Vikan


Vikan - 04.03.1943, Blaðsíða 1

Vikan - 04.03.1943, Blaðsíða 1
„Oli smaladrengur** aftur á leiksviði í Reykjavík. Árið 1916 setti frú Stefanía Guðmundsdóttir leikkona þennan barnaleik á svið, til ágóða fyrir Landsspítala- sjóðinn. Nú hefir Leikfélag Reykjavíkur tekið hinn vinsæla sænska ævintýraleik aftur til sýningar og eru dætur frú Stefaníu, Emilía Borg og Þóra Borg Einars- son, leikstjórar. AÐ er þarft verk, sem leikfélagið hefir nú tekið sér fyrir hendur: að gefa all-stpr*um hóp barna kost á því að koma fram á leiksviði, því að slíkt þjálfar þau á ýmsan hátt, og þó er hitt meira virði, að bömum og unglingum bæjarins gefst tækifæri til að sjá heilbrigðan leik við sitt hæfi. Það er svo lítið gert fyrir börnin, fáar skemmtanir sniðnar fyrir þau, að með uppfærslu þessa leiks er bætt úr brýnni þörf. Bersýnilegt er, að mikil alúð hefir verið lögð við allan undirbúning og fara leikendur furðu vel og smekklega með hlutverk sín. Frú Stefanía Guðmundsdóttir leikkona. Leikendur í „Óla smaladreng" 1916: Frá vinstri: Agústa Þorvarðardóttir, Gunnar Bjarnason, Ásta Norðmann, Anna Borg Reúmert, (fyrir aftan hana:) Elín Hafstein, Svanhildur Þorsteinsdóttir (sitjandi), Sigríður Þorvarðardóttir (sitjandi), (fyrir aftan hana:) Kagnheiður Hafstein, Gottfreð Bernhöft, Axel Blöndal, Thor Thors, Sváva Blöndal, Walter Á. Sigurðsson (fyrir framan hann, með brúðu:) Þóra Borg Einarsson, Ásgeir Jónsson, Emilía Borg, Ásthildur Brism, (aftari röð:) Margrét Thors, Fanney Egilsson, Ásta Jónsd., (litlu telpumar þrjár:) Áslaug Ásgeirsd., Áslaug Borg, Jórunn Norðmann’

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.