Vikan


Vikan - 30.11.1944, Page 11

Vikan - 30.11.1944, Page 11
VIKAN, nr. 43, 1944 11 -------:----------------Framhaldssaga::---■> Gamla konan á Jalna EHi, MAZO D£ LA ROCHE. 3Q “ ' ■ ■ Hann skjögraði með flöskuna í hendinni. „Fyrir þig og- aðeins fyrir þig!“ sagði hann ákafur. Hann hellti dálitlu koníaki í glas, og hún drakk það þakklát. Hún hjálpaði honum að taka af sér fötin, sem hún hengdi á snúru, er var strengd þvert yfir tjaldið. Hann sat á rúmstokknum sínum, og hann var svo ruglaður, að hann var ekki viss um, hvort hún vseri raunveruleg eða hvort þessi einkennilegi skuggi, sem sveif yfir þeim, væri óraunverulegur. Skugginn sýndi nokkuð af fyrri yndisþokka henn- ar, er hún rétti upp handleggina. Honum fannst andlit hennar ímynd styrkleika og drambs ættar þeirra. Hún hafði búið um hann eins og barn, og nú var hún á heimleið eftir gilinu, sömu leið og hún hafði komið. Nú þegar hún var laus við Mala- heide, var hún ekki lengur þreytt. Hún gekk rösklega, og þegar hún kom að brúnni, nam hún staðar dálitla stund og horfði niður í dökka silfur- glitrandi ána. Hún glampaði á móti henni, talaði við hana — áin og Aðalheiður höfðu nú talað oft saman í trúnaði í meira en fimmtíu ár. Hún stóð þama grafkyrr, ugla sveif framhjá henni með mús í gogginum. „Já!‘? sagði hún lágt. „Þú ert úti i þínum er- indagjörðum — og ég í mínum . . . við erum skrýtnar gamlar uglur báðar tvær.“ XXVII. KAFLI. Sýningin. 1 bjarta rafljósinu sást allt á sviðinu skýrt og greinilega. Ljósir einkennisbúningar spilaranna; glampandi hljóðfæri þeirra, en frá þeim hljómaði nú einmitt hávaðasamt göngulag, blaktandi fán- amir, sem hengu niður úr loftinu; sterkir litir og áköf andlit áhorfendanna, sem sátu á bekkj- unum og i stúkunum, allt var fullskipað; hest- amir sterklegir og gljáandi. Allir, sem sátu í stúk- unum með hvítt skyrtubrjóst og kvöldkápur, og þeir, sem sátu í öftustu sætunum, allir horfðu á næsta þátt, er var þýðingarmesti þáttur mótsins, og verðlaunin voru mjög eftirsóttur silfurbikar og pyngja með þúsund dollurum. Vaughanshjónin sátu í sömu stúku og Lacey- fjölskyldan — nema Vera, sem sat hjá Möggu Whiteoak. Róbert Vaughan var taugaóstyrkur og dauft bros lék á vörum hans, hann var náfölur. Þetta var i fyrsta skiptið, sem hann tók þátt í nokkru eftir veikindi sín, og hann fann, að hann þoldi varla þessa áreynslu. Lacey aðmíráll sat rjóður og ánægður og horfði ýmist á hestana, eða hinar fögru konur, er gengu framhjá stúku hans. 1 næstu stúku sat Whiteoakfjölskyldan. Nikulás strauk dökkt yfirskegg sitt, og Filippus var óeðli- lega rólegur á svipinn. María var í blá- og silfur- lituðum kjól og bar í kvöld af báðum ungu stúlk- unum. Aðalheiður, sem var í gráum silkikjól, kniplingamöttli og hermelinfeldi, var langtignar- legust af áhorfendunum. Frá því að maðurinn hennar hafði tekið þátt i þessum sýningum, hafði hún setið í þessari stúku, ár eftir ár, og brosað til þeirra manna, er heilsuðu henni. 