Vikan


Vikan - 27.03.1947, Qupperneq 1

Vikan - 27.03.1947, Qupperneq 1
LARIÍ8 INGÓLFSSON — FJÖLHÆFUR LISTAMAÐUR Við birtum nú á forsíðu mynd af einum fjölhæfasta leiklistarmanni landsins: leikara, leiksviðsmál- ara, búningateiknara, gamanvísna- söngvara og dansara — manni, sem maður freistast til að segja um, að geti allt, sem gera þarf í sambandi við leiksýningar, þó að slíkar full- yrðingar séu annars hæpnar! að getur verið hættulegt að vera f jöl- hæfur og ýmsum hefir orðið hált á því: hugurinn hvarflar frá einu verkefninu til annars, sem oft eru óskyld, og kraft- arnir dreifast og þess vegna ná margir ekki háu risi, þótt hæfileikarnir séu í raun og veru miklir. En það er eins og allt leiki 1 höndunum á sumum mönnum. Og svo er um Lárus Ingólfsson. Reyndar má segja um hann, að hann dreifi ekki kröftunum á mörg svið, því að í rauninni liggja öll verk- efni hans innan vébanda leiklistarinnar. Tækni hans í gerð leiksviða er frábær, en hann getur engu að síður náð hátt sem leikari og er skemmst að minnast leiks hans í hlutverki Arngríms holdsveika í Fjalla-Eyvindi á hátíðarsýningu Leikfé- lagsins í vetur. Lárus Ingólfsson er víðförull maður og mjög vel menntaður á sínu sviði. Hann stundaði ungur myndlistarnám hjá hinum ágæta listamanni Guðmundi Thorsteins- syni. Þótt sá skóli hafi ekki veriðlangurhjá Lárusi, mun hann hafa haft mjög gott af kennslu Guðmundar, því að hann var mik- ill hæfileikamaður, eins og alkunnugt er, og lagði gjörva hönd á margt, sem Lárus síðar tók sér fyrir hendur, eins ogt. d.leik- list, leiksviðsbúnað, gamanvísnasöng ó. fl. Framhald á bls. 3. ' Lárus Ingólfsson. (Ljósm. Kaldal).

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.