Vikan - 28.01.1988, Side 53
Ríkissjónvarpið kl. 22.05. The Amazing Dr. Clitterhouse. Þaö eru gömlu stór-
stjörnurnar Humphrey Bogart og Edward G. Robinson sem fara með aðalhlut-
verkin í þessari bíómynd um afbrotafræðing sem missir heldur betur sjónar á
markmiðum sínum.
RÚV. SJÓNVARP
17.55 Ritmálsfréttir.
18.00 Nilli Hólmqeirsson.
18.25 Kattadagar. Finnsk
barnamynd.
18.35 Froskur í trjánum.
18.50 Fréttaágrip og
táknmálsfréttir.
19.00 Staupasteinn.
Níundi þáttur af þessum
geysivinsæla bandaríska
gamanmyndaflokki um
starfsfólk og fastagesti á
bar í Boston.
19.30 Popptoppurinn.
Efstu lög evrópsk/banda-
ríska vinsældalistans
leikin.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og
dagskrá.
20.35 Þingsjá.
20.50 Annir og appelsín-
ur. I þetta sinn fáum við
að kynnast því hvað
nemendur í Mennta-
skólanum í Kópavogi
eyða tímanum í.
Umsjónarmaður er Eiríkur
Guðmundsson.
22.15 Mannaveiðar.
Lögregluforinginn þýski
heldur áfram að eltast við
glæpamenn með tilþrif-
um.
22.05 The Amazing Dr.
Clitterhouse. Bandarísk
bíómynd frá 1938. Með
aðalhlutverk fara Edward
G. Robinson, Claire Trevor
og Humphrey Bogart.
Leikstjóri: Anatole Litvak.
Dr. Clitterhouse er af-
brotafræðingur sem
stofnar glæpaflokk til að
geta rannsakað glæpa-
menn og hegðun þeirra.
En ýmislegt fer öðruvísi
en til var stofnað því
hann verður sjálfur hel-
tekinn af glæpafíkn.
23.35 Útvarpsfréttir 1
dagskrárlok.
STÖÐ2
16.15 Gísling í Zanadu.
Sweet hostage. Geðsjúkl-
ingur sem sloppið hefur
út af hæli rænir ungri
stúlku og hefur hana á
brott með sér í einangrað-
an kofa fjarri manna-
byggðum. Aðalhlutverk:
Martin Sheen og Linda
Blair. Leikstjórn: Lee
Philips.
17.50 Föstudagsbitinn.
Blandaður tónlistarþáttur
með viðtölum við hljóml-
istarfólk og ýmsum upp-
ákomum.
18.45 Valdstjórlnn. Leikin
barna- og unglingamynd.
19.19 19.19.
20.30 Bjartasta vonin.
Breskur gamanmyndaf-
lokkur um nýríkan þing-
mann sem svífst einskis til
þess að ná á toppinn.
21.00 Krakkar í kaup-
sýslu. Óvanalegt er að
ungmenni gerist frum-
kvöðlar í viðskiptaheimin-
um en fyrirtækið Kidco
stofnaði Dickie Cessna
aðeins ellefu ára gamall.
Hann skipaði sjálfan sig
sem framkvæmdastjóra
fyrirtækisins og með að-
stoð systra sinna náði
hann að auka umsvifin
jafnt og þétt. Þessi mynd
er sönn og með því að
segja frá þessum athafna-
sömu og skynsömu ung-
lingum vildi framleiðandi
myndarinnar sýna að hinn
„ameríski draumur" er
veruleiki. Aðalhlutverk:
Scott Schwartz Cinnamon
Idles. Leikstjóri: Ronald F.
Maxwell.
22.10 Englaryk. Angel
Dusted. Seinni mynd
kvöldsins gefur okkur inn-
sýn í þá hrikalegu lífs-
reynslu sem foreldrar eit-
urlyfjasjúkra barna lenda
í. Hún fjallar um ungan
dreng sem þrátt fyrir
stuðning foreldranna og
góðan ásetning fellur aft-
ur og aftur í sama farið
og þar kemur að fíkn hans
hefur djúpstæð áhrif á líf
foreldra og systkina. Allir
meðlimir fjölskyldunnar
verða að endurskoða líf
sitt þegar grafist er fyrir
um orsök fíkninnar. Aðal-
hlutverk: Jean Stapleton,
Arthur Hill og John Putch.
Leikstjóri: Dick Lowry.
00.25 Minningardagurinn.
Memorial Day. Mike
Walker er lögfræðingur
og fjölskyldufaðir sem
lifir rósömu lífi. En ýmis-
legt kemur í Ijós þegar
hann hittir fyrrverandi
félaga sína frá tímum Ví-
etnamstríðsins og þeir
taka að rifja upp ógnir
stríðsins. Aðalhlutverk:
Mike Farrel, Shelley Fabar-
es, Keith Mitchell og
Bonnie Bedelia. Leikstjóri:
Joseph Sargent.
02.00 Dagskrárlok.
Siöð 2 kl. 16.15. Gísling i
Xanadu. Sweet Hostage.
Martin Sheen leikur hér
geðsjúkling sem sleppur
út af geðveikrahæli og
rænir ungri stúlku sem
leikin er af Lindu Blair.
Hann hefur hana á brott
með sér og heldur henni
fanginni i kofa fjarri
mannabyggðum. Eftir þvl
sem hún fer að kynnast
ræningja slnum minnkar
óttinn við hann og snýst
upp í ást á honum.
Siöð 2 kl. 21.00. Krakkar í kaup-
sýslu. Kidco. Sannsöguleg mynd
frá 1984 um Dickie Cessna sem
stofnaði fyrirtækið Kidco aðeins
ellefu ára að aldri. Með aðstoð
systra sinna náði hann að auka
umsvif sín jafnt og þétt þar til
hann var orðinn viðskiptajöfur og
varð þar með ameríski draumur-
inn holdgerður.
■■ JT
STJORNUFR E m H d 30
Fréttir Stjörnunnar vekja athygli. >
Stjörnufréttir eru alvörufréttir, fluttar á /
ferskan hátt. Fréttir fyrir fólk. £
Stjörnufréttir allan sólarhringinn: Kl. r 8, 10, 12, 14, 16 og 18 alla virka daga, kl. 10, 12 og 18 um helgar. Skínandi fréttir
á FM 102 og 104