Vikan


Vikan - 28.01.1988, Qupperneq 47

Vikan - 28.01.1988, Qupperneq 47
Jackie með heimilishundinn í húsinu sínu í Hollywood. Heilinn er stærsta kynfærið „Er gott kyniíf þá hættulegt góðu sam- bandi?“ „Veistu, stærsti heilinn er stærsta kynfer- ið. Þú getur verið með manni sem er besti elskhugi í heimi en ef ekkert er ykkar á milli þá verður kynlífið aldrei gott.“ „Áttu einhver frekari ráð til að halda róm- antíkinni gangandi? „Að hafa kímnigáfú og geta hlegið að sjálf- um þér er afar mikilvægt," svarar hún. „Kímnigáfan virkar. Hún er aðlaðandi hjá báðum kynjum. Ætlið þið að fá ykkur eftir- rétt?“ Þegar hún hefur skoðað matseðilinn vandlega velur Jackie súkkulaðiköku og heldur síðan áfram: „Það er rómantískt að fera maka sínum óvænta gjöf. Maðurinn gerði dálítið yndislegt fyrir mig um daginn. Hann safhaði saman öllum handskrifúðu blaðsíðunum mínum að Hollywood Hus- bands og lét binda þær í leður.“ .Jackie, bækurnar þínar eru uppfúilar af frásögnum af framhjáhöldum, en þú sjálf hefúr verið gift Oscar Lerman í 20 ár. Hver er lykillinn að hamingjusömu hjónabandi?" „Ef ég lifði á þann hátt sem ég skrifa um þá hefði ég aldrei krafta tii að skrifa um það. Ég trúi á líf fyrir giftingu — lifðu lífinu þá, þannig að þú vaknir ekki upp við það einn daginn að þér finnist þú hafa misst af ein- hverju. Hjónaband mitt ER mjög gott,“ heldur hún áfram með hlýju í rómnum. Þetta hljómar eins og klisja en maðurinn minn er besti vinur minn. Mér finnst mjög GAMAN að tala við hann. Hann er gáfaður og skemmtilegur og hann gefur mér hugmynd- ir. Mér finnst eins og ég hafi ekki verið giff nema í örfá ár. Velgengni mín er velgengni hans af því hann hefur stutt mig frá upphafi. Þetta er rómantík." RÚV. SJÓNVARP 17.55 Ritmálsfréttir. 18.00 Nilli Hólmgeirsson. 49. þáttur um þennan skemmtilega prakkara. Sögumaður er örn Árna- son. 18.25 Börnin í Kandolim. 18.40 Litli höfrungurinn. Barnamynd. 18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir. 19.00 Staupasteinn. 19.30 Popptoppurinn. Efstu lög evrópsk/banda- ríska vinsældalistans leikin. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Þingsjá. 20.50 Annir og appelsín- ur. I þetta sinn fáum við að kynnast Fjölbrauta- skólanum á Akranesi. 21.15 Mannaveiðar. Þáttur í hinum þýska sakamálamyndaflokki. 22.05 The Double McGuffin. Bandarísk spennumynd frá 1979 með léttu ívafi. 00.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. STÖÐ II 16.25 Uppreisnar- mennirnir á fljótinu. White Water Rebels. 17.55 Valdstjórinn. Leikin barna- og unglingamynd. 18.20 Föstudagsbitinn. Blandaður tónlistarþáttur með viðtölum við hljóm- listarfólk og ýmsum upp- ákomum. 19.19 19.19. 20.30 Bjartasta vonin. Nýr, breskur gaman- myndaflokkur um ungan og efnilegan þingmann. 21.00 Þegar mamma kemur! Wait Till Your Mother Gets Home!. Mynd þessi fjallar á gam- ansaman hátt um hlut- verkaskiptingu kynjanna. 22.30 Hasarleikur. 23.15 Vargarnir. Wolfen. Einkaspæjari í New York fær það verkefni að rann- saka óhugnanleg og dul- arfull morð. 01.10 Apríldagar. The April Fools. Gamanmynd um kaupsýslumann sem býr við mikið ofríki á heimili sínu. 02.45 Dagskrárlok. RÚV. SJÓNVARP 14.55 Enska knattspyrn- an. 16.45 Á döfinni. 17.00 Spænskukennsla. 18.00 íþróttir. Umsjónar- maður: Bjarni Felixson. 18.15 í fínu formi. 18.30 Litli prinslnn. 