Vikan - 28.01.1988, Side 30
Stríðsleikur
— Ósköpin munu dynja yfir
snemma morguns, milli klukkan
þrjú og fjögur. Of margir munu
vita hvað sá dagur ber í skauti
sér, of margir munu verða
hræddir og of margir munu slas-
ast aivarlega áður en yfir lýkur.
Hætta er á að margir, úr báðum
liðum, liggi í valnum... Því
hópur stjórnmálamanna hefúr
tekið ákvörðun: „Ryðjið Krist-
janíu!“ —
Á þennan hátt dramatísera
dönsku blöðin hugsanlegar að-
gerðir gegn Kristjaníu og full-
yrða að leynileg áform séu full-
mótuð, bæði hjá lögregluyfir-
völdum og íbúum Kristjaníu.
Jafhframt er velt vöngum yfir
því hvort það verði lögreglan
eða herinn sem ræðst til atlögu
— eða . jafnvel sameiginleg
aðgerð. Hvort skotvopn verði
notuð og hvort Kristjaníubúar
séu reiðubúnir til að mæta slíkri
árás og hve lengi þeir telji sig
geta varist.
Talið er víst að fyrstu aðgerð-
ir lögreglu eða hers verði að
loka öllum inngönguleiðum inn
í Kristjaníu til að koma í veg
fyrir utanaðkomandi aðstoð ffá
hústökufólki og öðrum stuðn-
ingsmönnum. Því vitað er að
Kristjaníubúar hafa komið sér
upp símaaðvörunarkerfi til að
geta m.a. kallað á utanaðkom-
andi hjálp. Síðan mun stríðs-
leikurinn hefjast með tilheyr-
andi tækjum og tólum og hraðri
stígandi. Sextán ára kaffitíma-
snakk löggæslumanna verður
loks raunveruleiki.
En er það í verkahring lög-
reglunnar að ata sig út fyrir póli-
tikusa sem óttast að missa at-
kvæði? spyrja sumir. Aðrir láta
sig það litlu varða, glæpahyskið
skuli á brott.
Kristjanítar
og rokkarar
Hverjir eru þá þessir Kristjan-
íubúar, þetta glæpahyski sem á
að uppræta og helst tortíma?
Varla er gamla hippalífið enn í
algleymi þarna í Kristjaníu?
Af lestri sumra dagblaða
mætti í fljótu bragði ætla að
íbúarnir væru glæpamenn upp
til hóþa því varla líður sú vika
að ekki blasi við flennifyrirsagn-
ir og myndir af alls kyns glæpum
sem ffamdir eru á staðnum. Og
nýlega gerðist það að póstmenn
og aðrir opinberir starfsmenn
hættu að fara inn í hverfið. M.a.s.
lögreglan er treg til.
En staðreyndin er sú að það
er æði mislitur hópur sem held-
ur til í Kristjaníu. Kristjanítarnir
svokölluðu, eða hinir þvottekta
30 VIKAN
Indkobscentralen og útsýnistum.
Kristjaníubúar, hafa búið á
staðnum í mörg ár, sumir allt lfá
upphafi. Þeir voru um tíu þús-
und er flest var en eru nú um
eitt þúsund að staðaldri og eru
flestir hverjir ósköp venjulegar
heiðvirðar sálir á fertugs- og
fimmtugsaldri. Þetta fólk hefúr
byggt upp sitt eigið samfélag,
sitt eigið ríki, sem út á við líkist
hverju öðru smáþorpi. Það kýs
að fá að lifa áffam í friði og ró
samkvæmt eigin lögum og
reglum.
Aðrir íbúar eða dvalargestir
hafa leitað skjóls í fríríkinu af
dálítið öðrum ástæðum en hinir
fýrrnefndu. Þeirra á meðal eru
rokkararnir svonefndu, hvers
kyns smáglæponar sem og eftir-
lýstir afbrotamenn. Það er fýrst
og ffemst þetta utangarðsfólk
sem sér fjölmiðlum fyrir æsi-
fréttum. Kristjanítarnir eru eðli-
lega lítt hrifnir af þessum ná-
grönnum en hafa reynt að sýna
þolinmæði og beðið átekta. Upp
úr sauð þó nýlega hjá Kristjanít-
unum eftir að foringi rokkara-
hljómsveitarinnar Bullshit varð
uppvís að morði og líkið fannst
þakið steinsteypu í gólfi mótor-
hjólaverkstæðis hljómsveitar-
innar á staðnum. Kristjanítarnir
fengu lögregluna til að fjarlægja
eigur rokkaranna, lokuðu hús-
inu og vakta nú svæðið í sjálf-
boðavinnu til að varna þeim
inngöngu. Óvíst er hver eftir-
máli þessara aðgerða verður,
því Bullshit meðlimirnir eru
óhemju atkvæðamiklir og höfðu
þar að auki tögl og hagldir í
fíkniefnasölu staðarins.
Sumir eru þeirrar skoðunar
að hin „félagslega tilraun" í
Kristjaníu hafi mistekist, því
óhjákvæmilega sæki utangarðs-
fólk og afbrotamenn í sælu frí-
ríkisins. En aðrir kenna um sí-
felldu óvissuástandi sem ríkt
hefur um framtíð staðarins, það
hafi komið í veg fyrir að tekið
hafi verið raunhæft á málum í
tíma. Einnig er talið víst að
helstu ástæðuna fyrir brottflutn-
ingi margra Kristjaníta megi
rekja til hins síðarnefhda — þó
einhverjir kunni einfaldlega að
hafa týnt draumnum sínum.
í næstu Viku: Stefiiumót við
Ole í Kristjaníu. — Er Krist-
janía algjört ruslabæli sem
þyrfti að tortíma hið bráð-
asta?