Vikan


Vikan - 12.08.1943, Page 1

Vikan - 12.08.1943, Page 1
Nr. 32, 12. ágúst 1943. 9« En þaðan koma Ijós Þetta er ekki kveðið um rafveiturnar okkar, en má vel heimfærast upp á pær — jafnvel pótt ljósin séu stundum dauf! Sama skáld- ið, sem kvað um ljósin loga- skæru, orti líka ógleyman- legan andvökusálm og sagði í honum: „Myrkrið er manna fjandi, meiðir pað líf og sál, sídimmt og sípegjandi . . .“. Islendingar búa við miklar andstæður á ýmsum sviðum: Hjá þeim er í nábýli eldur og ís og oft hinn fegursti gróður við jökulrætur. Skammdegið grúfir hel- þungt á þeim og leggst á sálina og sinnið, og margar eru þær stundirnar, þegar þeim hefir fundizt næturhimininn vera „helltur fulliu- af myrkri“. En þeir hafa líka búið við birtu og yl. Sumarið er stórgjöfult á bjartar nætur, hina fullkomnu andstæðu skammdegisins. Þá hverfur doðinn og dnmginn, þá verður fólkið létt í lund, þá nýtur það enn betur birtunnar, af því að það man vel eftir myrkrinu og finnur þess vegna glöggt, hvílik guðsblessun heiðríkjan er. Enda er ljósþráin rík í Islendingnum. Hann dreymir um vor og sumar, hann bíður vonglaður eftir bjartari t.imnm og betri. Tækni hins nýja tíma er nú að hjálpa til við það að bægja burtu myrkrinu, sem hefir grúft yfir Islendingum. Ljósið kom í kjölfar athafnafrelsisins. Frh. á bls. 7, sjá einnig' myndir á bls. 3. hin logaskœru ÍÉ SteingTímur Jónsson rafmagnsstjóri.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.