Vikan


Vikan - 22.04.1948, Blaðsíða 2

Vikan - 22.04.1948, Blaðsíða 2
2 VIKAN, nr. 17, 1948: PÓSTURINN Bréfasambönd * Birting íi nafni, aldri n(r hpimil Kæra Vika! Ég er hrifin af strák, sem ég þekki svolítið. Það er nú reyndar mér að kenna að ég þekki hann svona lítið, því að ég talaði alltaf við hann einu sinni um allt milli himins og jarðar. En svo eftir að ég varð hrifin af honum, heilsa ég honum varla. Af einhverri kjánalegri feimni, sem kem- ur allt í einu yfir mig þegar ég hitti hann. Ég er ekkert feimin við aðra stráka. Hvað á ég að gera, Vika mín, til þess að hann verði hrifinn af mér? Ég held hann sé það ekki, því hann er svo ósköp þurrlegur þegar hann heilsar. Þú verður að svara mér, Vika mín! Því heima er ég alltaf svo utan við mig að það er farið að nefna það við mig. Og í skólanum veit ég hvorki upp né niður þótt ég læri heima, vaki hálfar og heilar nætur, bara af þvi ég er alltaf að hugsa um hann. Með þakklæti fyrir svarið. Ástfangin skólastelpa. Es.: Hann er ekki' i skóla, þvi er ver og miður, því þá skyldi ég bjóða honum upp í hverju dömufríi á dans- æfingunum. Ég myndi frekar þora það heldur en að tala við hann. Svar: Reyndur maður hefir sagt einhvers staðar, að þetta, sem þú þjáist af sé einskonar bamasjúkdóm- ur, á borð við mislinga, sem enginn sleppi við. Sem betur fer batnar þetta alltaf af sjálfu sér, og þó að batinn verði ekki alltaf á þann veg, sem helzt hefði verið ákosið, þá fylgir honum oft nokkurt ónæmi, þ. e. reynsla, sem hægt er að notfæra sér til vamaðar í svipuðum tilfellum í framtíðinni. Ráð getum við því miður engin gefið þér, önnur en þau, að þú reynir að láta ekki tilfinningamar stjóma þér allt of mikið. — En auð- vitað em slík ráð alveg gagnslaus. Halló Vika mín! Ég hef oft dáðzt að því, hvað þú getur svarað þessum fjölda spurn- inga, sem rignir yfir þig og þess vegna leita ég til þín ef þú gætir svarað þeim. Hverrar þjóðar er Yvonne De Carlo ? Hverjum er hún gift? Hvað er heimilisfang hennar eða kvikmyndaf élag ? Og segja mér allt sem þú veizt um Yvonne, hún er mitt uppáhald. Hvernig er skriftin? Bless Vika mín. Svar: Yvonne De Carlo er fædd í Vancouver i Bandaríkjunum 1. sept. 1924 og er hún ógift. Kvikmynda- félagið, sém hún leikur fyrir er Uni- versal, Universal City, California. Peggy Middleton er hið rétta nafn hennar og var hún dansmær áður en hún tók að leika í kvikmyndum. Hár hennar er brúnt og augun blá- grá; hæðin 162,5 cm. og þyngdin 53 kg-. Sigríður Jónsdóttir (við pilt 21—22 ára), Sjúkrahúsi Siglufjarðar, Siglufriði. Jessý Friðriksdóttir (14—15 ára), Hól, Vestmannaeyjum. Magnúsína Sæmundsdóttir (14—15 ára), Brekastíg 5 B, Vestmanna- eyjum. Brynja Sigurðardóttir (14—15 ára), Brekastíg 10, Vestmannaeyjum. Inga-Jónsdóttir (við pilt 15—18 ára), Fagurhlið, Sandgerði. Ingibjörg Einarsdóttir (15—20 ára), Kjarnholtum, Biskupstungum. Haukur Daðason (18—22 ára), Kjarnholtum, Biskupstungum, Ár- nessýslu. Ingimundur Ingimundarson (við stúlku 17—21 árs), Hrosshaga, Biskupstungum, Ámessýslu. Jóhannes Runólfsson (18—23 ára), Laugavegi 85, Reykjavík. Gunnar Jónsson (16—18 ára), Guðmundur Gislason (17—19 ára), Guðmundur Bernharð Þorláksson (16 —18 ára), Sigmundur Einarsson (15—17 ára), allir til heimilis að Reykholtsskóla, Borgarfirði. Unnur Þorleifsdóttir (16—20 ára) og Valgerður Marteinsdóttir (16—20 ára), báðar til heimilis að Hvera- bökkum, Hveragerði. Dagmar Sölvberg (14—16 ára), Halla Stefánsdóttir (16—18 ára), Gígja Vilhjálmsdóttir (18—20 ára), allar til heimilis á Hjalteyri við Eyjafjörð. Vinnie Perry (19—22 ára stúlku eða pilt), 18 School Road, Abbeý Hul- ton, Stoke-on-Trent, England. Pamela Keene (13—15 ára stúlkur), 185 Stains Road, HonsloW, Middel- sex, England. Halla Teitsdóttir (15—18 ára), Anna Kjartansdóttir (15—18 ára), Steinimn Anna Guðmundsdóttir (16 —18 ára), Guðrún Guðmundsdóttir (16—18ára), Guðrún Sveinsdóttir (16—18 ára), Vilborg Vigfúsdóttir (16—18 ára), allar til heimilis á Héraðsskólan- um á Laugarvatni, Ámessýslu. Þorgerður Vilhjálmsdóttir (26—30 ára), Marteinstungu, Holtum, Rangárvallasýslu. Guðrún Hannesdóttir (21—25 ára), Marteinstungu, Holtum, Rangár- vallasýslu. Rannveig G. Guðmundsdóttir (16— 18 ára), Austurgötu 19, Hafnar- firði. Sigriður Sigurðardóttir (16—18 ára), Hverfisgötu 25, Hafnarfirði. [ ! Tímaritið SAMTÍÐIN z \ flytur yður fjölbreytt og skemmti- \ l legt efni, sem þér fæmð annars á : mis við. Árgjald aðeins 20 kr. | Rltstjóri: Sig. Skúlason magister. 1 I Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75. i ■Vi tKMIinilMIMi ALGLVSIIMG um bólusetningu gegn barnaveiki. Bólusetning gegn barnaveiki, á vegum Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur, verður framvegis framkvæmd í læknastofum barnaskólanna í Reykjavík. Verður bólu- sett í einum barnaskóla í senn. Bólusett verða börn á aldrinum 6 mánaða til 14 ára, eftir því, sem óskað verður. Bólusett verður alla þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 3—5 síðdegis. Þeir, sem óska að fá börn bólusett verða að hringja í síma 3273, kl. 10—11 árdegis áðurnefnda daga og verður þeim þá ákveðinn bólusetningartími. Á öðrum tímum verður slíkum beiðnum ekki sinnt og önnur börn verða ekki tekin til bólusetningar, en þau sem þannig hefir verið tilkynnt um. Síðar verður jafnóðum auglýst þegar bólusetningin hefst í hinum skólunum. Héraðslæknirinn í Reykjavík, 1. apríl 1948. Magnús Pétursson ATH. Klippið auglýsinguna úr blaðinu og geymið hana. Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.