Vikan - 22.04.1943, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 16, 1943
9
Á vígstöðvunum við landamæri Burma og Indlauds senda bandamenn
hermönnunum oft vistir með flugvélum og kasta þeim þá niður í fall-
hlífum.
Fjallahermenn á heimleið, eftir að hafa verið að æfingum næturlangt.
Vopnin eru flutt á múlösnum, þegar ekki er hægt að koma við vélknúnum
farartækjum.
Amerísk birgðastöð í Ástralíu. Skip bandamanna flytja birgðir fyrir her
þeirra út um allan heim, og víða verður svo að flytja þær með jám-
brautum langt inn í land.
Skíðahersveitir. Amerískir hermenn æfa sig á skíðum. Þeir eru 9500 fet
fyrir ofan sjávarmál í fjöllunum skammt frá Colorado.
Kaupmaður einn í New York setti upp í verzlun sinni spjald, sem á stóð,
að enginn mætti kaupa meira en eina dós af hverri tegund af niður-
suðuvörum.
Frú Chang Kai-shek heldur ræðu fyrir um 17000 manns í Madison Square
Garden í New York. •