Vikan


Vikan - 10.08.1944, Blaðsíða 12

Vikan - 10.08.1944, Blaðsíða 12
< 12 an mann til þess að skemmta Aðalheiði. Hann naut þess að heyra þau tala saman. Aðalheiður hafði sjálf gerzt vemdari Malaheide, og vildi ekki að ástæðulausu svifta hann vemd sinni, og þegar hún nú óskaði þess að hann væri kyrr, gerði það hana æfareiða, að nokkur skyldi vera á móti því. 1 hinum flokknum vorú -Filippus, María, Magga og Henny — samhent fjölskylda í fjölskyldunni, og tveir yngri meðlimimir voru alveg miskunnarlausir í ákvörðun sinni að reka gestinn í burtu. En hvorki kuldi eða afskiptaleysi af þeirra hálfu, hafði nokkur áhrif á Malaheide, og það var ekki hægt að fá Filippus til þess að segja honum hreinskilnislega að hypja sig í burtu. Filippus reikaði um með hundana á eftir sér, var á veiðum, athugaði hesthúsin eða akrana, góður og þolinmóður við alla, en enginn megnaði að fá hann til þess að taka úrslitasporið. Það hafði verið samþykkt að nokkurskonar kveðjuveizla skyldi haldin til heiðurs Buckley- hjónunum, og einnig til þess að sýna, að fjöl- skyldan tæki ekkert nærri sér, að trúlofun Möggu og Maurice hafði verið slitið. Magga átti að sýna fólki að hún væri róleg og að því er virtist ánægð. Ágústa valdi garðboð, því henni þótti þau skemmtilegust. Grasfletimir og blómabreiðurnar voru nú hreinar og ferskar eftir rigninguna. Hús- ið var nú eins og það gat fallegast verið, bæði að innan og utan. Það var viðeigandi staður fyrir mikið boð. Fjölskyldan tók þátt i, undirbúningnum af lífi og sál. María sá um, að allt húsið var í full- kómnu lagi. Gluggamir vom þvegnir og húsgögn- in fægð, svo að mahóníið og valhnotutréð gljáði eins og silki. Hún og Emest ráðguðust um blómaskreytingamar og völdu bleikar og rauðar rósir og bleikar nellikur í dagstofuna, gular georg- ínur í dagstofuna og bókaherbergið, en stóra tjald- ið sem 'hafði verið sett upp á grasflötinum var skreytt með háum delfiníum og marglitum phlox. Hin höfðu meiri áhuga á hressingunum, bæði föstum og fljótandi, og hljómsveitinni, sem átti að koma fyrir bak við mnnana. Veðrið olli þeim dálítils kvíða, því að alla 1. Maggi: Hæ, Óli! Þú ert einmitt maðurinn, sem ég er að leita að! 2. Maggi: Sjáðu til, ég er að safna jámarusli til að selja; vilt þú ekki hjálpa mér? Óli: Ég er búinn að lofa Nonna að hjálpa' honum! vikuna áður en boðið átti að vera, var það mjög duttlungafullt, og um morguninn sjálfan daginn var á víxl glampandi sólskin og hellirigning; en um hádegið sigraði sólin, grasið þomaði, og allt var sérstaklega glampandi hreint eftir stórþvott- inn. Það var dálítið erfitt fyrir Möggu að ákveða hvaða kjól, er hún hafði fengið í giftingarundir- búningnum, hún ætti að vera í. Sérhver þeirra hafði verið valinn með tilliti til brúðkaupsferð- arinnar. Hún vildi helzt hafa keypt nýjan kjól við þetta tækifæri; en það vildi Filippus ekki heyra nefnt. Útgjöldin voru nóg samt. Hún var í vafa um, hvort hún ætti heldur að fara í bleikan, rósóttan organdikjól eða dauf- grænan tyllkjól, þegar hún heyrði Renny ganga framhjá hurðinni. Hún kallaði á hann. „Hvom á ég að fara í?“ spurði hún, og varir hennar titruðu dálitið, þegar hún spurði, því að hún fann, Að sér mundi vera það óbærilegt að sýna sig fyrir svona mörgu fólki. Hann horfði efablandinn á kjólana, sem lágu útbreiddir á rúminu. „Mamma segir, að sá ljósgræni sé fallegri,“ sagði hún, „en Vera mælir með þeim rósótta. Hún heldur að mér muni líða betur í honum.“ „Farðu í þann bleika,“ sagði hann umhugsunar- laust, „Þú verður ánægðari x honum. Það er líkt mömmu að velja grænt.“ „Þá geri ég það. En mamma er nú sannarlega góð, þegar tekið er tillit til þess, að hún losnar ekki við mig, eins og ég býst við, að hún hafi samt alltaf vonað.“ „Hm.“ Hann tók utan um Kana. „Nú, það er nú sama, Magga — mig langaði að minnsta kosti ekki að losna við þig." Hún fól andlit sitt við öxl hans. Það var mikil huggun að eiga slíkan bróður, hugsaði hún. Hann sagði allt í einu. „Heyrðu, Magga, við höfum ekki gert Malaheide neitt alla þessa viku!