Vikan - 30.09.1943, Blaðsíða 1
Nr. 39, 30. september 1943.
á Akureyri
Vér birtum nú á forsíðu mynd af Sigurði Guðmundssyni skólameistara og grein
eftir hann um framtíð skól-
ans. iMenntaskólinn á Ak-
ureyri á sér merkilega *
sögu og er drepið á helztu
drætti hennar í framhaldi
af pví, sem skólameistari
Titaði fyrir oss.
Þér hafið, 'hr. ritstjóri, mælzt til þess,
að ég ritaði örfá orð um framtíð Mennta-
skólans á Akureyri. Slíkt er, í raun réttri,
eigi á færi annarra en spámanna. En því
miður gleymdist skaparanum að gefa
mér spámannsauga. Eg er því harla ófróð-
ur um, hvað bíður Menntaskólans á Akur-
.eyri á ferli ára og alda. En af því að það
er vinsemd við þessa norðlenzku mennta-
stofnun, að fræða lesendur „Vikunnar" um
hana og sögu hennar, sæmir eigi annað en
ég, að ofurlitlu leyti, verði við bón yðar.
Má þá drepa á, hverjum breytingum á
skólanum má búast við, nokkrar umbætur
á honum, er míg dreymir um, og hvað það
er, sem ég einkum óttast, að honum stafi
hætta af.
Menntaskólum (eða stúdentaskólum)
er ætlað það hið tvöfalda hlutverk, að búa
nemendur sína undir háskólanám og veita
þeim svo-kallaða almenna menntun. Ekki
virðist og f jarri lagi, að það væri eitt hlut-
verk menntaskóla, sem annarra skóla, að
veita nemöndum sínum, eftir því sem kost-
ur er á, nokkurt uppeldi í víðtækari merk-
ingu, glæða í þeim drengskap og þegnskap,
áhuga á að láta gott af sér leiða og gott
frá sér leggja, bæði í garð þjóðfélags og
förunauta. Ekkert virðisteðlilegra, enþjóð-
Framhald á bls. 3.