Vikan


Vikan - 28.01.1988, Blaðsíða 46

Vikan - 28.01.1988, Blaðsíða 46
atrix handáburður verndar, styrkir og mýkir. (0 J.S. HELGASON HF. Draghálsi 4. Simar: 37450 og 35395. Ef ég lifði því Hfí semégdaHam gæti ég ekki skrífað - segir Jackie Collins, höfundur „Eiginkvenna í Hollywood" Metsöluhöfundurinn Jackie Collins veit líklega meira um ást, losta og svik en nokkur annar. Neistandi skáldsögur hennar (sem eru tíu og þar með talin sú nýjasta Hollywood Husbands) eru skrásetning á ástarævintýrum hinna ríku frá Beverly Hills til Malibu til Palm Springs. Hvem er þá betra að spyrja um rómantík í dag en glimmer- og sora- drottninguna sjálfa? Jackie samþykkti að taka sér hlé frá rit- störfunum og ræða málið yfir hádegisverði. „Það er skortur á rómantík hjá karlmönn- um,“ hefur Jackie mál sitt, um leið og hún smeygir sér í sætið. „Karlmenn gleyma róm- antíkinni jafnskjótt og þeir hafa kvænst. Það er eins og þeir hafi unnið kapphlaupið og að þeim finnist að nú eigi þeir skilið að slappa af og njóta afrakstursins. Einn gallinn sem mennirnir í Hollywood Husbands hafa er að þeir eru aldrei í rómantískum hugleiðing- um með konum sínum, aðeins hjákonum." „Er þetta þá vonlaust? Er rómantíkin dauð? „Nei, alls ekki. Hún lifir enn góðu lífi í góðum hjónaböndum og það er rómantíkin sem gerir það að verkum að sambandið helst,“ segir Jackie sannfærandi. „Ég þekki hjón sem eru alveg ótrúlega rómantísk — hann er kvikmyndaframleiðandi og hún er falleg. Þau fara til Acapulco á hverju ári og þar sér hann til þess að þeim sé færð yndis- leg máltíð á ströndina sem þau snæða við fiðluundirleik. Michael Caine og kona hans eru mjög rómantísk," heldur Jackie áfram. „Þegar Michael var að leika í myndinni JAWS IV í Nassau þá hringdi hann í konuna sína, Shakira, og sagði við hana: ’Komdu og vertu hjá mér í New York í tvo daga.’“ Dýrt. Hugsuðum við með okkur á meðan við skoðuðum matseðilinn. „Er rómantíkin þá aðeins ætluð þeim ríku?“ Peningar ekki nauðsynlegir „Alls ekki. Það er hægt að vera rómantísk- ur þó lítið sé um peninga. Það getur verið rómantískt að fara saman í göngutúr niður í bæ og fá sér pylsu saman. Það sem skiptir máli er að samband á milli fólks má ekki verða að gömlum vana, það verður að halda glóðinni við og endurnýja eldinn sem oítast. Rómantík þýðir að það verður að skapa kynæsandi aðstæður af og til.“ „Ef karlmenn gera ekkert í því að við- halda rómantíkinni, á konan þá alfarið að sjá um að spennan haldist?" „Það er nú ansi erfitt fyrir konuna að sjá um þetta upp á eigin spýtur. Allt þetta kjaft- æði sem stendur í kvennablöðum um það að þú eigir að taka á móti manninum þínum í svörtum, gegnsæjum undirkjól, vera með steikina tilbúna í ofninum og búin að kveikja á kertunum á borðinu hefur ekkert að segja ef hann ákveður að hann vilji ffekar horfa á íþróttirnar í sjónvarpinu. Bæði verða að vera samþykk." „Hvað með sjónvarpið? Þessi ávani að vera alltaf að horfa á sjópnvarpið hlýtur að eiga töluverðan þátt í að drepa rómantík- ina?“ „Það er ekkert að því að hafa sína föstu ávana svo framarlega að hægt sé að bregða út afvananum af og til. Fastir vanar geta verið ágætir og veitt öryggiskennd, en við höfúm öll heyrt söguna um gæann sem gat aldrei sleppt höndinni af kærustunni sinni, áður en þau giftu sig; eftir giftinguna hefur hann heldur viljað horfa á sjónvarp. Þetta er Ma- donnu komplexinn og sjónvarpskomplex- inn samantvinnaður." „Hljómar hræðilega... hvað er til ráða? Við vonuðumst til að viðmælandi okkar lumaði á alls herjar lausn, en hún sá aðeins frekari vanda. „Sá aðili sem enn er rómantískur í sér er þarna kominn á viðkvæmt stig. Ef kæmi að því að hún hitti mann sem er rómantískur í sér á móti, þá væri hann varla lengi að telja hana á að koma með sér. Þannig að öll sófa- dýrin mega fara að vara sig,“ segir Jackie. „Hvað með „gráa fiðringinn“?“ „Karlmenn eru fæddir með flökkueðlið í sér,“ svarar hún að bragði. „Það er að segja FLESTIR menn. Það eru þeir sem ekki leita annað sem eru raunverulega aðlaðandi, vegna þess að ekkert jafnast á við mann sem hefúr viljastyrk. Horfúmst í augu við stað- reyndirnar — það þarf viljaþrek til að halda sig við einn og sama makann allt lífið. Ég held að framhjáhald spilli sambandinu á milli hjóna. Það er skemmtilegt að hugsa sér að maður geti hvenær sem er farið í rúmið með þeim sem manni lýst á það sinnið, en svo kemur að því að maður hittir þann sem breytir því að maður hugsi á þennan hátt. Og þó það sé gaman að kynnast náið mörg- um mönnum áður en maður giftir sig þá getur það líka verið hættulegt."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.