Vikan - 07.08.1947, Page 5
VIKAN, nr. 32, 1947
5
------Ný framhaidssaga:-------------------
; : • ... .' . .. .
„ Hver var afbrotamaðurinn ?
Sakamálasaga eftir Ágatha Christie
enda. Þar eð seinna kom í ljós, að herbcrgja-
skipun í húsinu skipti mjög’ miklu máli, birtist
hér teikning af henni.
Herbergin sneru öll inn að garðinum og þangað
sneru einnig flestir gluggamir nema í gömlu
suðurálmunni, þar. voru einnig gluggar á móti
suðri, en jámgrindur vom fyrir utan þá glugga.
1 suðvestur hominu var stigi, sem lá upp á langt,
flatt þakið, en á þaki suðurálmunnar, sem var
hærra en hinar þrjár, var brjóstvöm móti suðri.
Coleman fór með mig meðfram austurvegg garðs-
ins, að stóm, opnu svölunum í miðri suðurálm-
unni. Hann opnaði hurð, og við komum inn í
herbergi þar sem margt manna sat umhverfis
teborð.
„Halló! Héma komum við!“ sagði Coleman.
Kona, sem sat við enda borðsins, stóð á fætur
og gekk á móti mér.
Þetta voru fyrstu kynni min af Lovísu Leidner.
4. KAFLI.
Ég skal fúslega játa, að ég varð vægast sagt
undrandi, þegar ég sá frú Leidner. Maður gerir
sér ósjálfrátt ákveðnar hugmyndir um mann-
eskju, sem maður hefir heyrt talað mikið um.
Og ég var með sjálfri mér sannfærð um, að frú
Leidner væri dökkhærð, gremjuleg á svipinn og
. eirðarlaus — og ef satt skal segja, hafði ég
imyndað mér að hún væri grófgerð og dálítið
mddafengin.
Og svo reyndist hún vera allt öðmvísi en ég
hafði ímyndað mér. 1 fyrsta lagi var hún mjög
ljós á hár og hörund. Það var ekki sænskt blóð
1 æðum hennar eins og í æðum manns hennar, en
hún hefði getað verið sænsk eftir útlitinu að
dæma. Ein af þessum sjaldgæfu, fögm, norrænu
konum. Hún var ekki sérlega ung. Hálf fertug,
gæti ég trúað. Það vom alldjúpir drættir í and-
litinu á henni og hárið var aðeins byrjað að
grána. En augu hennar vom undursamlega fögur.
Það em raunvemlega einu augun, er ég hefi séð,
sem með sanni er hægt að segja að séu fjólublá.
Þau voru stór, og það voru daufir skuggabaugar
fyrir neðan þau. Hún var grönn og veikluleg. Það
var eins og hún væri örþreytt, en samtímis full
af lífi — já, þetta hljómar kjánalega, en þannig
kom hún mér fyrir sjónir. Hún rétti mér hönd-
ina og brosti. Rödd hennar var dimm og mjúk
og það vottaði fyrir amerískum hrgim í henni.
„Mér þykir svo vænt um, að þér skuluð vera
komin,“ sagði hún. „Viljið þér ekki fá yður te?
Eða viljið þér kannske heldur koma upp í her-
bergið yðar fyrst?“
'Ég þáði teið, og hún kynnti mig þeim, sem
sátu við borðið: Ungfrú Johnson, herra Reiter,
frú Mercado, herra Emmott og séra Lavigny.
Hún vísaði mér til sætis milli ungfrú Johnson og
prestsins. Von væri á dr. Leidner á hverri stundu.
Ungfrú Johnson hóf máls við mig, spurði mig,
hvemig ferðin hefði gengið og svo framvegis.
Mér geðjaðist vel að henni. Hún minnti mig á
yfirhjúkrunarkonu, sem ég hafði einu sinni unnið
. hjá, og sem okkur hafði öllum þótt mjög vænt
um.
Hún var nálægt fimmtugu og dálítið karl-
mannleg, með mjög stuttklippt, stálgrátt hár.
Hún var stuttorð, en rödd hennar var þægileg,
djúp og hljómmikil. Hún var ófríð i andliti með
mikið kartöflunef, og þegar hún komst í geðs-
SÖGUPERSÓNURNAR:
Hercule Poirot, litli, feitlagni Belgíumaður-
inn, sem er snillingur í að leysa torráðin
glæpamál.
Amy Leatheran, hjúkrunarkona — dugleg,
skarpskyggn, glaðljmd og trygg — hefir verið
ráðin til að annast
Lovísu Leidner, forkunnarfagra konu, sem
er taugaveikluð. Hún er gædd einhverjum
óheillavænlegum töframætti, sem veldur óró-
leik meðal leiðangursmanna. Hún er kona
dr. Eric Leidner, forystumanns leiðangurs-
ins. Hann hefir ekki áhuga á neinu nema fom-
um leirkerabrotum - og hinni fögm konu sinni.
Richard Carey, arkitekt leiðangursins og
gamall vinur og samverkamaður dr. Leidners.
Hann er laglegur og myndarlegur og nýtur
hylli kvenna.
Anna Johnson, einnig gamall samverkamað-
ur dr. Leidners og tilbiður jörðina sem hann
gengur á. Hún er kona um fimmtugt, stutt-
klippt og dugnaðarleg.
Séra Lavigny, kaþólskur prestur, svart-
skeggjaður með lonéttur, helgirúnafræðingur
og hálfgerður vandræðamaður.
