Vikan


Vikan - 25.03.1943, Qupperneq 2

Vikan - 25.03.1943, Qupperneq 2
VIKAN, nr. 12, 1943 Pósturinn Kæra Vika. Hvað heita þeir bátar frá norður- og austurlandi, sem stunda sjóróðra frá Sandgerði á . þessari yfirstand- andi vertíð ? — Kær kveðja. Trausti. Svar: Norðanbátarnir heita: Bald- vin Þorvaldsson frá Dalvik, Barði og Vísir frá Húsavik, Kári Sölmundar- son og- Brynjar frá Ólafsfirði. — Austanbátamir heita: Einir, Reynir, Víðir og Hallur frá Eskifirði, og Helgi Hávarðsson frá Seyðisfirði. Kæra „Vika“! Viitu gjöra svo vel og birta í næsta tölublaði heimilisfang mannsins, sem nú nýlega var getið i grein, sem birt- ist í tímaritinu „tJrval" og var kall- aður „bezt vaxni maður í heimi", nafn hans er Charles Atlas. Kraftaaukningar-áhugamaður. Svar: Heimilisfang hans í Ame- riku vitum við ekki, en í auglýsingu, sem reyndar er ekki ný, í ensku tíma- riti, auglýsir hann það þannig: Charles Atlas (Dept. 25/Mj, 2, Dean Street, Lonfdon, W. 1. Þar mun hafa verið einhver deild frá honum, eða í sambandi við hann, en hvort hún er starfandi-ennþá, getum við ekkert sagt um. Akureyri, 23. marz 1943. Kæra Vika. Við vitum, að þú svarar svo mörg- um spumingum. Okkur langar til að spyrja þig að dáltilu. Er réttara að segja: „Farðu og kauptu einn bjór“ en „farðu og keiftu einn bjór“? Við óskum eftir svari sem fyrst. Svar: Það er rétt að segja: „Farðu og ke.vptu einn bjór“! Siglufirði 8/3 1943. Herra ritstjóri! Viljið þér gjöra svo vel að koma þessu á framfæri: Við undirritaðar óskum eftir að komast í bréfasam- band við pilt eða stúlku á aldrinúm 13—16 ára. Helzt úr Reykjavik eða Vestmannaeyjum. Sigríður Júlíusdóttir, Háveg 9, Siglufirði. Súsanna Þorláksdóttir, Háveg 10, Siglufirði. strengingu skinnsins. I hljómsveit. em venjulega 2—3 pákur i mismun- andi tónhæðum. Dr.theol. JÓ\ HELGASON. Árbækurnar skýra frá öliu því helzta, er gerzt hefir í Reykja- vik i 150 ár. Skrítlur. Dmkkinn maður stöðvgði leigubil, steig inn, en' var þá svo óheppinn að detta út um hinar dymar. Hann stóð strax á fætur, snéri sér að bílstjór- anum og sagði grafalvarlegur: „Hvað verður þetta mikið.“ „Ég er ekki ánægður með þessar myndir. Ég líkis apa á þeim.“ Mynda- smiðurinn leit hæðnislega á manninn og svaraði: „Þér hefðuð átt að hugsa út í það áður en þér létuð taka mynd- irnar.“ Akureyri, 8/3 ’43. Kæra Vika! Mér þætti mjög vænt um, ef hægt -væri að leysa úr tveim spurningum mínum við tækifæri. Spumingarnar eru þessar: 1. Hvaða hljóðfæri er „pákur“? Hljóðfærið er í Útvarpstíðindum nefnt meðal annara hljóðfæra 1 út- varpshljómsveitinni nýju. 2. (Þessa spurningu birtum við ekki fyrr en við svörum henni, ef það verður hægt). Með fyrirfram þökk, og beztu þakkir fyrir margan fróðleik í Vik- unni. Söngelskur. Svar: Eftirfarandi upplýsingar höfum við fengið um þetta hljóðfæri: Pákur eru einskonar pottar á stærð við þvottapotta og eru þeir gerðir úr kopar eða málmblöndu. Yfir opið er strengt skinn, þannig, að strekkja má og slaka á því á víxl. Tónninn er gerður með þvi að slá á skinnið með kyifum. Tónhæðin markast af Ný matreiðslubók eftir HELGU SIGURÐARDÖTTUR: Kolanámumaður. Ungur enskur námumaður á vagni á leið niður í kolanámu eina í Englandi, til þess að sækja þangað „svarta demanta", eins og Englendingar kalla kolin stundum. Lærið ú inatbúa Framan vió bókina hefir dr. Júlíus Sigurjónsson skrifað kafla um næringarefnafræði. Bókin er mjög mikið aukin og breytt frá fyrri útgáfu og því í rauninni alveg ný bók. Aftan við hana er næringarefnatafla og tafla yfir vitamín og sölt. Bókin er 214 bls. prentuð með smáu en skýru letri á góðan pappír. Tvær nýar bækur: Haralds Níelssonar fyrirlestrar III: Gunnar Gunnarsson: Siðmenning — Siðspilling. Kostar 3 kr. FOLKS TALES from Iceland and other Countries, eftir H. M. Scargill Ph. D. — I þessari litlu bók eru sjö þjóð- sögur íslenzkar og útlendar. Kosta kr. 2.75 FÆST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM. Bókaverzlun ísafoldar

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.