Vikan - 13.11.1947, Blaðsíða 7
■VIKAN, nr. 46, 1947
7
Jón Stefánsson
Framháld af bls. 3.
Stefán einn af ættingjum sínum
1 Danmörku til Zahrtmann til að
fá vitneskju um, hvort Jón hefði
raunverulega listamannshæfi-
leika. Svarið var jákvætt, og
upp frá því styrkti Stefán son
sinn unz hann lézt árið 1910.
1 skóla Matisse var Jón í þrjá
vetur, en árið 1912 yfirgaf hann
París og hélt heim. Nærri má
geta, að hann hefir málað mikið
á Parísarárum sínum, en ekk-
ert af því tók hann með sér
heim. Yfirleitt hefir ekkert
varðveitzt af þeim málverkum,
sem hann málaði fyrir 1916.
Vorið 1913 fór Jón aftur til
Kaupmannahafnar, bjó hann
þar öll stríðsárin og allt til árs-
ins 1924, að hann flutti til
Reykjavíkur. Þó dvaldi hann
heima á Islandi á sumrin frá
1919, ferðaðist mikið um landið
og málaði.
Fyrstu myndir hans frá ár-
unum 1916—19 eru af fyrirsæt-
um (módelstúdíur), manna-
myndir og samstillingar (græn-
ar plöntur, epli og könnur). En
heima á Islandi málar hann
einkum myndir af íslenzkri
náttúru. I bók sinni um Jón
segir Uttenreitter: „Hann hefir
aldrei málað landlagsmyndir
nema frá Islandi og getur yfir-
leitt ekki hugsað sér að mála
annað landslag. Sjálfur hefir
hann skrifað: „Heimskauta- og
eldf jallanáttúra Islands er erfitt
viðfangsefni, sem freistar mín
stöðugt... mér finnst íslenzkt
landslag í samanburði við lands-
lag meginlandsins eins og nak-
inn líkami í samanburði við lík-
ama, sem hjúpaður er klæðum.
Og einmitt af því að náttúran
er nakin, er hún svo undarlega
fögur...“. Hið framandi í
efnisvali hans getur stundum
torveldað skilning útlendinga á
myndum hans. Svo er til dæmis
um „Strokuhest" og „Þorgeirs-
bola,“ þar sem hinn sálræni
bakgrunnur liggur ekki ljóst
fyrir þeim, sem þekkja ekki
þjóðsögurnar. Og það á einnig
við um margar af landslags-
myndum hans. Hin mikla dýpt
þeirra, sem augað er ekki vant,
og hið sérkennilega, þunga lita-
skrúð, hljóta að vekja hjá út-
lendingum hugboð um eitthvað
ótrúlegt, villt og rómantískt. 1
fyrstu myndum sínum, manna-
myndum og samstillingunum,
er Jón Stefánsson ef til vill
meiri Frakki en Islendingur. En
ekki í landlagsmyndum sínum.
„Ég er og verð Islendingur,"
skrifar hann sjálfur með tilliti
til listar sinnar, „ég get ekki
annað — það er mér í blóð bor-
ið og í hug ofið, hvað sem ég
geri, og hvað sem aðrir segja.“
Islendingar hafa eignazt
marga merkilega listmálara á
þessari öld og þróun myndlist-
arinnar hér veriðfurðulegastór-
stíg, en enginn vafi er á því,
að Jón Stefánsson verður allt-
af talinn einn merkasti braut-
ryðjandi þjóðarinnar á þessu
sviði.
Kóngur kúrekanna
í baráttu við eld og bófa.
(Framh. úr síðasta blaði).
Roy hefir bjargað Mexíkódreng út úr brennandi húsi.
1.
rændi pabba mínum!" segir Pedro litli. „Eg reyndi
að losa mig með þvi að brenna í sundur böndin
með logandi viðarbút, en þá kviknaði í húsinu.“
„í>ú ert duglegur drengur,“ segir Roy brosandi.
„Hvar get ég fundið þennan E1 Morino og glæpa-
hyski hans?“
veit um felustað ræn-
ingjans, og þeir tvímenna á Þjósta í áttina til
fjalla. „Pabbi var einn af félögum E1 Morinas,"
segir Pedro, ,,en þegar hann vildi hætta að ræna,
tóku þeir hann með sér. Ég er svo hræddur, ég
veit að þeir ætla að gera pabba eitthvað illt!“
3. „Eg skal bjarga pabba þínum, drengur
minn,“ segir Roy. „Er þetta felustaðurinn ? “ „Já,
héma er það,“ segir Pedro. Roy segir Pedro að
fara af baki og þeysir hann af stað. Hann hefir
ráð í huga til að koma ræningjunum að óvörum.
En það þarf kjark og snarræði til, ef bragðið á
að heppnast.
4. Um leið og Þjósti hleypur framhjá upp-
ljómuðum glugga, grípur hann í þalcskeggið og
vegur sig upp úr hnakknum. Síðan sveiflar hann
sér af heljarafli á rúðuna, með fæturna á undan.
Glerbrotin hrökkva í allar áttir og það heyrast
undrunar og hræðsluóp frá Mexíkönunum, en áður
en varir stendur Roy á miðju gólfi!
5. Roy er ekki fyrr kominn niður á gólfið en
tvær skammbyssur glitra í höndum hans. „Upp
með hendurnar!" hrópar hann til ræningjanna.
„Mér datt í hug að lita inn til ykkar rétt sem
snöggvast!" E1 Morino hörfar aftur á bak. „Þetta
er Roy kúreki!“ hrópar hann í skelfingu.
6. Sýslumaðurinn er himinlifandi yfir þvi að
Roy skuli hafa tekizt að festa hendur í hári
ræningjanna og fær Roy álitlega fjárupphæð að
launum. En Roy vill ekki sitja einn að þessu.
Hann kaupir allskonar kræsingar og heldur mikla
jólaveizlu fyrir Pedro og pabba hans — í húsi
E1 Morino!