Vikan


Vikan - 04.09.1947, Blaðsíða 3

Vikan - 04.09.1947, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 36, 1947 3 KATHLEEN MDRRIS: Konuríhi Eiginkonur: Áður en þið reynið að betrumbæta menn ykkar skuluð þið lesa þessi hollráð hygginnar konu. f ' ifztu ekki manni með það fyrir augum að breyta honum. Það blessast aldrei. Það er ekki hægt að breyta mönnum. Þeir geta ef til vill komið þér á óvart í háttum eða smekk — þú uppgötvar ef til vill, að maðurinn, sem þú hélzt að væri heimakær, vill helzt fara út á hverju kvöldi, eða að maðurinn, sem þú hélzt að værir kaffihúsa- rápari, vill sitja heima öll kvöld. Slíkt og því líkt er algengt hjá nýgiftu fólki. En ekki breytingar. Maðurinn, sem er af- brýðissamur kærasti, heldur áfram að vera afbrýðissamur; letinginn, sem alltaf er að skipta um atvinnu, heldur áfram uppteknum hætti eftir að hann er kvænt- ur; strákurinn, sem drekkur of mikið og eyðir peningum sínum í f járhættuspil, held- ur áfram að drekka og spila eftir sem áður. Fyrir skömmu átti ég tal við stúlku, sem ætlaði að fara að gifta sig, og síðan hefi ég verið að velta því fyrir mér, hvort manns- efnið hafi nokkurn grun um, hvað hann á í vændum. Þau hafa öll skilyrði til að verða hamingjusöm í hjónabandinu — f jölskyldur þeirra eru gamalt vinafólk og þau hafa þekkst frá því að þau voru börn, efni eru góð og þeirra bíður rúmgóð og skemmtileg íbúð. En afstaða brúðurinnar lofa.r ekki góðu. Hún var að kaupa hanzka ásamt einni af brúðarmeyjum sínum og ræddi frjáls- lega um fyrirætlanir sínar við mig. Tom þarf oft að fara til New York, atvinnu sinnar vegna, og honum þykir þægilegast að fara með flugvél, en Sharon hefir lagt blátt bann við því. ,,Ég er svo hrædd að láta hann fljúga, að ég þvertók fyrir það.“ Hún sagði mér einnig, að hún hefði tal- að hreinskilnislega við Tom um móður hans. Tom hafði viljað, að þau kæmu við í Santa Barbara hjá móður hans, þegar þau færu brúðkaupsferð sína til Mexíkó. Sharon neitaði því. „Það yrði aðeins til að skapa hættulegt fordæmi, við yrðum þá að koma þar við í hvert skipti, sem við ættum leið þar nálægt,“ sagði hún við mig. Við minntumst eitthvað á veiðiskap. Tom er ágæt skytta og þykir gaman að fara á andaveiðar. ,,Ég er svo hrædd við byssu,“ sagði Sharon. „Ég yrði miður mín af hræðslu, ef Tom héldi áfram þessum veiði- ferðum eftir að við erum gift.“ „Tom verður áreiðanlega bezt vandi eig- inmaðurinn í öllum bænum,“ sagði hún von- góð og glaðleg. „Vinir hans munu ekki þekkja hann. Ég bað hann um að sýna mér ávísanabókina sína hérna um daginn, og hann varð að gefa mér skýringar á ýmsu. Heldurðu ekki,“ sagði hún og sneri sér til mín, „að bezt sé að venja þá strax í upphafi?“ Ég var of undrandi til að geta svarað. Ef hún hefði verið að tala um kjölturakk- ann sinn, mátti segja að eitthvert vit væri í þessu, sem hún var að segja, en Tom er þriggja álna, þrekvaxinn, f jörmikill og ein- beittur, ungur maður, velgefinn og með góða menntun. Sharon borgaði hanzkana og kvaddi mig full tilhlökkunar, en ég fyllt- ist meðaUmkun með veslings Tom. Það koma auðvitað fyrir þau tilfelli, þegar eiginkona getur beitt áhrifum sín- um, en það er sjaldan, og gæta verður þess að beita þeim með nærgætni. Menn breyt- ast, og konur einnig, í hamingjusömu hjónabandi; en þau breytast án þess að vita af því. Þau áhrif til breytinga, sem hjón hafa hvort á annað í ástríku hjóna- bandi, eru aldrei sýnileg. Mér segir því illa hugur um hjónaband þeirra Sharon og Tom. Ég er nokkurn veginn viss um, að hann muni fyllast eirð- arleysi og uppreisnaranda undir þessari skipulögðu tamningu. Engin stúlka skyldi giftast manni, nema henni þyki vænt um hann eins og hann er. Svo virðist sem Sharon elski aðeins þá möguleika, sem hún telur sig sjá í Tom, og ef hann fær ein- hvern tíma grun um, að hann hafi kvænst einskonar kennslu- eða tamningarkonu, mun hann gera uppreisn. Stundum kemur þessi ráðríkistilhneig- ing fram hjá konum eftir margra ára hjónaband. „En því ekki að hafa gráa veggfóðrið í forstofunni?" spyr eiginmað- urinn. „Af því að það væri blátt áfram hlægilegt, góði minn,“ segir konan. „Af hverju væri það hlægilegt? Var ekki gamla stofan okkar heima þannig?“ „Gamla stof- an okkar var líka leiðinleg,“ segir konan, „og auk þess vita allir, að þú hefir ómögu- legan smekk, elskan.“ Ég þekki konu, sem aðeins brosir og hlustar, þegar maðurinn hennar lætur í ljósi við morgunverðarborðið álit sitt á ýmsu viðvíkjandi heimilishaldinu. Hún brosir og hlustar, og lyftir augnabrúnun- um og hristir höfuðið lítið eitt um leið og hún kinkar kolli til dóttur sinnar. Svipur hennar segir: „Við höfum þetta eins og okkur sýnist undir eins og hann er farinn.“ Það er mjög sjaldgæft, að menn sýni konum sínum jafnhrokafullt yfirlæti. Þvert á móti virðist sú skoðun mjög almenn, að „mamma viti bezt, hvernig þetta eigi að vera.“ Þannig hætta sumir menn að um- gangast skyldmenni sín, og gamla vini, leggja niður gamlar, notalegar venjur, borga kvörtunarlaust húsgögn og veggfóð- ur, sem þeim geðjast í raun og veru alls ekki að. Þetta getur gengið árum saman, en að lokum fyllist mælirinn — og það er hyggilegt fyrir eiginkonur að nema stað- ar áður en svo langt er komið. Kona, sem gerir sér mikið far um að reyna að breyta manni sínum, getur eins vel búizt við því, að það verði til þess að hún missi hann alveg. Mjög- óvenjulegt flugslys varð fyrir skömmu 800 km. undan ströndum Nýfundnalands. „Constellation“- farþegaflugvél var á leið til Evrópu í 6000 metra hæð, þegar glerþakið yfir sæti flugmannsins svift- ist skyndilega af. Klefar flugvélarinnar voru loftþéttir, og til þess að farþegar og áhöfn gætu andað í svona mikilli hæð, var loftþrýstingurinn inni í vélinni miklu meiri en fyrir utan. Þegar þakið sviftist af, varð loftstraumurinn upp um gatið svo öflugur, að hann hreif með sér flugmanninn. Öðrum flug- manni tókst að lækka flugið áður en farþegum varð meint af loftleysinu. Leitað var að flugmanninum, en árangurslaust. Örin sýnir, hvernig menn hugsa sér að slysið hafi orðið.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.