Vikan


Vikan - 15.04.1948, Page 3

Vikan - 15.04.1948, Page 3
VTKAN, nr. 16, 1948 3 Foringi fjögra milljona hers Grein úr tímaritinu ,,Úrval“, eftir Dorothy Walworth. í 82. aldursári er Evangeline Booth hershöfðingi eins mesta hers í heimi, bæði að tölu og áhrifum. Her þessi er Hjálp- ræðisherinn. Um 4 miljónir manna bera einkennisbúning hans, starfa í 92 löndum og tala 102 tungumál. Þessi her Krists helgar líf sitt þjónustu og fórn; aginn er strangur og kröfurnar harðar til þeirra, sem vilja ger- ast foringjar innan hans. 1 allri sögu hersins hafa hershöfðingj- ar hans aðeins verið sex. Ég heimsótti Booth hershöfð- ingja síðastliðið vor á heimili hennar skammt frá New York. Hún er gædd þeirri ótímabundnu fegurð, sem hlotnast þeirri konu, er ber ljós og skugga í hjarta sínu. En ekki gat ég eitt andar- tak gleymt því, að þessi grann- vaxna, tígulega kona var hers- höfðingi. Þótt hún hafi sleppt stjórnartaumunum, er hún enn hermaður af lífi og sál, engu síð- ur en þegar hún hóf starf sitt sem nýliði sextán ára gömul í fátækrahverfum Lundúnaborg- ar. Hjálpræðisherinn tók til starfa árið 1865, þegai* William Booth meþódistaprestur og kona ' hans Catherine kvekari hófu björgunarstarf sitt í fátækra- hverfum Austur-Lundúna, en íbúar þeirra voru ekki taldir hæfir til að sitja á hinum gljá- andi bekkjum biskupakirkjunn- ar. Booth-hjónin töluðu á stræt- um úti og öreigar og afhrök hlustuðu á þau með fögnuði. Þúsundum saman skipaði fólk sér í raðir hersins, og er frá leið tók fáni hersins með áletruninni „blóð og eldur“ að blakta víða um heim. Evangeline Booth fæddist á jóladagsmorgun árið 1865. ,,Ég var fjörmikið barn,“ segir hún, „og meira gefin fyrir að leika á gítarinn minn og koma fólki til að hlæja, heldur en að fást við eldamennsku og saumaskap. Ég lék mér með strákum. Brúður leiddust mér, af því að þær voru hjartalausar. En mér þótti gam- an að skepnum.“ „Hvenær vaknaði löngunin hjá yður til að verða hermað- um?“ spurði ég. „Mjög snemrna," svaraði hún. „Ég sá foreldra mína vinna fyrir fólkið og bera byrðar þess, jafnt á nótt sem degi. Þau þurftu ekki að minnast á kristindóm einu orði. Ég sá hann í starfi þeirra. Á fimmta afmælisdegi mínum tók mamma mig á eintal. Hún sagði, að ég bæri nafn fagnaðar- boðskaparins, og að hún vonaði að heimurinn yrði betri fyrir það að ég væri í hann borin, og að ég yrði að hugsa um það hvað ég ætlaði að gera við líf mitt. Foreldrar mínir vissu ekki, hve djúptæk áhrif starf þeirra og fórnfýsi hafði haft á mig. Þau óttuðust sífellt, að ég yfir- gæfi herinn, og þegar ég eltist fengu þau jafnvel grun um, að ég ætlaði að gerast leikari, því að — þó ég segi sjálf frá — var ég lagleg og hafði góða rödd. Auk þess var ég hvorki kaldlynd né tepruleg. En ég lét aldrei freistast af heiminum, að minnsta kosti ekki of mikið. Það er gaman að láta freista sín svo- lítið, eins og þér vitið.“ „Þér hafið aldrei gifzt,“ sagði ég. Það færðist skuggi yfir andlit hennar. „Mér geðjaðist alltaf vel að karlmönnum,“ sagðihún. „En eini maðurinn, sem ég hefi elsk- að, vildi að ég yfirgæfi herinn. Leiðir okkar skildu því. Ég hefi tengzt miljónum hjartna í stað eins. Ég syrgi það ekki, en ég gleymi því ekki.“ Evangeline byrjaði starf sitt 16 ára. Hún gekk ekki með ein- kennishatt hersins, hattinn, sem móðir hennar hafði sniðið eftir kvekarahatti sínum. Hún áleit, að hún myndi komast nær fólk- inu í fátækrahverfunum, ef hún gengi eins klædd og það. Hún klæddist því í tötra og lagði leið sína inn í bjórstofurnar, fang- elsin og öngstrætin. „Fólkið kallaði mig „hvíta engilinn", sagði hún. „Ef til vill af því að ég var föl af tauga- óstyrk. Oft var ég hrædd. Enda kom ég á staði, sem lánsamt fólk getur ekki ímyndað sér, hvemig voru.