Vikan - 19.08.1943, Side 1
Nr. 33, 19. ágúst 1943
Hringurinn vill koma upp
barnaspítala
Kvenfélagið Hringurinn
vinnur nú af miklu kappi
að söfnun fjár til barna-
spítala. Dað er mikilsvert
fyrir pjóðina, pegar dugn-
aðarkonur taka að sér að
veita brautargengi mann-
úðar- og menningarmál-
um. Af fyrri reynslu um
pennan félagsskap er
óhætt að fullyrða, að kon-
unum tekst að hrinda
pessu máli svo vel áleið-
is, að pví sé borgið.
Hin ötula forystukona Hringsins, frú
Kristín Vídalín Jakobson, andaðist
6. maí síðastliðinn, en Nýtt kvenna-
blað birti í febrúar viðtal við hana og af
því að þar segir með hennar eigin orðum
frá tildrögunum að stofnun Hringsins, þá
leyfum vér oss að taka þann kafla uppúr
greininni, en hún er eftir „G. St.“:
„Hvað kom yður til að stofna kvenfé-
lagið Hringinn?“
„Það skal ég segja yður. Þegar ég var
img stúlka úti í Kaupmannahöfn lagðist
ég veik, læknirinn, sem stundaði mig kom
einn daginn til húsmóður minnar og sagði
við hana, að ef hún vildi ekki hafa lík í
húsinu skyldi hún láta mig strax á spítala.
Þar lá ég svo dauðvona, en hét því í leg-
unni, ef ég kæmist til heilsu, að leggja
krafta mína fram að einhverju leyti til
hjálpar sjúkum og fátækmn, hvílík mundi
Framhald á b!s. 7.
Frú Kristín Vídalín Jakobson, er var formaður Hring'sins frá stofnun hans 1906 nálega óslitið til
dánardægurs, 6. maí þ. á.