18.55 Fréttaágrip og táknmálsfréttir. 19.00 Smellir. 19.30 Annir og appelsín- ur. Endursýndir þáttur frá 22. þessa mánaðar. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Lottó. 20.35 íslenskir sögustað- ir. Umsjón: Sigrún Stefánsdóttir. 20.40 Fyrirmyndarfaðir. 21.05 Maður vikunnar. 21.20 White Mama. Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1980. Myndin fjallar um ungan bílaþjóf sem vingast við aldraða konu sem er útnefnd til að gæta hans. 23.10 Sundlaugin (La Piscine) Frönsk kvikmynd með Alain Delon, Romy Schneider, Maurice Ronet og Jane Birkin í aðalhlut- verkum. Leikstjóri: Jacques Deray. Þetta er hádramatísk mynd um tvo karlmenn og tvær konur sem eyða tíma saman í sumar- bústað. 00.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. STÖD II 09.00 Með afa. Þáttur með blönduðu efni fyrir yngstu börnin. 10.30 Smávinir fagrir. Áströlsk fræðslumynd um dýralíf í Eyjaálfu. 10.40 Myrkviða Mæja. Teiknimynd. 11.05 Svarta Stjarnan Teiknmynd. 11.30 Bestu vinir. Top Mates. Nýr ástralskur myndaflokkur fyrir börn og unglinga í 5 hlutum 2. þáttur. 12.00 Hlé. 13.40 Fjalakötturinn. Kvikmyndaklúbþur Stöðv- ar 2. Brúðkaup. A Wedding. Blaðakona fylg- ist með yfirborðskenndu brúðkaupi hjá nýríkri fjöl- skyldu. Leikstjórinn Ro- bert Altman hefur látið margar góðar myndir frá sér fara en hápunkti náði hann á ferli sínum með gerð hinnar vinsælu myndar MASH. Aðalhlut- verk: Carol Burnett, Mia Farrow, Lillian Gish, Lauren Hutton, Geraldine Chaplin, Viveca Lindfors og Vittorio Gassman. 15.45 Ættarveldið. 16.30 Nærmyndir. Nær- mynd af tónskáldinu Atla Heimi Sveinssyni. Umsjón- armaður: Jón Óttar Ragn- arsson. 17.00 NBA - körfuknatt- leikur. Umsjón: Heimir Karlsson. 18.30 íslenski listinn. Bylgjan og Stöð 2 kynna 40 vinsælustu popplög landsins í veitingahúsinu Evrópu. Umsjónarmenn: Helga Möller og Pétur Steinn Guðmundsson. 19.19 19:19. 20.10 Fríða og dýrið. Nýr framhaldsmyndaflokkukr um samskipti fallegrar stúlku við afskræmdan mann sem hefst við í undirheimum New York borgar. 21.00 Á villigötum. Lost in I America. Grínmynd um par á framabraut sem ákveður að breyta lífs- háttum sínum. Aðalhlut- verk: Albert Brooks, Julie Hagerty, Garry marshall og Art Frankel. Leikstjóri: Albert Brooks. 22.30 Tracey Ullman. 22.55 Spenser. Ung kona sem fæst við vísindarann- sóknir ræður Spenser til þess að finna stolna skart- gripi og horfinn elskhuga. Spenser kemst brátt að raun um að ástæðan fyrir leitinni er ekki eingöngu ástarsorg. 23.40 Monte Walsh Lauf- léttur vestri með Le Marv- in í aðalhlutverki. Hann leikur uppgjafakúreka sem minnir um margt á hlutverk hans í myndinni Cat Ballou er færði hon- um Óskarsverðlaunin. Mótleikarar hans eru ekki af verri endanum, en það eru þau Jack Palance og franska leikkonana Je- anne Moreau. 01.15 Blekkingarvefur. Double Deal. Peter Stirl- ing á allt sem hugurinn girnist, peninga og völd. Hann safnar fallegum hlutum og nýjasta leik- fang hans er falleg eigin- kona. En konunni leiðist að vera safngripur og leit- ar eftir spennu utan hjónabandsins. Brátt mætir ungur maður til leiks og fara þá óhugnan- legir atburðir að gerast. Aðalhlutverk: Angela Punch McGregor, Louis Jordan og Diane Craig. Leikstjóri: Brian Kavan- agh. 02.50 Dagskrárlok. VIKAN 47 LAUGARDAGUR 30. JANÚAR FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.