Vikan


Vikan - 13.11.1947, Page 10

Vikan - 13.11.1947, Page 10
10 VIKAN, nr. 46, 1947 Heimagerðir hlutir. HEIMlLlfJ Matseðiliinn Soðin síld í karry með hrísgrjónum. 6—8 síldar, 1 1. vatn, 1 laukur, 2 matsk. edik, 4 piparkorn, 2 láberjarlauf. Sósan: 30 gr. smjörlíki, 40 gr. hveiti, % 1. sildarsoð, % tesk. karry, 75 gr. hrísgrjón. Hreistrið er strokið af síldinni með' bréfi, annars hreinsuð eins og annar fiskur. Skurður er skorinn eftir bak- inu á síldinni, og dálkurinn skorinn burtu með þumal- og vísifingri. Bein- in eru soðin í saltvatni með krydd- inu og soðið siað. Síldin er vafin upp og rúllurnar settar hver við hlið- ina á annari í smurðan pott. Þar yfir er beinasoðinu hellt, og síldin soðin í 2 mínútur. Sósa nr. 3 er búin til úr síldarsoð- inu. Karryinu er fyrst hræit saman við hveitið. Síldinni er raðað upp á fat. Sósunni hellt yfir, og soðin hris- grjón látin í hring utan um. Aths: Vefja má spotta utan um síldarrúllurnar. Síld steikt í bréfi. 2—3 síldar, 100 gr. smjörlíki, 1 laukur, V, tesk. pipar, kartöfl- ur í jafningi. Bezt er að hafa nýja síld í þennan rétt, en sé síldin söltuð, þarf að af- vatna hana mjög vel. Síldin er hreins- uð eins og áður er sagt. Beinin tekin úr henni. Lauksneiðar lagðar innan i síldina. Smjörpappir smurður með smjöri og vafinn utan um sildina. Seglgarni hnýtt utan um. Smjörlíkið brúnað á pönnu og síldin brúnuð, þar til bréfið er móbrúnt. Bréf og seglgarn tekið utan af síldinni og henni raðað á steikarfat. Smjörinu hellt yfir. Borðað með kartöflujafn- ingi. (tír bókinni „Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur. títgef- andi: Isafoldarprentsmiðja h. f.). HUSRAÐ Ef þið ætlið að gefa húsgögn, svo sem stól, hafið þá í huga þann, sem á að fá hann. Ef maðurinn er værugjam og finnst gott að fá sér blund veljið þá stól, sem er likur þeim á myndinni. Ef þú þarft að athuga pípurnar við arininn skaltu nota spegil og vasaljós. Ábreiður, sem eru hreinsaðar dag- lega, endast betur. Ryk og óhreinindi slíta þeim. Hegðun bama við guðsþjónustur Eftir Dr. G. C. Myers. Þegar við förum í kirkju eigum við að stuðla sem mest að því að guðsþjónustan verði hátíðleg. Það er ósiður að koma of seint eða fara áður en guðsþjónustunni lýkur, sömuleiðis að tala undir afhöfninni og gera óþarfa hávaða. Foreldrarnir eiga eins og ætíð að gefa bömum sínum gott fordæmi um, hvernig þau eiga að haga sér í kirkju. Þess vegna ættum við að vera búin að sitja kyrr og róleg dálitla stund áður guðsþjónustan hefst og einnig að bíða þar til hún er á enda. Þegar bamið er með, segjum við því að hegða sér eins og við gemm. Þið hafið sjálfsagt verið við guðþjónustur, þegar fólk hefir komið seint og farjð meðan síðasti sálmurinn var sunginn og þá tekið eftir, hversu hávaðinn og bröltið i því hefir skert hátið- leika guðsþjónustunnar. Barnið mun sækja kirkjuna stund- víslega, ef það er vanið á að fara tímalega í sunnudagaskólann. Það er hreinasta þjóðarskömm hversu fólk lætur sér það i léttu rúmi liggja þó það komi of seint í kirkju og ali svo börn sin upp við þennan ósið. Auðvitað fer barnið oft í kirkju án þess að vera í fylgd með for- eldrum sínum og þá reynir fyrst á hversu uppeldið hefir heppnazt og hvaða hugsjónir barnið hefir drukkið í sig á heimilinu. En þvi miður, eftir framkomu margra barna að dæma, vi"ðist þessu vera oft mjög ábóta- vant. Það er ekki nóg fyrir foreldr- ana að fá barnið til að fara í kirkju, heldur verða þau að brýna sem bezt fyrir því að vera prútt og stillt og hlusta á það sem sagt er. Maður (nýkominn heim til þorps síns eftir margra ára fjarveru, við þann fyrsta, sem hann mætír): „Sæll, Jón. Þú hefir breytzt svo mikið að ég ætlaði ekki að þekkja þig.“ Þorp.sbúinn. „Ég heiti ekki Jón.“ Maðurinn: „Hvað er að heyra þetta. Hefir þú líka breytt um nafn.“ „Andlitskassi“ úr plastic. Allar stúlkur kannast við, hversu óþægilegt er að fara í kjólinn, eftir að búið er að bera á sig andlitsfarða og varalit. Það er því ágætt ráð að búa sér til „andlitskassa" úr plastic eins og þann, sem sést á myndinni. Kauptu þér nokkrar plastic þynnur og sníddu þær hæfilega stórar fyrir höfuðið á þér. Gerðu göt í brúnimar með heitum al og saumaðu þær sam- an þannig, að úr verði ,,kassi“ eins og sést á myndinni. Hentugt í ferðalögum. Fátt er leiðinlegra en að þurfa að rífa upp og róta til í töskum til að dót, sem liggur laust innan um föt. Þið kannist áreiðanlega við hvemig það er. Saumið ykkur því sauma- möppu, sem auðvelt er að búa til. Efnið í hana eru gamlir silkiafgang- ar og fóður, sem er mjúkt og þunnt. Stíft léreft er haft á milli og gjarn- an má líma silkið og fóðrið á lér- eftin og lagt eitthvað þungt ofan á það meðan það er að þorna. Brún- irnar em lagðar silkisnúrum og mappan hnýtt aftur með borða. Inn- an í möppuna em saumaðir alls kon- ar vasar og lykkjur, sem hægt er að stinga smádótinu í, sem annars lægi hér og þar um töskuna eða í einum graut í kassa. Hentug vetrarhúfa. Búið til þessa litlu húfu úr þykku ullarefni og fóðrið hana að innan. Sníðið hana og þræðið saman, eins og sínt er á myndinni, en teygja er saumuð í brúnina til að húfan falli þétt að andlitinu. Tveir saumar em teknir sinn hvoru megin til að húf- an falli vel að hálsinum, auk þess er saumaður kragi við hana, sem er látinn ganga undir hálsmálið á káp- unni. Guðný Sveinsdóttir, Sjúkrahúsi Isafjarðar, hefir gert þessar brúður að öllu leyti nema höfuðin.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.