Vikan - 11.09.1947, Blaðsíða 7
VIKAN, nr. 37, 1947
7
Vlada og sonur Kennar
(Ótrúleg, en sönn saga úr síðasta stríði)
I júgóslaviskum blöðum stóð þessi frá-
sögn fyrir skömmu. Vorið 1943 yfir-
gaf Vlada Propovich borgina Belgrad með
litla drenginn sinn, sem var átta ára. Vlada
var ung kona. Hún leitaði uppi skæruliða-
flokk. Fyrir fáum dögum hafði hún mót-
tekið öskukrukku. Það var askan af manni
hennar. Hann hafði verið skotinn í þýzk-
um fangabúðum. Sorg Vlödu var svo mikil
að hún gat ekki grátið. Hefndin logaði í
sál hennar. Hún ákvað að hefna manns
síns með öllum mætti sínum. Vlada leiddi
drenginn sinn uppí bosnisku fjöllin. Þar
fann hún lítinn hóp skæruliða. Aðseturs-
staður hans var vel falinn. Þarna fékk
Vlada að vera með drenginn sinn. Hún
hafði mikið að gera við matreiðslu, og
hjúkrun sjúkra. Ekki var tími til þess að
kenna litla Pavel. Þó kenndi Vlada honum
bókstafina. Hún ritaði þá á flag með priki,
eða gerði mynd af þeim með smáspýtum.
Sumarið leið. Er veturinn kom varð þröngt
í búi. Bændurnir í nágrenninu voru ekki
lengur aflögufærir.
Eða réttara sagt gátu ekki látið nóg af
mörkum. Skæruliðunum leið illa af sulti og
kulda. Hríðardag nokkurn fóru tveir
skæruliðar til næsta þorps. Þetta var mikil
hættuför. Þeir komust aftur til aðseturs-
staðarins. En Þjóðverjar höfðu orðið þeirra
varir, og eltu þá. Það kom til bardaga.
Hann var harður. Júgóslavnesku ættjarð-
arvinirnir börðust eins og ljón og feldu
marga Þjóðverja. En þeir biðu að lokum
ósigur. Allar konur, einnig Vlada og dreng-
urinn, voru teknar til fanga. Þeim var mis-
þyrmt og fanganúmer rispað á þær. Að
því loknu voru allir fangarnir, menn og
konur, rekin uppí járnbrautarvagnana, og
átti að flytja fólk þetta til Póllands.
Þessi lest, hlaðinn óhamingjusömu fólki,
hélt svo leiðar sinnar. Það var ekið dag og
nótt án þess fólkið fengi vott né þurt og
kuldinn kvaldi það. Við og við voru dyrn-
ar opnaðai' og þeim dauðu fleygt út. Á
þriðja degi gátu fangarnir gert dálitla rifu
á hurðina. En rifan var ekki nógu stór til
þess að fullorðinn maður gæti komist út.
En Vlada áleit að drengurinn kæmist út
um hana. Þetta var þó veik von. Hún bjóst
við að böðlarnir yrðu drengsins varir, og
skytu hann, þó að hún gæti ýtt honum út.
Vlada trúði því að einhver góðhjartaður
maður fyndi drenginn og bjargaði honum.
Eitt sinn er lestin hægði ferðina, vegna
þess að hún fór upp bratta brekku, ýtti
Vlada litla drengnum sínum út um rifuna.
Hún hlustaði með öndina í hálsinum hvort
hún heyrði skot. En svo var ekki. Og hægði
henni þá. Hún vonaði að drengurinn kæmist
lífs af. Vlada var ekki flutt til gasklefanna
í Oswieczim. Hún var svo ung og hraust
að hún var sett í vinnu í fangabúðunum. Þar
Framhald á bls. 15.
FELUMYND.
Hvar er kærasti stúlkunnar?
Kóngur kúrekanna
Roy Rogers í þjófaleít.
Kvikmyndaleikarinn Roy Rogers
1. Roy er að leita að fiæknigsnautum á sólbakaðri slétt-
unni og nemur staðar við ársprænu til að brynna Þjósta,
gæðingnum sínum. Allt í einu heyrir Roy hófaskelli að
baki sér. Hann vindur sér við í hnakknum og sér fjóra
hesta, sem hafa fælst, með vagn í eftirdragi.
2. Ekillinn situr ráðalaus í ekilsætinu og er búinn að
missa taumana. Roy snýr Þjósta við og þeysir á eftir
vagninum. Um leið og hann kemur á hlið við forustu-
hestinn, vegur hann sig á loft í hnakknum og sveiflar
sér af heljarafli á bak honum.
3. Andartak virðist svo sem Roy ætli að missa
jafnvægið og detta af baki fyrir fætur hinna
trylltu hesta, en svo tekst honum að ná í taum-
ana. Hann réttir sig við í hnakknum og togar
af öllum mætti í taumana. Hestamir stillast og
von bráðar nema þeir staðar.
4. Ekillinn segir sínar farir ekki sléttar. „Litill
strákpatti miðaði á mig skammbyssu og skipaði
mér að láta sig hafa peningana mína. Eg varð að
láta hann hafa 400 dollara og svo fældi hann fyrir
mér hestana!” Roy þeysti af stað til að leita að
ræningjanum.
5. Roy veitist auðvelt að rekja slóð ræningj-
ans, því á slóðinni mátti sjá, að hesturinn hans
var með brotna skeifu á einum fæti. Brátt kemur
hann að hrörlegum bjálkakofa. Hann fer af baki,
dregur upp skammbyssuna og læðist með spenntá
byssuna að kofadyrunum.
(Niðurlag sögunnar kemur í næsta blaöi).