Vikan - 14.12.1989, Síða 17
Stúlkumar vöktu verulega athygli viðstaddra eins og sjá má.
ÞOKKAGYDJUR
HOLLYWOOD
Hér dreypa stúlkurnar á kampavíni. Lengst til hægri er Lísa, síðan Ólöf, Elin, Bryndís,
Harpa, Sigrún, María og Kristrún. Á myndina vantar Sigríði.
MYNDIR OG TEXTI:
GUNNLAUGUR ROGNVALDSSON
Það hefúr verið fúllt út úr dyrum á
kynningarkvöldunum þremur, sem
Samúel hefur haldið vegna keppninn-
ar um titilinn ungfrú Hollywood.
Þrjár síðustu stúlkurnar voru kynntar
1. desember, en stúlkumar sem taka
þátt í keppninni em níu talsins og all-
ar af höfuðborgarsvæðinu.
Lokakeppnin fer fram á Hótel íslandi 21.
janúar, en fram að því verða stúlkurnar í
líkamsþjálfún í Stúdíói Jónínu og Ágústu,
en sú síðarnefnda hefúr séð um þjálfún
stúlknanna. Engin stúlknanna níu hefur
verið í sviðsljósinu áður, en átta þeirra eru
í skóla. Stúlkurnar heita Elín Reynisdóttir,
Guðrún Helga hárgreiðslumeistari hefur
séð um hárgreiðslu stúlknanna fyrir
myndatökur Samúels og fyrir kynning-
arkvöldin en Krista í Kringlunni hefúr
lagt keppninni liðsinni sitt.
Sigríður Laufey Gunnarsdóttir, Kristrún
Kristjánsdóttir, Bryndís Ólafsdóttir, Harpa
Sævarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Lísa Björk
Davíðsdóttir, Ólöf Halldórsdóttir og María
Guðrún Sveinsdóttir.
Mikill fjöldi fólks hefúr staðið að keppn-
inni auk Samúels og Hollywood, m.a. Hár-
greiðslustofan Krista í Kringlunni, Ferða-
skrifstofan Úrval og Útsýn, Flugleiðir og
tískuverslunin Cosmo, en stúlkunar hafa
klæðst fötum frá versluninni á kynningar-
kvöldunum.
Þann 14. janúar stendur til að kynna all-
ar níu stúlkurnar í Hollywood, en viku síð-
ar fer lokahátíðin fram. Þá verður valin
ungfrú Hollywood og hlýtur hún m.a.
lúxusferð til Hollywood í Bandaríkjunum
og fer jafnffamt til þátttöku í alþjóðlegri
fegurðarsamkeppni í Japan. Sólarstúlka
Úrvals verður valin og hlýtur hún tvær
utanlandsferðir en einnig verður valin
ljósmyndafýrirsæta Samúels sem hlýtur
utanlandsferð og fer í myndatöku hjá Hug-
rúnu Ragnarsdóttur, sem lesendur Vik-
unnar ættu að vera farnir að þekkja. □
Huld Ringsted snyrtiffæðingur farðar
dömurnar af lagni.
25. TBL. 1989 VIKAN 1 7