Vikan


Vikan - 28.01.1988, Page 44

Vikan - 28.01.1988, Page 44
Ragnar Lár: Raupað og rissað Friðjón og presturinn Friðjón hét maður og bjó á Bjarnastöðum í Mývatnssveit en þar heitir nú á Heiði. Friðjón var orðhvatur og orðheppinn og ekki fyrir að skafa utan af hlutunum. Eitt sinn vann Friðjón að vegghleðslu fyrir prestinn á Skútustöðum. Prestur kemur þar að sem Friðjón vinnur að hleðslunni og þykir vel unnið. Verður presti þá að orði: „Ég skal halda fallega ræðu yfir þér, Friðjón minn, þegar þar að kemur.“ Friðjón svarar að bragði: „Ég vil ekki Iáta hafa neitt yfir mér nema klám og níð.“ Friðjón Og 200 metramir Þegar hin svonefnda samnor- ræna sundkeppni fór fram í fyrsta sinn var Friðjón orðinn fúllorðinn maður og óvanur sundi. En hann lét sig þó hafa það að fara ásamt fleirum niður í Laugar í Reykjadal til að leggja sinn skerf til keppninnar. Þegar Friðjón kom til baka var hann spurður hvernig honum hefði gengið að synda 200 metrana. Friðjón svaraði: ,Jú, mér gekk vel að synda en ég losnaði bara aldrei frá botni!“ Stofnaukinn og kringlukastarinn Þeir Reykvíkingar sem komnir eru til vits og ára kannast margir við „Stofnaukann", en það viður- nefni hafði maður sem þekktur var í bæjarlífinu á sínum tíma en er nú látinn fyrir nokkrum árum. Ennffemur kannast menn líka við einn af okkar fremstu ffjáls- íþróttamönnum frá fyrri tíð en sá varð fyrir því óláni að nota of fétta kringlu í keppni og var því settur í keppnisbann. Sá maður býr nú í Svíþjóð. Eitt sinn var Stofnaukinn staddur á Hótel Borg og var heilsan ekki upp á það besta. Kringlukastarinn kemur þar að sem Stofnaukinn sat við borð og sá hvernig honum leið. Bauðst hann þá til að gefa honum í glas en gerði það á þann hátt sem Stofnaukanum líkaði ekki og svaraði: „Nei takk, nú má ég ekki láta neitt ofan í mig nema flóaða mjófk og léttar kringlur." Káerringar og Valsarar Hjálmar Jóhannsson pípulagn- ingameistari og innrammari er mikill Valsari og lætur sig sjaldn- ast vanta þegar Valur leikur knattspyrnu. Eitt sinn sem offar var hann staddur á Laugardals- vellinum en þar áttust við erki- flendurnir KR og Valur. Með Hjálmari var dóttursonur hans og nafni og var afi að sjálfsögðu búinn að skýra fyrir nafna sínum hvaða lið væri best á landi hér og þó víðar væri leitað. Svo vildi til að Valur byrjaði með boltann og hélt honum dá- góða stund. Þá kallar strákur upp svo hátt að glumdi við í stúkunni: „Afi, afi, eiga Káerringarnir engan bolta?“ Eins og gefur að skilja gall við hlátur í stúkunni og hlógu stuðningsmenn Valsara hærra en hinir. Að launum fékk strák- urinn fúllan poka af sælgæti frá nærstöddum aðdáanda. STILLTU Á STJÖRNUNA Stjarnan er stillt á þig. FM 102 og 104 Auglýsingasími 689910 44 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.