Vikan - 28.01.1988, Page 29
Hún er lærður smiður þessi og var
önnum kafin við brúarviðgerð.
Hárskeri staðarins
Texti: Cuðrún Alfreðsdóttir
Myndir: Valdís óskarsdóttir
Eitt af húsi
um í „miðj
bænum“ /
;j-S&
fi m
Lövehuset er nú friðað en hér á
þar í upphafi síðasta áratug.
Útréttir armar bjóðandi
hassmola á tilboðsverði var
eitt það íyrsta sem mætti
okkur er við gengum inn í
Kristjaníu í Kaupmanna-
höfn einn fagran desem-
berdag. Við, útsendarar
Vikunnar, voru ekki alveg
óttalausar við þessa innrás
í fríríkið. Bæði vegna tíðra
ofbeldisfrétta þaðan að
undanfömu og vitandi að
staðarmenn líta fjölmiðla-
fólk ekkert of hým auga,
vegna fremur neikvæðrar
umfjöllunar yfirleitt um
Kristjaníu. Og vopnaðar
myndavélatösku og þrífæti
litum við hreint ekki út
fyrir að vera neitt annað en
fréttasnápar. En við settum
upp ofur vinsamlegan svip
og reyndum að vera eins
lítið rannsóknarblaða-
mannslegar (!) og við
gátum - og fuilvissuðum
okkur um að það hefði
tekist er móttökunefiidin
fyrmefnda opnaði faðm
sinn. Hasspípur af öllum
gerðum vom svo boðnar
fram í nærliggjandi sölu-
tjaldi, þar sem þær lágu
þolinmóðar innan um
skartgripi, skrautmuni og
eldhúsáhöld. En kurteis-
lega afþökkuðum við
góssið og héldum áfram
ferð okkar lengra inn í
Kristjaníu, að „reiðhjóla-
verkstæðinu rétt hjá smiðj-
unni“, en þar áttum við
stefinumót...
árum áður hýsti þetta hús íslendinga nýlenduna sem blómstraði
Sælíegir krakkar á Solyst-barnaheimilinu
Gegnumtrekkur
Kristjanía, fríríkið — draumur
hippa og annarra hugsjóna-
manna í byrjun áttunda ára-
tugarins, heyrir ef til vill bráð-
um fortíðinni til.
Pað hefur verið eilífúr gegn-
umtrekkur á staðnum síðan
þetta fólk, sem vildi stofna eig-
ið ríki — óháð hinu borgaralega
og kapitalíska, settist að í leyfis-
leysi á fyrrum athafnasvæði
hersins. Opinberlega tilheyrir
þetta 35 ha. svæði varnarmála-
ráðuneytinu en þegar á reynir
vísar það gjarnan á borgaryfir-
völd sem aftur vísa á stjórnvöld.
Að meðaltali annað hvert ár hafa
dönsk stjórnvöld tekið málið til
meðferðar en ekki hefur tekist
að finna viðunandi lausn á þessu
sérstæða fyrirbæri. í fyrstu var
m.a. gefinn frestur meðan
ákveðið skyldi hvað gera ætti
við svæðið, svo úrskurðaði
hæstiréttur að svæðið skyldi
rýmt hið fyrsta, en síðan var
blaðinu snúið við og til stóð að
leyfa fríríkið. Ákveðið var þá að
verja um fimm milljónum
danskra króna til endurbóta á
friðuðum húsum í Kristjaníu.
Vinstri flokkarnir svokölluðu
hafa löngum stutt fríríkið,
nefndu það á sínum tíma „fé-
lagslega tilraun", en borgara-
flokkarnir eru því andvígir. Pó
hefúr stuðningur eitthvað riðf-
ast að undanförnu og ráða þar
mestu auknir glæpir og ofbeid-
isverk á staðnum. í kjölfar mik-
ilia umræðna, sem blossuðu upp
heitari en nokkru sinni, hélt
danska þingið sérfund um
framtíð Kristjaníu í nóvember
sl. til að afgreiða málið í eitt
skipti fyrir öll. Ekki náðist þó
sameiginleg niðurstaða þá frek-
ar en fyrri daginn, því þrátt fyrir
allt er enn meirihluti á þinginu
með vernd Kristjaníu. Stjórnar-
flokkarnir, með Schlúter í
broddi fylkingar, vilja hins vegar
ekki una því og ætla sér að
leggja fram lagafrumvarp um að
svæðið verði rýmt í áföngum á
tveimur árum.
VIKAN 29