“ Hún þagnaði og leit á mig alvörugefin. „Það er erfitt að skýra það,“ sagði hún, „en von- bráðar varð ég eitt með þessu fólki. Ég lifði ekki einu, heldur mörgum lífum. Ég var sótarinn, konan, sem seldi fölnaðar f jólur á torginu. Og því meir sem ég kynntist myrkrinu, þvi ákafar þráði ég að boða sannleikann um ljós heimsins. Ég byrjaði með þvi að túlka hann í tónum. Ég settist út í horn í veitingastofunni með gítarinn minn og byrjaði á f jör- ugri vísu. Kliðurinn í salnum lækkaði og fólkið fór að hlusta. Svo reyndi ég sálm. Eg notaði alltaf tónlistina, og herinn hefir haldið því áfram síðan, því að hún talar beint til hjartnanna. Hún vekur ekki deilur, heldur viljann til að fylgja. Hún vekur endurminninguna um allt hið góða, sem við höfum kynnzt, og löngunina til að finna það aft- ur.“ Átján ára var Evangeline gerð að lautinant. Hún bjó í her- bergiskytru í einu fátækra- hverfinu. Búslóðin var tveir stólar og lélegt rúmstæði. „Við áttum marga óvini á þessum árum,“ segir hún. Víg- orð okkar „bjargið þeim sem eru í hættu, huggið þá, sem eru dauðvona" hljómaði illa í eyrum betri borgara. Þeir sögðu, að við værum að ala á óánægju meðal fátæklinganna. Okkur var ekki leyft að halda samkomur í kirkj- unum. Brunaliðið beindi að okk- ur vatnsdælum sínum. Dómar- amir dæmdu hermenn okkar í langar fangglsisvistir fyrir að valda óspektum á almannafæri. Oft kom það fyrir, að trúleys- ingjar og götustrákar, vopnaðir grjóti og bareflum, hleyptu upp samkomum mínum. Við Hjálp- ræðishermerm áttum að biðja fyrir óvinum okkar. En ég fann aðrar leiðir til að blíðka þá. Einu sinni kom það fyrir, að maður nokkur kastaði steini í mig, svo að blæddi úr handleggnum. Ég fór rakleitt til hans og sagði: „Héma, bittu um þetta. Þú gerð- ir þetta, það er bezt þú gangir frá þvi.“ Maðurinn varð irndr- •andi, en breyttist samstundis úr óvin í vin. Hann batt um hand- legginn, og seinna gekk hann í herinn. 1 hvert skipti, sem ég stóð andspænis trylltum múg, sneri ég mér til forsprakkans og bað hann um að vernda mig. Og það brást aldrei, að hann snerist á mitt band. Þegar ég sagði tilheýrendum mínum, að guð elskaði þá og mundi frelsa þá frá allri synd, var oft kallað fram í fyrir mér og sagt: „Hvað veit ung stúlka eins og þú um synd?“ Þá svar- aði ég: „Ég efast ekki um, að þið vitið margt um syndina sem ég veit ekki.“ Af þessu urðu þeir hreyknir. Þeim var nóg að fá það viðurkennt, að þeir vissu meira en ég, jafnvel þó að það væri aðeins um syndina. Auðvitað gáfum við þessu fólki mat, föt og húsaskjól eftir því sem föng voru á. En við gáf- um því margt annað, sem var jafnvel enn þýðingarmeira — t. d. sjálfsvirðingu. Einu sinni kom ég í sóðalega kjallaraíbúð. Fjögur börn voru á heimilinu, móðirin var nýdáin af völdum barnsfæðingar og fað- irinn var ofdrykkjumaður. Ég fór með börnin heim í herbergis- kytruna míha. Þegar faðirinn frétti, að ég hefði tekið börnin, ruddist hann inn til mín með öskrum og óhljóðum og hótaði að drepa okkur öll. Þegar hann sá eldinn í arninum, hvítan dúk- inn á borðinu og börnin sín í hreinum fötum, hrein og rjóð í framan, rak hann upp stór augu. Ég sagði við hann: „En hvað þetta eru falleg börn! Það hlýt- ur að vera margt gott um þann mann, sem á svona falleg börn.“ Þessi orð vöktu sjálfsvirðingu hans. Þetta kvöld byrjaði hann afturhvarf sitt.“ Þó að Evangeline nyti engra sérréttinda fyrir það, að hún var dóttir stofnanda Hjálpræðis- hersins, fór ekki hjá því, að dugnaður hennar og stjórnsemi vekti athygli. Tuttugu og þriggja ára varð hún erindreki Hjálpræðishersins í Londoh; átta árum síðar varð hún kommandör í Kanada; og 38 ára var hún gerð að yfirmanni hers- ins í Bandaríkjunum. Árið 1934 var hún útnefnd yfirhershöfð- ingi alls Hjálpræðishersins. Evangeline andvarpaði. „Þessi ár voru full af lífi og starfi. Ég ferðaðist um allan heim, talaði Framhald á bls. 15. \

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.