Vikan


Vikan - 10.08.1944, Blaðsíða 14

Vikan - 10.08.1944, Blaðsíða 14
14 VIKAN, nr. 32, 1944 Bette Davis, hin þekkta og vinsæla kvik- myndaleikkona, tekur sér matarhlé. Hún er nú að leika aðalhlutverkið í nýrri stór- mynd, ,,Mr. Skeffington". ’^íIUUiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiimiiiimiiiiiuiiiiiumiiui ✓ mal sinn með sér. 1 baðstofu var allt þegjandi, myrkur var þar, því dimmt var orðið. Einar heilsar, og tóku undir karl og kerling. Nú er kveikt, og sér Einar pall; er þar karl með kerl- ingu sina upp á. Á gólfinu var steinn mikill, flat- ur ofan og ker í hann miðjan. Einar hafði ritblý og skrifar staf í kerið og gengur síðan upp á pallnin og sezt þar niður. Ekki var við hann mælt. Stúlkan settist við vinnu sina og var mjög óglöð. Einar spyr, hvort konan ætli ekki að gefa sér neitt að borða. Hún gegndi litlu, en gekk fram. Sækir hún mat. Borðar nú Einar og var ekki hræddur neitt. Sýndist honum þó hjónin gefa sér illt auga. Nokkru eftir að Einar hafði lokið máltíð sinni segir karl, að bezt muni vera að ljúka störfum sínum, gengur síðan fram og kerling á eftir. Fór þá stúlkan að gráta. Brátt koma þau aftur; er þá karl að hvetja hníf eða sax, en kerling heldur á stórri skál, gengur að steininum og setur hana þar, ætlar að skorða hana í kerinu, en getur ekki. Karl fer þá til með henni og fer á sömu leið. Einar býðst nú til að festa skálina og gengur til þeirra. Skrifar staf i skálina. Þá festist skál- in við steininn og þau bæði við, skálina; brjót- ast þau um fast, en kom fyrir ekki. Eftir þetta sezt Einar í sæti sitt. Biður hann stúlkuna að fara og sjóða handa sér hangið sauðaket, þvi það mundi þar til vera, þyrfti hún ekki að óttast húsbændur sína framar. Hún gjörir nú eftir skip- un hans, sauð ketið og færir honum fullt trog. Hann fer nú að borða og biður hana að gjöra eins; borðuðu þau bæði nægju sína. Síðan háttar hann í rúmi hjónanna og svaf vel um nóttina. Daginn eftir var komið bjart veður. Býst nú Einar að fara leið sína. Hann spyr stúlkuna, hvaðan hún sé. Hún leysti úr því; höfðu illmenni þessi stolið henni úr byggðinni og haft hana hjá sér í 7 ár; höfðu þau drepið 9 ferðamenn og tekið það, sem þeir höfðu meðferðis. Einar fékk sér öxi og höggur höfuðið af þeim báðum og brenndi þau síðan. Hann tók alla peninga, er þar voru, og stúlkuna. Sneri síðan heimleiðis norður aftur; varð ekki meira af róðr- um hans í það sinn. Kom hann heim að Brúna- stöðum og var þar um veturinn, það eftir var. Um vorið giftist hann stúlkunni, fekk sér jörð og fór að búa. Hann sótti í dalinn allt, er að gagni var i kotinu. Bjó síðan til elli með konu sinni. 244. KROSSGÁTA Vikunnar Lárétt skýring: 1. veikra. — 6. fjall. — 11. verkfæri. — 12. deilur. — 13. vaxna. — 14. frásögnin. —16. muldur. — 19. loðdýr. — 21. ilma. — 22. vinahót. — 25. glíman. — 26. mjúk. — 27. tré. — 28. straumur. — 29. kvikár. — 33. harðsnúinn. — 34. hræðsla. — 35. ýlda. — 36. augljóst. — 40. skákir. — 44. keyrðu. — 45. berja. — 47. vex. — 48. mýkja — 50. hestur. — 52. flík. — 53. drasla. — 55. frosinn. — 57. kvensilfur. — 59. hnappurinn. — 60. skartgrip. — 61. ræðið. — 62. rofið svefninn. — 63. jarðfall. Lóðrétt skýring: 1. miðaldabygging. — 2. kroppa. — 3. nagla. — 4. liðna. — 5. sagnfræðing. — 6. bygging. — 7. rengja. — 8. bíta. — 9. hola. — 10. kjassaðar. — 13. bugast. — 15. iðin. — 17. flanið. — 18. hæð (brött). — 20. skipta sundur. — 23. drykkur. — 24. fjall. — 30. ruppl. — 31. stefna. — 32. býli. — 33. húkti. — 36. koddi. — 