“ „Ekki frá því að" ég setti salt í teið hans í staðinn fyrir sykur. Og harm drakk það, án þess að blikna." „Hann gefur ekki svona skólastelpupörum gaum.“ „Ég vildi óska þess, að ég gæti fundið upp á 8. Maggi: Að hugsa sér, ég hefi alltaf haldið, að þú værir vinur minn ... Nú gefur þú Nonna jámarusl, en nefndu mér nokkum hlut, sem Nonni hefir gefið þér! ? 4. Óli: Mislingana!!! VIKAN, nr. 32, 1944 einhverju verulaga svðkkjandi handa honum í dag.“ „Já, ef við gætum það,“ sagði hún hugsandi. „Kannske mamma gæti fundið upp á einhverju. „Við getum bjargað okkur án hennar. En ef Hún er alveg eins ill og við, þegar hún hugsar til þess að hann verði kyrr. Hún er dauðleið á því.“ hún er með okkur, þá er það ágætt.“ Hann stóð og hugsaði og strauk sér með hend- inni um hökuna, og hann líktist ömmu sinni eins mikið og unglingspiltur getur líkzt gamalli konu. Allt í einu leit hann upp og sagði: „Nú veit ég! Hvað finnst þér um þetta?" Hann skýrði henni frá hugmynd sinni, sem hún samþykkti með ákafa þess, sem reynir að gleyma þunglýndi sinu. Þau voru rétt búin að ræða hugmyndina og Magga var móð af að hlæja, þegar dymar vom opnaðar hægt, og Eden rak inn litla gyllta koll- inn. „Góðan dag,“ sagði hann ísmeygilega, „má ég fá að koma inn?“ „Já,“ svaraði Magga, „en lokaðu hurðinni á eftir þér.“ Hann gekk til Renny óg spurði: „Má ég ekki bráðum fara með þér í útreiðar? Þú lofaðir mér að fara með mig, ef ég færi með kvæðið, en þn ert ekki búinn að gera það enn!“ „Mamma sagði, að þú værir svo taugaveiklað- ur. Hvers vegna ertu með svona lélegar taugar?" „Ég varð taugaveiklaður af því að mig langaði að ríða út, og þú vildir ekki vera með mér.“ Hann horfði ásökunaraugum á Renny. „Ég skal fara með þig í dag. Áður en gestimir koma.“ Hann sneri sér að Möggu: „Það er bezt fyrir mig að forða mér, ef eitthvað kemst upp.“ „Klukkan þrjú var allt á öðrum endanum vegna síðasta undirbúningsins. Aðalheiður, Ágústa, María og Magga voru í svefnherberginu sínu, þar sem þær voru að útbúa sig með sér- stakri umhyggju. Aðalheiður reyndi fimm kappa, áður en hún fann þann, sem hún var ánægð með. Sir Edwin var kominn á það stig, er hann varð að biðja um aðstoð Ágústu, ef flibbi hans og bindi átti að fara vel, þá1 2 var barið á dymar. Hann opnaði dymar dálítið og sá Malaheide, sem sagði áhyggjufullur: „Hvað heldurðu að geti verið að, Edwin? Ég kemst ekki inn í herbergi mitt! Ég fékk Elísu til að hjálpa mér, en hún getur heldur ekki opn- að hurðina." „Læstirðu henni, þegar þú fórst út?“ „Hvemig dettur þér í hug, að ég geri slikt! Nei — þetta er hrekkur! Það er viljandi sem ég er úthýstur." Sir Edwin varð gramur og gat ekki annað en verið ergilegur út í Malaheide. Ágústa leitaði sér skjóls í einu horninu og kall- aði þaðan: „Þú verður að fá þér stiga." „Er ekki hægt að taka lásinn af?“ spurði Sir Edwin. „Lásamir á Jalna em ekki búnir til, til þess að vera teknir af,“ svaraði hún. „Malaheide verð- ur að fara inn um gluggann til þess að komast inn i herbergið." „Ég ætti kannske heldur að tala við Filippus?" „Filippus var rétt núna að k,oma upp til þess að búa sig. María varð sjálf að fara niður í hesthús til þess að sækja hann. Ef hann verður ónáðaður núna, verður hann aldrei tilbúinn að taka á móti gestunum." Malaheide fór líka í taug- amar á Ágústu. Hann stóð kyrr á ganginum, óákveðinn og óánægður, og hann beygði sig margsinnis niður til þess að kíkja inn um skráargatið, eins og hann ætlaði að opna hurðina með eintómu vilja- þreki. Vatnsskvamp og fótatök heyrðust frá öll- um svefnherbergjunum i kring. Stundarfjórðungi seinna sáu stúlkurnar og leiguþjónarnir úr bænum Malaheide Court, sem skreið upp stigann, er var settur upp í gluggann hans, en Hodge, sem var mjög rauður í andliti, stóð fyrir neðan og hélt við stigann.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.