Jósep Mercado, efnafræðingur leiðangursins,
hár, grannur, gugginn og raunamæddur. Hann
er miklu eldri en konan hans,
María Mercado, sem er dökkhærð og ekki
öll þar sem hún er séð. Hún hatar Lovísu.
Karl Reiter, er ljósmyndari leiðangursins,
heldur óásjálegur og lítill fyrir mann að sjá.
William Coleman, ungur uppskafningur, sem
talar mikið, en bætir lítið við þekkingu manna.
Davíð Emmott, er þriðji „ungi maðurinn" í-
leiðangrinum, snotur, duglegur Ameríkumaður.
Giles Reiily, læknir leiðangursins, roskinn
maður, duglegur og spaugsamur og á heima
nálægt Hassanieh. Honum þykir gaman að
stríða Leatheran hjúkrunarkonu.
Sheila Reiily, ung nútímakona, lagleg, kald-
lynd, kæruleysisleg, örugg í framkomu og
hæðin. Fer stundum dálitið í taugamar á Amy
Leatheran.
er var ungur maður, hár og herðabreiður og með
gleraugu. Hann var síðhærður og hrokkinhærður,
og augu hans voru blá og hnöttótt. Hann hefir
sjálfsagt verið fallegur sem bam, en nú — —
mér datt í hug grís, þegar ég leit á hann. Emmott,
hinn imgi maðurinn, var mjög snöggklipptur.
Hann var langleitur, tennumar mjallhvítar og
brosið aðlaðandi og bar vott um kímnigáfu. En
hann talaði ekki mikið. Kinkaði kolli, þegar yrt
var á hann, eða svaraði með eins atkvæðis orðiun.
Hann var Ameríkumaður eins og Reiter. Loks
var frú Mercado. Mér var ekki nokkur leið að
gera mér ljósa grein fyrir henni, því að í hvert
skipti sem ég leit á hana, mætti hún augnaráðl
mínu með starandi forvitnum augum, sem væg-
ast sagt var ónotalegt. Ætla mátti að hjúkmnar-
kona væri eitthvert furðudýr, eftir svip hennar
að dæma.
Hún var ung — í mesta lagi 25 ára. Dökkhærð,
og eins og — kviðdregin, ef þið vitið hvað ég
á við. Og þó vafalaust lagleg. Hún var í hárauðri
prjónatreyju og neglumar voru málaðar í sama
lit. Það var einhver fuglssvipur á andlitinu á
henni. Augun vom náin hvort öðm og einhver
tortryggnissvipur kringum munninn.
hræringu, nuddaði hún það ákaft. Hún var í
grófgerðri ullardragt, sem gerði hana enn karl-
mannlegri.
Séra Lavigny fannst mér viðsjárverður. Hann
var hár, hafði mikið, svart skegg og gekk með
lonéttur. Frú Kelsey hafði sagt, að það væri
franskur munkur meðal leiðangursmanna, og
ég sá nú, að presturinn var í eins konar munka-
kufli úr hvítu ullarefni.
Frú Leidner talaði næstum alltaf frönsku við
hann, en við mig talaði hann sæmilega ensku.
Augnaráð hans var kænlegt og hvasst og var
sífellt á flökti frá einum til annars.
Hinir þrír sátu andspænis mér við borðið. Reit-
Teið var sterkt og gott, og með því var ristað
brauð og marmelaði, bollur og sódakaka. Emmott
var mjög kurteis og umhyggjusamur gagnvart
mér. Þó að hann segði ekki mikið, tók hann
alltaf eftir, ef mig vantaði eitthvað.
Vonbráðar kom Coleman inn og settist við
hliðina á ungfrú Johnson. Hann var áreiðanlega
taugaveiklaður. Það óð jafnmikið á honum og
áður.
Frú Leidner andvarpaði einu sinni og leit
þreytulega í áttina til hans; en það hafði engin
áhrif. Hann lét það heldur ekkert á sig fá þó
að frú Mercado, sem hann beindi máli sínu eink-
um til, væri alltof önnum kafin við að stara á
mig til að taka eftir þvi sem hann sagði.
Rétt þegar við ætluðum að fara að standa
upp frá borðum, kom dr. Leidner ásamt Mercado.
Dr. Leidner heilsaði mér vingjamlega; en ég tók
eftir, að hann leit kvíðnum, éftirvæntingarfullum
augum til konu sinnar; var auðséð, að honum
létti við það, sem hann sá. Hann settist við
borðendann, og Mercado settist i auða sætið við
hlið frú Leidnes. Hann var hár og grannur, þung-
lyndislegur á svip og allmiklu eldri en kona hans.
Litarháttur hans var veiklulegur, og skegg hans
var næsta einkennilegt, lint og lúpulegt. Eg var
fegin að hann skyldi koma, því að
nú hætti konan hans að stara á mig,
en beindi í þess stað allri athygli sinni
að honum. Hún horfði á hann með
eftirvæntingarfullri óþolinmæði, sem
mér fannst mjög undarleg.
Hann sat þögull og hrærði hugs-
andi i tebollanum. Það var sóda-
kökusneið á diskinum hans en hann
bragðaði ekki á henni.
Eitt sæti var enn laust við borðið.
Þá opnaðist hurðin í hálfa gátt og
maður kom inn.
Um leið og RichardGreykominnúr
dyrunum, fannst mér hann vera ein-
hver fallegasti maður sem ég hafði
nokkum tíma séð — og þó efast ég
um að svo hafi verið! Að segja að
Porthvelftng
My rkral kleíi 1 Myndastofa j Rannsóknj arstofa 1 1 Teiknistofa 1 Baö- herb. 1 Bað- herb.