Vikan - 22.05.1947, Page 15
VIKAN, nr. 21, 1947
15
SKRÍTLUR.
„Er þetta nýr fiskur?“ spurði
gamla konan fisksalann.
Fisksalinn leit á fiskinn sem var
kominn til ára sinnaj ýtti við honum
og sagði: „Svona, liggðu nú einhvern-
tíma kyrr.
„Hefirðu heyrt það nýjasta um
Jón?“
„Nei, hvað nú?“
„Hann keypti sér rúm í stíl Loðvíks
14. En af þvi að það reyndist of lítið,
skilaði hann því aftur og hað um
rúmið hans Loðvíks 15.
Tilkynning
frá húsaleigunefnd
Hér með er vakin athygli almennings á því, að eins
og að undanförnu er óheimilt að leigja öðrum en
heimilisföstum innanhéraðsmönnum íbúðarhúsnæði
liér í bænum.
Þá er utanhéraðsmönnum óheimilt að flytja í hús,
er þeir kunna að kaupa eða hafa keypt hér í bænum
eftir 7. apríl 1943. Fólki, er flytst úr hermannaskálum
á vegum húsaleigunefndar, er óheimilt að ráðstafa
þeim til annarra án leyfis nefndarinnar, en þer þegar
í stað að afhenda þá nefndinni.
Reykjavík, 9. maí 1947.
Húsaleigunefndin í Reykjavík.
Getum útvegað
Dráttarvagna
með eða án húss,
frá LANSING BAGNALL LTD.,
Isleworth Middlesex, England.
Einkaumboðsmenn:
t>. Þorgrímsson & Co.
Sími 7385. Hamarshúsinu.
Símnefni: „THCO“. Reykjavík.
Almenningsútgáfa STURLUNGU
kemur út í júnímátiuði.
Allir Islendingar verða að eignast þessa skrautlegu og um leið hand-
hægu útgáfu af Sturlungasögu, en þeir dr. Jón Jóhannesson, háskóla-
kennari, mag. Magnús Finnbogason, menntaskólakennari, og mag.
Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður hafa annazt útgáfuna.
Bókin er yfir 1300 bls. í Royal broti, með yfir 200 mynd-
um og uppdráttum af sögustöðum og sögusvæðum,
bundin í skrautband.
Sendið
Sturlungu
áskrift
eða hringið í
Bókaverzlun
Isafoldar,
sími 4527.
eða
Stefán A. Pálsson,
sími 3244.
Sturlungaútgáfan V
Undirritaður gerist hér með áskrifandi að
STURLUNGASÖGU
1 skinnbandi verð 200 krónur, heft 150 krónur,
bœði bindin. (Strikið yfir það, sem þið viljið ekki).
Nafn ..
Heimili
TIL STURLUNGASÖGUÚTGÁFUNNAR
Pósthólf 41 og 66, Reykjavik.