Vikan


Vikan - 15.04.1948, Síða 15

Vikan - 15.04.1948, Síða 15
VIKAN, nr. 16, 1948 15 Foringi fjögra milljóna hers Framliald af bls. 3. á stöðum svo þúsundum skipti og kynntist fleira fólki en tölu verði á komið. Ég hélt mér eins mikið og ég gat burt frá skrif- stofum og nefndarfundum — þessum greftrunarathöfnum starfsgleði og áhuga. En það var margt, sem ég aldrei gat öðlazt. Til dæmis þol- inmæði. Ég var óþolinmóð sem ung stúlka og ég hefi lítið batn- að með aldrinum. Ég get aldrei sýnt þolinmæði gagnvart því fólk, sem heldur að herinn okkar sé hópur glað- lyndra fáráðlinga, sem ekki geri annað en að syngja og leika á gítar. Slíkt fólk hefði gott af að kynnast starfsemi okkar nánar: Trúboðsskólum okkar á stöð- um þar sem ekki er völ á öðru skólanámi. Sjúkrahúsum fyrir ógiftar mæður. Kvöldheimilum fyrir gamalt fólk. Sumardvala- stöðum fyrir fátæk borgarbörn. Drykkjumannahælum okkar, þar sem notaðar eru nýjustu vísindalegar aðferðir í barátt- unni við ofdrykkjuna. Sauma- verkstæðum okkar, þar sem þús- undir manna vinna við að gera við gömul föt, sem okkur hafa verið gefin, svo að klæðlaus- ir geti fengið föt. Vinnumiðlun- arskrifstofum, og sjómanna- og gestaheimilum. Auðvitað eru mér sérstaklega hugstæð ódýru gistihúsin okkar fyrir verk- smiðjustúlkur; þau eru kölluð Evangeline Booth-heimilin, og ég stofnaði hið fyrsta þeirra. Starf okkar er tvíþætt. Fyrsta markmið okkar er að frelsa mannssálir. Við trúum því, að sérhver maður verði að frelsast — þ. e. verði að iðrast og taka kristna trú og byrja nýtt líf. En við biðjum engan að byrja nýtt líf, án þess að sýna honum hvernig hann eigi að fara að því. Margir af þeim sem frelsast hrasa aftur og missa kjarkinn. Það er þá, sem þeir þarfnast hjálpar, og hana reyndum við að láta þeim í té.“ Booth hershöfðingi lagði nið- ur völd árið 1939, 73 ára gömul. En hún vinnu enn 18 stundir á sólarhring, heldur ræður, skrif- ast á við fólk út um allan heim og gefur foringjum hersins og óbreyttum liðsmönnum góð ráð. Og hún situr heldur ekki auð- um höndum í tómstundum sín- um. Hún hefir yndi af að synda, UTSVÖR í Reykjavík 1948 Hinn 1 þ. m. féll í gjalddaga 2. afborgun upp í fyrir- framgreiðslu útsvara í Reykjavík árið 1948, og er þá gjaldkræft alls sem svarar 25% af útsvari gjaldendanna, eins og það var ákvarðað á síðastliðnu gjaldári 1947. Atvinnurekendur og aðrir kaupgreiðendur eru sér- staklega minntir á skyldu sína til að halda eftir útsvars greiðslum af kaupi starfsmanna — og gera tafarlaust skil til bæjargjaldkerans. Það er mjög áríðandi, að gjaldendur greiði útsvörin á réttum tíma — og þó einkum, að kaupgreiðendur ræki þá skyldu sína, að halda útsvarsgreiðslum eftir af kaupi, og að skila útsvarsgreiðslunum til bæjargjaldkera þegar í stað. Borgarstjóraskrifstofan. og hún stekkur enn svanastökk- ið. Á hverjum morgni fer hún á fætur klukkan hálf sjö og fær sér góðan sprett á hestbaki. Ég spurði hana, hvort hún hefði alltaf verið örugg í trú sinni. ,,Ég hefi háð mína baráttu," sagði hún stillilega. ,,Ég hefi spurt sjálfa mig að því, hvers vegna mamma þurfti að deyja úr krabbameini og pabbi að verða blindur. Ég hefi spurt, hvers vegna þjáningin í heim- inum væri svona mikil, og hvers vegna væri alltaf meira um sorg en gleði. En ég hefi sagt við sjálfa mig: guð væri ekki mik- ill guð, ef ég gæti skilið hann. Heimurinn væri ekki merkileg- ur, ef hann lægi allur opinn fyr- ir mér. Það er erfitt að trúa. Þess vegna eru trúleysingjarnir hin- ir raunverulegu ístöðuleysingjar í þessum heimi. Mér finnst bros- leg trú sumra manna. Það er eins konar háfleyg, dramatísk trú, sem veitir þeim styrk í stórum áföllum, en er þeim eng- in stoð í amstri hins daglega lífs. Þeir standa keikir meðan húsið brennur, en missa stjórn á sér, ef þeir týna hanzka. Trú þeirra getur borið allt — nema daglegt líf.“ Ég sagði: „Yður hefir verið sýndur margvíslegur sómi — hvað hefir snortið yður mest?“ „Allur sá sómi hefir mér ver- ið sýndur vegna þess að ég er fulltrúi Hjálpræðishersins,“ sagði hún stillilega. „En dásam- legustu stund lífs míns átti ég dag nokkurn í holdsveikraný- lendunni í Poethenkuruz í Suð- ur-Indlandi. Kór holdsveikra telpna hafði æft einn af sálm- um þeim, sem ég hefi gert fyrir herinn. Þegar bænin var búin, fóru þær upp að altarinu og röð- uðu sér upp í hvítu kjólunum sínum. Andlit þeirra og hendur voru alsett örum, en raddir þeirra voru hreinar og skærar. Þegar þær komu að orðunum: „With all my heart, I’ll do my partf‘ (Af öllu hjarta skal ég inna af hendi minn hlut), lögðu þær litlu, vansköpuðu hendurn- ar að hjarta sér. Ég varð yfirkomin," sagði hershöfðinginn, og það varð stundarþögn áður en hún tók aftur til máls. „Trúarljós þeirra var svo miklu skærara en mitt, að ég fylltist auðmýkt andspæn- is þeim.“ Bezta fermingargjöfin er Sjálfsævisaga Benjamíns Franklín í þýðingu Guðm. sál. Hannessonar, prófessors og Sigur- jóns Jónssonar, fyrrv. héraðslæknis. Um bókina skrifar séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup. „Þeir, sem lesa þessa ævisögu eru í góðum félagsskap. . . . Þeir, sem þýtt hafa og ritað, eiga þakkir skilið, svo og þeir, sem klætt hafa svo góða bók í svo fagran búning. En því má bæta við, að bókin á það sldlið, að margi^ lesi Iiana og íslenzk æska á það skilið, að fá að kynn- ast þeim dyggðum, sem leiða til heillaríkra dáða.“ Prentsmiðja Austurlands h.f. — Seyðisfirði. —

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.