1 ár brosti hún með ennþá meiri ánægju í meðvitundinni um nýju tennurnar. Hún ýtti feldinum aftur og rétti úr sér, þegar hún sá blaðamann skrifa athugasemdir viðvíkjandi nærveru hennar. Hún líktist ekkert hinum fálátu og kuldalegu heimskonum. Nú — þarna komú þeir! Þeir lyftu fallegu hóf- unum hátt, þöndu út nasirnar og stóru gljáandi líkamarnir voru reiðubúnir; knaparnir sátu tein- réttir á þeim og sviplausir eins og grímur í and- liti. Renny var yngsti knapinn og Gallant yngsti hesturinn. En þrátt fyrir það, báru þeir í alla staði af hinum. Gallant var nú kominn í nýjan heim með sterku ljósi og einkenmlegum hljóðum. Eini tengiliðurinn á milli hans og fyrra lífs hans, var maðurinn, er sat á baki hans. Áhorfendurnir urðu af eintómri kurteisi að hæla Harpie og riddara hennar, sem var langur og dökkur. Hestarnir fóru nú að stökkva. Þeir komust allir yfir hinar léttari hindranir, námu staðar fyrir framan hæstu slána eða komust yfir, þó ekki án þess að snerta eða fella einhverja slána — allir nema hestar Renny og Malaheide, sem héldu áfram án þess að hlekkjast neitt á. Að lokum voru aðeins fimm eftir á sýningarsviðinu. Við mikla hrifningu áhorfenda bjuggu þeir sig undir að keppa á ný. Þrjár háu slárnar neðst á brautinni voru hættulegastar. Þegar þrír voru dæmdir úr leik, varð æsing áhorfendanna auðséð. Nú voru aðeins Gallant og Harpie eftir. Hver einasta taug þeirra fann fjandskapinn í andrúms- loftinu. Þegar þeir gengu framhjá hvor öðrum, gretti Gallant sig og beit í Harpie. „Láttu þennan djöful ekki koma nálægt mér!“ hvæsti Malaheide og sló með svipu sinni í Gallant. Þrisvar sinnum kepptu Gallant og Harpie. Þrisvar sinnum sátu fjölskyldumar Whiteoak og Vaughan með hverja taug spennta til þess að taka sigri eða ósigri. En dómararnir gátu ekki fellt neinn úrskurð. Þeir ræddu saman ákafir. Filippus leit á pappírinn, sem hann hafði krotað á um stökkin, hann sló pappirnum á hné sér. „Ég segi þér, að Gallant hefir sigrað!" sagði hann við móður sina. „Það er enginn vafi á þvi,“ sagði Nikulás. „Ég held nú ekki,“ sagði móðir þeirra. „Það fór illa fyrir Gallant — þama og þama og þama!“ Hún sló á pappirinn með hendinni og á vísifingrinum glampaði fagur gimsteinahringur. „Harpie kom við í síðasta stökkinu!“ sagði María. „Ég sá það sjálf. Hún stökk mjög illa.“ „Hvaða vit hefir þú á stökkum ?“ ,,Ég sé það með augum mínum.“ „Ha, þarna koma þeir aftur!“ Við hvert velheppnað stökk létu áhorfendur hrifningu sina i ljós. Og í hvert skipti og eitthvað misheppnaðist heyrðust andvörp. .Æsingin var næstum of mikil fyrir Róbert Vaughan, hann lokaði augunum til þess að sjá ekki síðasta stökk Harpie. Taugaæsing Harpie hafði stöðugt farið vax> andi á meðan á sýningunni stóð. Hún hataði Mala- heide og var hrædd við hann. Hún stökk illilega yfir hindranirnar og þaut að hæstu slánum. Hún fann, hvað hann hélt fast í taumana, og spora hans á síðum sínum. Hún stökk yfir slárnar i stórum stökkum og valhoppaði i burtu um leið og hún hristi höfuðið og vék til hliðar. Lófa- tak dundi við. Aðalheiður brosti sigri hrósandi til Filippusar. „Renny verður að standa sýg vel, ef hann á að sigra,“ sagði hún. En heimurinn mátti ekki vita, að hún væri á móti Jalna. Andlit hennar var sviplaust, þegar drengurinn og hesturinn komu fram á sýningar- sviðið. Hún fekk hjartslátt, þegar hún sá þá og hugsaði til þess, að hún væri á móti sigri þeirra. Þeir voru svo göfugir og fallegir á að sjá! Hún var hreykin af þeim. Eins og vináttan milli