hótuðu að skipta ekki við fyrirtæki sem auglýstu í þátt- unum. Nú er þessi ritskoðun komin á enn hættulegra stig þegar þessi samtök eru farin að beita fýrir sér opinberum stofn- unum og ráðherrum í baráttu sinni gegn „illu“. AE. Heimildir: Playboy, Chicago Tribune, Los Angeles Times. VIKAN 23

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.