Vikan - 29.04.1943, Síða 11
VIKAN, nr. 17, 1943
11
--- Framhaldssaga: —-----------------
|“ CalFT eða ÓGIFT
í
•'...................... Eftir Betsy Mary Croker
„Sem ég er lifandi manneskja, hún grgetur ekki!
Hafið þér nokkurn tíma heyrt slíkt og þvílíkt?"
hrópaði frú Holt steinhissa.
Hún, sem sjálf hafði grátið svo mikið, gat ekki
skilið, að það er til sorg svo sár og djúp, að
engin tár geta mildað hana.
Loksins, er Madeline kom almennilega til sjálfs
sin, var Lawrence allur á bak og burt. Hún fór
inn í svefnherbergi drengsins og aflæsti á eftir
sér.
Sorg hennar var táralaus. Söknuðurinn yfir
inissi barnsins varð margfalt sárari fyrir það, að
henni fannst hún sjálf eiga einhverja sök á því,
hvernig fór.
Hún dvaldi svo lengi við dánarbeð drengsins,
að frú Holt var orðin dauðhrædd um, að eitthvað
hefði orðið að henni. Þegar leið að kveldi kom
hún með te og bað Madeline að opna og drekka
það.
. „Vagninn, sem flytja á yður til London, bíður
fyrir utan. Herra Wynne sendi hann. Nú skuluð
þér. drekka þetta, áður en þér farið. Það er eng-
inn bættari, þótt þér verðið veik Iíka.‘‘
Henni tókst að lokum að fá hana til að opna,
en teið gat hún varla bragðað, og það var fyrst
eftir miklar fortölur, að hún fékkst til þess að
fara heim.
Frú Holt var vön að fá sinu framgengt. Hún
sagði Madeline að nú skyldi hún fara heim og
hvila sig, en koma svo aftur, þegar jarðað yrði.
„Þá það,“ sagði Madeline, einkennilega fast-
mælt, og studdist upp við dyrastafinn, svo að
hún dytti ekki. „Ég fer þá heim og segi pabba
allt. Svo kem ég aftur á morgun."
Og svo fór hún, án þess að hafa fellt eitt
einast.a tár við dánarbeð Harry litla.
Þegar hún kom heim, líkari vofu en lifandi
manneskju, tilkynnti þjónninn henni að miðdegis-
Verðurinn væri tilbúinn. Faðir hennar hafði verið
I rúminu allan daginn. Þjónninn lét enga undrun
í ljósi yfir útliti hennar, til þess var hann allt
Of vel að sér í starfi sinu.
Hún fór þó ekki inn að borða, heldur beint í
rúmið og þar var hún næstu sex vikurnar; hún
hafði smitazt af barnaveiki við dánarbeð drengs-
inð átns.
Allir héldu, að henni hefði orðið kalt um kvöld-
ið, er ballið var, enginn af þjónunum sagði eitt
orð um ferðalag hennar, svo að það var algjört
leyndarmái. Smátt og smátt tíndist allt starfs-
.fólkið í burtu úr húsinu, er það fréttist, að Made-
line væri með barnaveiki. Meira að segja Josefine
fór líka og lét hjúkrunarkonu um að gæta Made-
line. Að lokum var enginn eftir nema West gamli
og einn eða tveir þjónar.
Þeir voru fáir, gestirnir af dansleiknum, er
spurðu um líðan Madeline, barnaveiki er hræði-
legur sjúkdómur, sem allir eru hræddir við. En
margir skrifuðu og létu í ljósi samúð sina, og
í hvert skipti, sem West gamli kom í gildaskál-
ann, hópuðust karlmennirnir í kringum hann og
spurðu um líðan hinnar skemmtilegu og lífsglöðu
dóttur hans.
Þótt undarlegt megi virðast, var Wynne mála-
flutningsmaður í hópi þeirra, er oftast spurðu
og að því er virtist af mestum ákafa um líðan
Madeline, og daginn, sem enginn hugði henni líf,
kom hann meira að segja héim í húsið til þess
að spyrja um hana.
Allt heldra fólk borgarinnar var fyrir löngu
komið til baðstaðanna, aðeins Wynne var ennþá
kyrr. West gamli hitti hann daglega í gildaskál-
anum, og þvi oftar, sem hann sá hann, þvi betur
féll hann honum í geð. Wynne spurði alltaf af
svo mikilli samúð um líðan Madeline, sem hann
þó varla þekkti, hlustaði af mikilli samúð á það,
sem læknamar höfðu sagt, og spurði, hvort eng-
inn hefði neinn grun um, hvar hún hefði tekið
veikina.