Harpie og Malaheide hafði kulnað meðan á keppninni stóð, að sama skapi hafði ást Gallants og Renny á hvor öðrum aldrei verið meiri. Þegar hesturinn kom í síðasta skipti fram á sviðið, var hann næstum því fjör- legur. Hann teygði fram steingráan hálsinn og hallaði dálítið undir flatt. Hann stökk yfir fyrstu slána eins og hún væri ekki neitt, og taktfastur hófadynur hans var eins og músik á milli stökkanna. Það var eins og hún næði há- marki sínu, er hann nálgaðist síðustu þrjár slárnar. Áhorfendur teygðu sig fram i sætum sínum; þeir sem stóðu við girðinguna þyrptust þéttar saman. Það heyrðist ofsalegur hlátur í konu með strítt hár, hún tróð sér á milli tveggja karlmanna. Hesturinn, sem var svo nærri, að hann heyrði til hennar, ranghvolfdi í sér augunum og vék til hliðar. Einkennilegar minningar komu upp í huga hans. Allt i einu hvarf sjálfstraust hans. Hann reis upp á afturfæturna eins og til þess að spyma við hraðanum, eins og á, sem allt í einu rekst á klett. Hann nam staðar, glennti upp kjaftinn og lyfti hófunum eins og hann vildi slöngva þeim út í loftið. Renny hafði líka heyrt hláturinn og séð and- litið. „Rólegur drengur minn — góður drengur — svona, komdu.“ Hann sneri Gallant við og rak hann í áttina til slánna! En hann vék aftur til hliðar, dansaði og ranghvolfdi augunum. Nú — í síðasta sinn — reynum við! Allt blóð hans var i æsingi — og jafnvel hárin á makka hans skutu rafmagnsneistum. „Upp! Upp! Upp, elsku dreng- urinn minn!“ sagði Renny lágt við hann og lyfti honum með höndum, hnjám og sál yfir slána. Svo er sú næsta. Grái skrokkurinn svífur eins og glampandi bogi yfir hana. Þegar hann er kominn að síðustu slánni, er hann orðinn mjög reiður, hann stekkur eins og hann ætti að sprengja sjálfan sig í loft upp og kemur um leið við efstu grindina. Það gellur í horninu. Loftið titrar af lófataki, húrrahrópum og hlátri. Eins og persónugerfing þrálætisins neitar Gallant að hverfa af sviðinu. Hann slær eftirlitsmann, sem stendur rétt fyrir aftan hann. Renny er náfölur. Hatturinn hefir dottið af honum, og hár hans sýnist dökkrautt í skæru ljósinu. Malaheide kemur fram á sviðið með Harpie, hann er strangur á svipinn, hávaði og læti eru allt um kring. Lúðrasveitin leikur. Lófatakið er eins og sprengingar. En allir hafa dálæti á Renny og Gállant. Allir hæla þeim og undrast ósigur þeirra. Malaheide ríður um völlinn með silfur- bikarinn á söðlinum, gult andlit hans er alveg sviplaust. Þegar Renny ruddi sér leið um mannþröngina, gekk hann viljandi framhjá staðnum þar sem Lúlú stóð og studdist við girðinguna. Hún var þegar farin að tala við annan karlmanninn, en hún sneri sér við og horfði með Ijómandi augum á Renny. Hann beygði sig að henni og hvíslaði: „Ég vildi óska, að þú hefðir farið beint til helvitis, áður en þú komst hingað i kvöld!“ Hún sagði: „Þú sagðist ætla að senda mér aðgöngumiða; en þú gerðir það ekki! Ég kom alla þessa löngu leið til þess að sjá þig. Og ég hefi borgað það með mínum peningum!“ „Og látið mig borga það, sem ég fekk hjá þér!“ svaraði hann og gekk i burtu. Hann fór upp í stúku Filippusar og settist hjá honum. Filippus klappaði honum vingjamlega 'á hnéð.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.