Vikan - 14.12.1989, Side 32
íslenskt barnarokk á hljómplötu:
ROKKLINGARNIR
Einn sagði Birgir að þeir hefðu þó vitað
um fyrirfram. Það er Júlíus Daníelsson frá
Grindavík sem er 12 ára og elstur barn-
anna á plötunni. Júlíus er í hljómsveit í
Grindavík og höfðu þeir Birgir og félagar
heyrt hann syngja og voru hrifnir af.
Ástrós, sem syngur í dúettinum um Nínu
og Geira, átti í upphafl bara að syngja eina
línu en þegar hún kom í upptökuverið
kom í ljós að hún hefur þessa yndislega
sykursætu rödd. Niðurstaðan varð sú að
hún syngur í öllum lögunum nema tveim.
Sá yngsti er ekki nema 6 ára og heitir
Gunnar Örn. Hann kom í upptökuverið
næstsíðasta daginn og Birgir spurði hann
hvort hann kynni ekki lagið um Nínu og
Geira. „Nei,“ svaraði stráksi. Birgir réttir
honum þá vélritað blað með textanum á,
strákur horfir lengi á blaðið og segir svo:
„En ég kann ekki að lesa.“ Hann lærði svo
lagið og textann á fimm klukkutímum og
geri aðrir 6 ára hnokkar betur. Birgir sagði
að þetta væri líklega dýrasta barnaplata
sem gefin hefði verið út hér á landi og
væri kostnaðurinn kominn í þrjár og hálfa
milljón, en hann sagði að það sem sér
fyndist vera mestur ávinningur með plöt-
unni væri að krakkar læra öll þessi lög af
henni og þannig munu þau varðveitast um
langan tíma. □
og dansa og koma fram í sjónvarpi.
Skemmst er frá að segja að um 160 börn
létu vita af sér og úr þeim hópi voru 24
börn valin og úr þeim hópi síðan 5 þannig
að börnin þurftu að fara í gegnum mikla
síu áður en þau voru valin til að syngja á
plötunni.
Um búninga Rokklinganna sáu Dóra
Einarsdóttir og Elísabet Bjamadóttir.
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYND: GRlMUR BJARNASON
Margir muna án efa eftir Mini
pop plötunum sem voru svo
óhemju vinsælar á íslandi
fyrir örfáum árum og margir
spurðu sig þá: Hvers vegna ekki íslenskar
Mini pop plötur? Birgir Gunnlaugsson,
barnakarl og hljómlistarmaður í tuttugu
ár, dreif, ásamt félögum sínum í BG hljóm-
plötuútgáfunni, í að hrinda þessari hug-
mynd í framkvæmd og nú er komin út alís-
lensk „Mini pop“ plata sem heitir Rokk-
lingamir.
Á plötunni syngur hópur af börnum
mörg af okkar þekktustu og vinsælustu ís-
lensku rokklögum. Þetta eru lög eins og
Týnda kynslóðin, Rabarbara Rúna, Ég er á
leiðinni, Eina ósk og Sagan af Nínu og
Geira, en alls eru lögin 27. Krakkarnir,
sem syngja á plötunni, eru á aldrinum
6-12 ára og koma víða að en hluti þeirra
kemur úr Kór Seljaskóla og hafa þau áður
sungið með Birgi og félögum á plötunni
Jólaballið — sem er í raun jólatrésskemmt-
un frá A-Ö - og kom út í fýrra, einnig á
spólunni Bamaleikir sem kom út í sumar
og er ætlað að vera afþreying fýrir börn
sem eru að ferðast í bíl. Síðan auglýsti
Birgir í DV eftir krökkum sem vildu syngja
32 VIKAN 25. TBL.1989