Vikan - 22.04.1948, Síða 1
Listakonan Barbara Árnason og sonur þeirra hjóna,
Vífill Moray. Hann er nú níu ára og hefir ferðast viða
um land á hina fegurstu staði með foreldrum sinum.
(Þorsteinn Jósepsson tók myndina).
/
LISTAHJÓN
Á Lækjarbakka við Borgartún í Reykjavík hafa hjónin
Barbara og Magnús Á. Árnason hreiðrað um sig og stunda
þar listastarfsemi sína, þegar þau eru ekki á ferðalögum um
landið. Þar er fagurt útsýni til sjávar og eyja og fjalla og
ennþá rúmt um þau í allar áttir og varla tilviljun, að þau
hafa valið sér þennan stað. Magnús er hér löngu kunnur og
kona hans hefir unnið sér miklar vinsældir með verkum sín-
um, t. d. hafa birzt eftir hana fallegar og mjög vel gerðar
myndir í mörgum íslenzkum bókum.
(Sjá bls. 3).
T ’^tamaðurinn Magús Á. Árnason. Honum &r margt til lista lagt. Auk þess að frumsemja ljóð, sem birzt hafa bæði austan hafs og vestan, hefir hann
þýtt snilldarverk eftir Tagore og samið sönglög. (Vigfús Sigurgeirsson tók myndina).