Vikan


Vikan - 13.11.1941, Síða 11

Vikan - 13.11.1941, Síða 11
VIKAN, nr. 46, 1941 9 Lenti á flœking'. Jerry McLeran, 11 ára gamall drengur, er að borða mat, sem lögreguþjónar gáfu honum. Lögregluþjónamir fundu hann sofandi í trjágöngum í Chicago. Hann sagðist hafa verið rekinn að heiman fyrir tveimur mánuðum, vegna þess að foreldramir vildu ekki hafa neitt með sig að gera. Nágrannar McLerans hjónanna sögðu, að þau væm flutt og ættu sjö öhnur börn og þessum dreng þeirra virtist alveg ofaukið í fjöl- skyldunni. Hann hlær hjartanlega. Mike McCan hlær innilega að benzinskömmt- uninni. Hestur dregur bílinn hans, og þar eð engin skömmtun er á heyi, horfir Mike björtum augum á framtíðina. Mike er leigubíl- stjóri í New York. Fálki I flughemum. Thomas McClure liðsforingi er hér með „Þrumu- fleyg", fyrsta fálkann, sem „gengur í“ flugher Bandaríkjanna. Það á að þjálfa „Þrumufleyg" og aðra fálka til að berjast við fallhlífar- hermenn og drepa bréfdúfur óvinanna. Bandaríkjaskip á Reykjavíkurhöfn. „Esjan er yndisfögur utan úr Reykjavik" — þessi orð verða alltaf sönn, hvemig sem veltur, hvað stríðið og „ástandið" snertir. — Hér sést Reykjavíkur- höfn í gegnum gaddavirsgirðingar. Mynd þessi hefir birzt í amerískum blöðum og segja þau, að á höfn Reykjavikur liggi tundurspillar frá Bandaríkjunum, hinir gráu varðhundar ameríska flot- ans, sem eigi að vera útverðir Vesturálfu gegn innrás Þjóðverja. Þetta er ein af fyrstu mynd- unum frá Islandi, sem birzt hafa í amerískum blöðum, síðan Bandríkin tóku við vemd landsins. Grace Moore fær heiðursmerki. Söngkonan Grace Moore hefir fengið æðsta heiðursmerki Mexico, sem kallað er „Azteca-uglan". Henni var afhent það í New York í tilefni af ferð, er hún fór suður til Mexico. Sendiherra Mexico í Bandaríkjunum, Rafael de la Colina hershöfð- ingi, afhenti henni merkið. Jerry litli eignast heimili. Hér er önnur mynd af „heimilislausa Jerry", litla drengnum, sem lögregluþjónarnir fundu í trjágöngun- um. Nú hafa Dan R. Creamer og kona hans í Chicago tekið dreng- • inn að sé. Þau tóku hann sér í sonar stað, þegar þau höfðu lesið i blöðunum, að foreldrar hans hefðu rekið hann að heiman, og að hann hefði sofið úti allt sumarið.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.