En það voru ekki einungis veikindi Madeline,
sem gerðu Robert West áhyggjufullan. Mikill
hluti auðæfa hans var í stórhættu. Uggur manna
í Ástraliu jókst stöðugt, og hann vissi, að á hvaða
augnabliki sem væri gæti hann orðið eignalaus
maður, að heita mátti. Undir eins og Madeline
yrði frisk, ætlaði hann að taka hana með sér til
Ástralíu, svo að hann gæti sjálfur fylgzt með
málum sínum þar.
Hann gerði þegar ýmsar sparnaðarráðstaf-
anir. Hann hætti við að kaupa skartgripi, sem
hann var búinn að panta, seldi alla hesta sína
nema tvo og sagði upp leigu á húsinu, sem þau
bjuggu í. Það var allt of stórt, sagði hann, til
þess að geta verið heimilislegt og þar að auki
vantaði ýms þægindi. Strax og Madeline var
ferðafær, fluttu þau til Brighton, og þar sem
smithættan var liðin hjá, fór þjónustufólkið með
þeim. Þau settust að í einu bezta gistihúsi í borg-
inni. Þann fyrsta september fékk Madeline I
fyrsta skipti leyfi til þess að fara í smáökuferð.
Hún var óneitanlega mikið breytt. Frísklegi litar-
hátturinn var horfinn, augun lágu djúpt og hún
var kinnfiskasogin. Fegurð hennar hafði mjög
látið á sjá.
*
West gamli hafði svo mikið að gera í London,
að það var auðvelt fyrir Madeline að komast úr
bænum, án hans vitundar, og heimsækja frá Holt.-
„Ég hefi verið veik, annars hefði ég komið
fyrr,“ sagði hún frú Holt, er þangað kom.
„Það er auðséð á yður,“ sagði frú Holt, óvenju
þýðlega. „Já, það sést sannarlega á yður, aum-
inginn, þér hafið elzt um mörg ár og eruð ekki
annað en skinn og bein. I guðsbænum setjist þér!"
bætti hún við, þreif lyklana sína og fór fram
og sótti glas af vini handa Madeline, sem virtist
' vera að hníga niður.
„Nei, verið þér ekki að þessu, ég fer strax
aftur. Segið mér aðeins, kæra frú Holt, hvar er
Harry litli grafinn?"
„Svona, fáið yður sæti,“ sagði frú Holt ákveðin
og ýtti henni niður í stólinn. „Wynne ætlaði fyrst
að láta jarðsetja hann í ættargrafreit sínum í
Kent, en það var svo langt að fara, svo að hann
lét jarða hann í kirkjugarðinum i Mark Norton
og setja fallegan stein á leiðið." Svo lýsti hún
fyrir Madeline allri athöfninni og sagði að lokum:
„Því eruð þér ekki svartklædd ?“
„Ég hefi ekki hugleitt það, ég hefi verið svo
veik og haft um margt að hugsa, en nú, er þér
hafið minnzt á það, er ég ákveðin í að klæðast
svörtu."
„Ég er alveg hissa, að yður skyldi ekki detta
það í hug. Það er þó venjulega það fyrsta, sem
fólk gerir," sagði frú Holt efablandin.
„Það getur vel verið, undir öðrum kringum-
stæðum," sagði Madeline. „En nú verð ég að
fara, kæra frú Holt. Þér hugsið illt um mig og
eflaust á ég það líka skilið."
„Ekki vil ég bera á móti því. Annars má yður
og yðar líkum standa á sama um álit mitt."
„Þér voruð Harry litla svo góð, voruð honum
allt það, sem ég átti að vera honum. Ég get ekki
!'■
|
j Minnsíu ávallt
\ mildu sápunnar
i
5
I
Regum
ÍiS
HH :ft Xo vw m |i s í 3 tannpasta hreins- ar fágar og gerir tennurnar hvítar. Skilur eftir hress- andi og frískandi bragð.
1 '■Kl
Heildsölubirgðir:
Agnar Norðfjörð & Co.h.f. Sími 3183.
/ mmmmmmmmmmsmmsmsi
NUFIX
varðveitir hár yðar og
auðveldar greiðsluna.
Eyðir flösu og hárlosi.
Heildsölubirgðir:
Agnar Norðfjörð & Co. h.f.
Lækjargötu 4. Sími 3183.
sveiníEamd
VESTURGÖTU 14 - Sími 3632
Hefir ávallt fyrirliggjandi:
KÖKUR,
BRAUÐ,
KRINGLUR,
TVÍBÖKUR
o. fl.
Sendum gegn póstkröfu
um land allt.
• Góðar vörur.
• Sanngjarnt. verð.