Vikan - 28.01.1988, Síða 51
kjölfarið svo við ákváðum að breyta til.
„Tími til kominn
að gera aftur
eitthvað nýtt"
Hallgrímur Thorsteinsson á Bylgjunni
Fyrr á þessum vetri voru gerð-
ar róttækar breytingar á þætti
Hallgríms Thorsteinssonar,
Reykjavík síðdegis, sem sam-
kvæmt hlustendakönnunum er
einn alvinsælasti þátturinn í
hinni hörðu samkeppni sem
ríkir á milli útvarpsstöðvanna.
Áður var Reykjavík síðdegis
tveggja klukkutíma þáttur en
var styttur niður í einn klukku-
tíma og er nú á dagskránni á
milli kl. 18 og 19 alla virka
daga.
Vikan innti Hallgrím eftir því
hverju þessar breytingar sættu og
ekki stóð á svari.
„Þegar við fórum af stað með
þennan þátt á sínum tíma var
hann nýjung sem reyndist svo vel
að bæði Rás 2 og Stjarnan fylgdu
í kjölfarið með svipaða þætti. Rás
2 með Dægurmálaútvarpið og
Stjarnan með Mannlega þáttinn.
Okkur fannst að þar sem við vær-
um að nokkru leyti búin að missa
sérstöðuna væri tími til kominn
að breyta til.
„Nú er þátturinn meira þáttur
fréttastofu Bylgjunnar og Ljósvak-
ans en áður var. Samvinnan er
meiri og það er búið að þjappa
fréttaefninu meira saman. Strax
eftir fréttirnar klukkan 18 fjöllum
við ítarlegar um stærstu fréttirnar
en förum svo út í léttara frétta-
tengt efni. Hlutur tónlistar í þætt-
inum hefur minnkað en hún er
samt alltaf með í spilinu."
Hallgrímur er þaulreyndur
fréttamaður og hefur komið víða
við. Hann er 32 ára gamall Reyk-
víkingur af vestfirskum ættum
eins og hann orðar það. Hann
ólst upp í Vogunum og svo síðar
í Garðabænum en þaðan lá leiðin
til Bandaríkjanna þar sem Hall-
grímur nam fjölmiðlafræði við
Louis og Clark University í
Portland, Oregon.
Þegar Hallgrímur kom heim eft-
ir þriggja ára nám með BA gráðu
árið 1980 var hann ráðinn sem
blaðamaður að Vestfirska frétta-
blaðinu en staldraði stutt við þar.
Þá tóku við þrjú ár á fréttastofu
Ríkisútvarpsins en auk þess var
hann í undirbúningsnefnd fyrir
stofnun Rásar 2. Frá Rikisútvarp-
inu lá leiðin á Helgarpóstinn, þar
sem Hallgrímur var ritstjórnarfull-
trúi og síðar einn af eigendum
blaðsins.
Þegar Bylgjan hóf starfsemi
söðlaði hann enn um yfir á frétta-
stofuna þar og var skömmu síðar
gerður að fréttastjóra. í kjölfarið
fylgdi svo þátturinn Reykjavík
síðdegis sem náði miklum vin-
sældum strax í upphafi og er enn
á dagskránni alla virka daga þrátt
fyrir nokkrar breytingar.
Jólakílóin burt
TILBOÐ MEÐAN BIRGÐIR ENDAST.
OG þU FLÝGUR
í GEGNUM DAGINN
fi6Ss'd“u'mmUCklð'
/C' . ... Ummæll Jóns PálsT"
Hvernig á að nota
fjölskyldutrimmtækið rétt?
Burt meo aukakíló. «mg!
Æfið 5 mín. a dag.
Tll þesj aö ná árangrl veröur aö «efa hlnar þrjár
mlkllvaegu undlrstööuaeflngar daglega.
Eftlr aö byrjaö er aö aefa samkvæmt aeflngar-
prógramml mótast vaxtarlag líkamans af sjálfu sér.
Æflng I
Þessl æflng er fyrlr magavóöva og stuölar aö mjóu mlttl
Setjlst á saetið á trlmmtaeklnu, legglö fæturna undlr
þverslána, hendur spenntar aftur fyrlr hnakka. Látlö
höfuölö síga hægt aö gólfl. Efri hlutl likamans er
relstur upp og teygður í átt aö tám.
Mlkllwegt: Æflngu þessa veröur aö framkvæma meö
Jöfnum hraöa án rykkja. í byrjun skal endurtaka
æfinguna flmm slnnum, en sföan fjölga þeim f allt aö
tfu slnnum.
Þessl æflng er fyrlr handleggl og rassvööva.
Legglst á hnén á sætlö á trlmmtæklnu. Taklð báöum
höndum um vtnklana, handlegglrnlr hafölr beinlr og
stfflr allan tfmann. Teyglö úr fótunum þannlg aö setan
rennl út á enda, hnén dregln aftur aö vlnklunum.
Æflngln endurtekln a.m.k. flmm slnnum.
Æflng 3
Þessl æflng er tll þess aö þjálfa og móta lærvööva,
fætur og handleggl.
Setjlst á sætlö og taklö báöum höndum um
handföngln á gormunum og draglö sætlð að
vlnklunum. Teyglö úr fótunum og halllö efrl hluta
Ifkamans aftur og toglö f gormana. Haldlö gormunum
strekktum allan tfmann og spennlð og slaklð fótunum
tll sklptls.
Æflngln endurtekln a.m.k. tfu slnnum.
FJÖLSKYLDUTRIMMTÆKIÐ
™K" 2.290,-
ÁÐUR KR. 3.290,-
TOLLALÆKKUN KR. 300,-
AFSLÁTTUR KR. 700,-
SAMTALS KR. 1.000,-
Pöntunarsímar 91-651414 og 623535
Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00
Póstverslunin Príma, Box 63, 222 Hafnarfirði
Fótóhúsið, Bankastræti, sími 91-21556.
Opið kl. 10-18, laugard. 10-14.
S VISA S EUROCARD