Vikan - 14.12.1989, Blaðsíða 48
skinnsskóm og á gærum og syngja um
Gullfoss og Geysi. Við getum alveg gert
betur en við höfum sýnt. Og án þess að
lasta fólk á landsbyggðinni þá eru dóm-
nefhdirnar alveg fáránlega samansettar.
Fólk má ekki hafa vit á tónlist, ekki vinna
við tónlist, ekki vera skyidt hinum og
þessum og ég veit ekki hvað. bað er eins
og tóniistarmenn séu annars flokks fólk.
Hvernig heldurðu að útkoman hjá íslenska
handboltaiandsliðinu væri ef eingöngu
tónlistarmenn myndu velja það. Það má
líkja þessu saman. Það á að mínu mati að
láta tónlistarmenn hafa eitthvað að segja
um hvaða lag er valið.“
Nú hef ég heyrt fólk segja að það sé
kominn tími til að þú farir í keppnina.
Hvað segir þú um það?
„Ég væri tilbúinn til að fara með rétta
lagið en það er eins og allir vita erfitt að
spá um hvað sé rétta lagið. Ég tel að hing-
að til hafi ég verið með nokkuð sterk lög.
Við eigum tvímælalaust að halda áfram að
taka þátt í Eurovision."
En ef við snúum okkur að öðru. Er
erfitt að vera þekktur á íslandi?
„Það var skrítið fyrst en það kemur ekki
við mig núna. Mér hefur tekist nokkuð vel
að halda einkalífl mínu fyrir mig eftir að ég
eignaðist fjölskyldu en hérna áður þegar
maður var að byrja þá hafði maður bara
gaman af athyglinni enda ekki um neinn
annan að hugsa en sjálfan sig. Það segir sig
sjálft að maður hleypir ekki hverjum sem
er að sér og ég er líklega með ákveðna
grímu dags daglega sem fellur innan um
íjölskyldu og vini. Ég þekki gífurlega
marga en eins og flestir á ég fáa en
mjög góða vini. Ég virka líklega mjög stuð-
andi á marga því ég er mjög ákveðinn, en
ég tel mig ekki hrokafullan. Ég er mjög
harður á mínu en ég er líka fyrsti maður til
Björgvin Halldórsson ásamt söngvaranum Rod
Stewart, sem tók með honum lagið á sviði
Broadway hér um árið. Davíð Oddsson borgar-
stjóri var meðal viðstaddra.
Þegar Fats Domino kom hingað til tónleika-
halds kom það í hlut Björgvins að sjá til þess að
allur aðbúnaður fyrir stórstjömuna væri fyrsta
flokks. Það tókst svo vel, að Domino kom fljót-
iega aftur.
að viðurkenna ef ég hef haft rangt fyrir
mér. Ég er mjög kröfuharður og geri sömu
kröfur til annarra og ég geri til sjálfs míns.
Flestir hafa skoðun á því hvernig ég er en
hana hafa þeir oftast myndað úr fjölmiðl-
unum án þess að þekkja mig nokkuð."
Hvað gerirðu þegar þú átt frí ef það
kemur fyrir?
„Þá horfl ég á kvikmyndir, les og ferðast.
Svo hef ég gaman af tæknilegum hlutum,
er hálfgert tækjafrík sem kemur líklega af
því að ég fékk aldrei bíladellu. Við eigum
að nýta tæknina eins og við getum til að
gera okkur líflð auðveldara."
Ekki fyrir alla
að vera í þessum bransa
Nú er dóttir þín, Svala, byrjuð að
syngja með þér. Heldurðu að hún feti
í þín fótspor?
„Börnin mín eru mjög músíkölsk. Svala
vildi fá að syngja á jólaplötu sem kom út
fyrir tveimur árum og ég sagði henni að ef
hún treysti sér til þess þá mætti hún það.
Nú hún gerði það og nú syngur hún lag á
jólaplötunni minni fyrir þessi jól. Ég ýti
ekki undir börnin mín og bý ekki til áhuga
á bransanum hjá þeim en ef þau vilja það
sjálf þá stend ég ekki í vegi fyrir þeim. En
það er alls ekki fyrir alla að leggja þetta
fyrir sig. Ég ætlaði aldrei að fara út í þetta
heldur álpaðist ég út í þetta í Flensborg
þegar ég var 16 ára. En þetta hefur verið
góður skóli og ég ætla að halda áfram eins
lengi og áhuginn er fyrir hendi og meðan
árangurinn er góður. Nú ef hann verður
verri þá bara prófa ég eitthvað nýtt. Ef ég
hefði annað val þá myndi ég hiklaust velja
sömu braut en að sjálfsögðu með vissum
breytingum." □
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Þú átt von á hrósi fyrir vel
unnið verk. Viðbrögð þín fara
eftir því hvort þér finnst þú verð-
skulda lofið. Þetta er líklegttil að
verða þér hvatning til dáða og
framhaldið markar tímamót. Þú
hefðir gott af að leiða hugann að
fleiru en veraldlegum efnum yfir
hátíðirnar.
