Vikan - 28.10.1943, Page 1
HITAVEITAN
einstakt mannvirki.
íslendingar hafa á mörg-
um sviðum verið eftirbát-
ar annara pjóða, en nú er
hér að komast á laggirn-
ar svo merkilegt mann-
virki, að pað á hvergi sinn
líka í veröldinni.
Vér höfum átt tal við
Helga Sigurðsson verk-
fræðing, forstjóra hitaveit-
unnar, og byggjum frá-
sögn vora á pví, sem hann
sagði.
Heitt vatn ólgar og sýður all-víða í
iðrum lands vors. Sums staðar hef-
ir það þegar verið nytjað í þarfir
þjóðarinnar, en óhemju mikil orka bíður
beizlunar á hverasvæðunum og mun hún
í framtíðinni valda geysimiklum breyt-
ingum til batnaðar í lífi og menningu
vorri. Nú á næstunni er heita vatnið að
hefja stórkostlega byltingu í höfuðborg-
inni; það fer að kvíslast um æðar hennar
og kol og kuldi verða aðeins til í sögnmn
og sögum, eins og gömlu brunnarnir og
póstarnir og vatnsberarnir. Loftið yfir
borginni verður hreinna og þá um leið
heilnæmara; snjóþyngsli ættu aldrei að
þurfa vera mikil eða lengi á götunum og
ræktun skrúðgarða og nytjajurta miklum
mun auðveldari; hreinlæti getur orðið al-
mennara og heilsufar betra en áður.
Og öll þessi dýrð er því að þakka, að
tækni nútímans og hugvit gerir oss kleift
að leiða heitt vatn í pípum frá Reykjum
í Mosfellssveit til Reykjavíkur — rúma
15 kílómetra! Framhald á bls. 3.
Helgi Sigurðsson forstjóri hitaveitunnar.