37. vagnstjóra. — 38. lestin. — 39. kast. — 41. nesin. — 42. land. — 43. heilsubót. — 45. titill. — 46. hæð. — 49. eldstæðis. — 50. flóa. — 51. brúna. — 52. samsull. — 54. ódæði. — 56. lengdarmál. — 58. tóm. — 59. blekking. Lausn á 243. krossgátu Vikunnar. Lárétt: — 1. klastur. — 6. bókband. — 11. lini. — 12. ásjá. — 13. söngs. — 14. skóga. — 16. kættar. — 19. æringi. — 21. krít. — 22. augað. — 25. rart. — 26. vil. — 27. mæt. — 28. sói. — 29. iðar. — 33. stal. — 34. áður. — 35. sagi. — 36. blað. — 40. flag. — 44. læs. — 45. kló. — 47. aur. — 48. áma. — 50. kross. — 52. kula. — 53. stafur. — 55. kramin. — 57. rætur. — 59. árana. — 60. tapi. — 61. fant. — 62. risanum. — 63. and- svar. Lóðrétt: — 1. klökkvi. — 2. slött. — 3. tina. — 4. ungra. — 5. ris. — 6. bás. — 7. óskæð. — 8. kjór. — 9. bágir. — 10. dreitil. — 13. stíla. — 15. anast. — 17. ærið. — 18. ágæt. — 20. gróa. — 23. um. — 24. at. — 30. ráð. — 31. sum. — 32. lak. — 33. Sif. — 36. blástur. — 37. lært. — 38. asnar. — 39. flos. — 41. lauma. — 42. auli. — 43. grandar. — 45. kr. — 46. 6s. — 49. afæta. — 50. krupu. — 51. skran. — 52. kants. — 54. utan. — 56. rand. — 58. rím. — 59. áfa. — Lausn á Orðaþraut á bls. 13. Svör við „Veiztu —?“ á bls. 4: JEBtlSALElVL 1. Holta-Þórir var kennáur við bæinn Holt JÁRNI undir Eyjafjöllum. 2. Tómas Guðmundsson; úr Blómljóð. ESP AR 3. 1918. RÆSTA 4. Utveirpsstöðin í Pittsburgh, U.S.A.; opnuð 1920. OFINN 5. Háð. SKlM A 6. Mozart. ASN AR 7. önnur er í Central Park í Nerw York, hin L AGNI á Strand í London. 8. William Shakespeare. EINNI 9. Inka-þjóðin. MUNDI 10. Adelaide. Draugurinn Hundi. Maður hét Gunnlaugur og var kallaður hundi. Hann var lítilmenni og vinnumaður Áma prests Skaptasonar á Sauðanesi á Langanesi. Gunnlaug- ur vildi eiga konu þá, sem Málfríður hét, og fór þess á leit við hana. En þá beiddi hennar maður sá, er Eymundur hét, og var röskur maður; hann fékk Málfríðar, og fóm þau að búa á Skálum, yzta bæ á Langanesi. Gunnlaugur hundi hézt nú við Málfríði, og eitt kvöld í myrkri gekk ráðskona Áma prests, sem Ingiríður hét, út í fjós og með henni stúlka, sem Kristin hét. Þegar þær komu í fjósið, heyrðu þær korr og snörl mikið í auðum bás. Ingiríður sagði: „Ekki er allt, sem dreymir. Berðu þig að kveikja, Kristín litla; ég ætla að bíða héma á meðan.“ Þegar Kristín kom með ljósið, sáu þær, að Gunnlaugur lá þar skorinn á háls og hnífurinn hjá honum, gæmhnífur beitt- ur mjög. Hljóp Kristín þá inn og bað vinnumann prests, er Ormar hét, að koma út í fjósið. Ey- mundur á Skálum, faður Málfríðar var þar gest- kominn og ætlaði að vera þar um nóttina, hann var frændi Orms; fóm þeir svo báðir til og fluttu lík Hunda í skemmu, og er sagt, að hann gengi þegar aftur. Blóðlifur mikil sást á klæðum Ey- mundar, sem komið hafði á hann, þegar hann bar Hunda í skemmuna. Ormar var ötull maður og einarður; greip hann þvi lifrina og sletti í augu Hunda, og það ætla menn, að það væri orsök þess, að hann fylgdi hvorki Ormari né niðjum hans, þó hann væri af sama bergi brotinn og Eymundur. Sagt var það, að Hundi hefði slett sjálfur lifrinni á Eymund, og vildl hann lýsa hann með því banamann sinn. Eftir það fór Hundi að sækja að knu Eymundar og fylgja honum sjálfum, og kallaður var hann ættarfylgja þeirra og hélzt það lengi, og enn eimdi eftir af Hunda hjá bamabömum þeirra Eymimdar og Málfríðar, eftir að séra Stefán Einarsson var orðinn prestur á Sauðanesi (1795—1847). (ÞjóðsÖ£rur j Am.)

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.