Nautið
20. apríl - 20. maí
Fólk hyllist til að halda að
þú hafir ótakmarkaðan tíma til
að sinna alls kyns kvabbi. Þótt þú
hafir gaman af að gera öðrum
greiða skaltu ekki láta spilla fyrir
þér jólafriðnum. Sjái aðrir ekki
sóma sinn í að stilla tilætlunar-
seminni í hóf verður þú að sjá um
að setja mörkin.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Mótvindur getur verið
hressandi þótt hann sé óþægi-
legur meðan mest gustar. Þú átt
í vændum að læra af mistökum
sem reynast þér ekki eins dýr-
keypt og í fljótu bragði virðist.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Vertu jákvæðari og bjart-
sýnni en að undanförnu. Þú ættir
að leggja áherslu á það sem vel
tekst í stað þess að tönnlast í sí-
fellu á þínum eigin mistökum og
annarra. Þú hefur áhrif víðar en
þig grunar.
tMeyjan
24. ágúst - 23. sept.
Það segir til sín hversu
hart þú hefur lagt að þér. Nú er
tími til kominn að sinna eigin
þörfum. Þú sérð ekki eftir því aó
verðlauna þig ærlega og getur
með góðu móti látið aðra njóta
góðs af. Leggðu höfuðið í bleyti,
finndu út til hvers hugurinn
stendur og láttu til skarar skríða.
Vogin
24. sept. - 23. okt.
Freistingarnar hlaðast að
þér þessa dagana og þú átt bágt
með að standast þær. Þér helst
illa á peningum og mátt búast við
að nokkur átök kosti að velja og
hafna. Láttu samt eftir þér eitt-
hvað af því sem hugurinn girnist.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Notalegt tímabil er fram-
undan og ánægjustundir fjöl-
skyldufólks venju fremur margar.
Svo virðist sem allt leggist á eitt til
að gera jólahaldið ánægjulegt og
ættir þú að meta það þar sem
slíkt er hreint ekki sjálfgefið. Þú
býrð lengi að þessum meðbyr ef
þú kannt að nýta þér hann.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Þú verður að stilla
kröfunum í hóf og skalt hafa
hugfast að sælla er að gefa en
þiggja. Ekki á þetta einungis við
um áþreifanleg verðmæti og á
næstunni gefast þér ófá tækifæri
til að styrkja tengslin við þá sem
þér eru kærir.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Þú verður störfum hlað-
inn og finnst þú ekki sjá fram úr
því sem gera þarf. Ekki er víst að
öllum þyki það nauðsynlegt sem
þú ert að sýsla en ef til vill getur
þú farið bil beggja svo allir verði
ánægðir. Þú getur ekki ætlast til
að aðrir sýni hugðarefnum þín-
um jafnmikinn áhuga og þú.
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Ýmsir viðburðir eru (
vændum en ekki gera þeir allir
boð á undan sér. Þú ættir að láta
slag standa, taka þátt í því sem
fram fer en láta ekki á þig fá þótt
ekki verði allt eins og þú hafðir
hugsað þér. Ánægjuefnin leynast
víðar en þig grunar og þú hefur
gott af að kynnast því.
Ljónið
23. júlí - 23. ágúst
Notaðu hátíðina til að
hafa samband við fólk sem þú
metur mikils en þér finnst þú vera
í þann veginn að missa tengslin
við. Fullvíst má telja að þér verði
vel tekið og þarf ekki að verða
fyrirhafnarsamt. Þetta auðgar lif
þitt og þú glöggvar þig á hvað þú
metur í rauninni mest.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Þér verður það á að full-
ryrða of mikið og færð hörð
viðbrögð. Þér er hollast að draga
í land hið snarasta til að halda
friðinn enda lítið vit í að láta ekki
stærra mál spilla fyrir þér. Forð-
astu óhóf í mat og drykk. Þér
kemur til með að líða betur ef þú
lætur vera að kýla vömbina.
5TJORMU5PA
25. TBL. 1989 VIKAN 45