Vikan


Vikan - 10.06.1948, Side 4

Vikan - 10.06.1948, Side 4
4 VIKAN, nr. 24, 1948 HLJÖMLiSTARMAÐURINN SMÁSAGA eftir BERTEL BUDTZ MÚLLER Við eina þverána í skógarjaðrinum stóð hús hljómlistarmannsins. Hann hafði á unga aldri yfirgefið ættingja sína, er bjuggu innar í landinu. Honum geðjað- ist ekki að landbúnaði. Þótti vinnan erfið og óskemmtileg. Hann var þó duglegur, næmur og lagtækur. Hann spilaði á öll hljóðfæri. „Það verður ekkert úr honum,“ sögðu ættingjar hans. Hann ferðaðist um allt Vestur-Gautaland, er hann var ung- lingur. Hann spilaði og gerði við ýmis- konar verkfæri. Hann gat gert við klukk- ur, orgel og húsgögn og margt annað. Svo varð hann ástfanginn í stúlku einn dag í maí niður við ána, eftir dansleikinn. Hún bjó í húsi með móður sinni. Þar settist hann að. Hann lifði á því, sem hann vann sér inn á ferðalögum. Hann vat alltaf á ferð- inni. En æfinlega kom hann glaður og á- nægður heim til konu sinnar og bama. Bömin voru nú orðin sex. Hann spilaði hvem sunnudag í Götlunde-kirkju. Ættingjar hans vildu fá hann heim aftur. Þeir höfðu jörð handa honum. Hann neit- aði því. Og hann neitaði einnig tilboði ætt- ingjanna að taka tvö elztu börnin. En það vora telpur. Hann mælti: „Þær skulu ekki þræla sér út fyrir hina nízku bændur. En ég er til með að spila fyrir þetta fólk, mála hús- gögn þess o. s. frv.“ En þessu lífi fylgdu freistingar. . Það var mikið vín haft um hönd á þeim skemmtunum er hann spilaði á. En hann gætti sín á meðan konan lifði og kom ætíð heim með laun sín óskert. En er konan dó var sem eitthvað slitn- aði í honum. Einhver stífla losnaði í hug- skoti hans, og hann varð kærulausari. Hann fór að drekka meira. Bömin fóm að líða skort. Við hina auknu vínnautn missti hann einnig atvinnuna. Hann varð skjálfhentur. Svo kom hirðuleysi. Hann kom stundum ekki þó að hann væri beðinn að spila. Smámsaman fækkuðu atvinnutilboðin. Svo varð hann að fara í steinhögg. Hon- um fannst lífið hafa leikið sig hart. Hann saknaði konu sinnar. Svo gerðist hann of- drykkjumaður. Börnin földu sig oft fyrir honum er hann kom heim á kvöldin, eink- um dagana sem launin vora greidd. Hann grét og öskraði, og elztu stelpumar reyndu að eyða örvæntingu hans. Þær höfðu fyrir löngu fengið vinnu á nágrannabýli svo litlu bömin liðu ekki hungur. En suma daga þurftu þær að sækja skólann og ræsta heimilið. Eitt vor, eftir harðan vetur, er hljóm- listamaðurinn hafði að mestu eytt á flæk- ingi og í drykkjuskap, og hlustað á harðar ávítur svangra bama sinna er hann var heima, héldu bömin fund. Þau ætluðu að gera síðustu tilraunina til þess að fá föður sinn, er þeim þótti vænt um, þrátt fyrir allt, til að bæta ráð sitt. Þau mundu eftir hve góður hann var meðan móðir þeirra lifði. Þá gengu þau æfinlega södd' til svefns. Elztu börnin höfðu rifizt við hann, en það sýndist aðeins gera illt verra. Eftir rifrildiskviðurnar fór hann á flæking og svaf í hlöðum og öðram útihúsum. Þar hitti hann aðra drykkjumenn og nýtt vand- ræðatímabil hófst. Systir hans, sem bjó á Suðurlandi, hafði hitt hann og gert honum tilboð, en hann var hinn versti, og fékk hún aðeins skamm- ir. Hún kom heim til svöngu barnanna og bauð þeim, án hans vitundar, að koma til sín. Að minnsta kosti vildi hún fá þau eldri. Hún bað þau að tala um þetta við hann og fá leyfi hans til þess að þau kæmu síðar. Hún kvað hann engan föðurrétt hafa framar. En elztu stelpurnar neituðu þessu. „Hver átti að sjá um heimilið." Bömin sögðust verða kyrr og sambúðin myndi batna. Og konan fór suður hrygg í lund. Jæja bömin héldu fund, og Bengt litli, sem var aðeins 5 ára fylgdist með. Annars skyldi hann ekkert af því, sem fram fór. Hann fór að gráta er hann sá hve systkinin voru áhyggjufull og töluðu um eitthvað illt. Börnin töluðu um það hvernig þau gætu | VEIZTU —? 1. Margir vísindamenn telja að „Stone- 1 henge“ sé elzta minnismerki, sem til = sé. Enginn veit til minja um hvað, eða | af hverjum það var reist. Hvar er það ? i 2. Hvað heitir höfuðborg Colombiu? 3. Hve há er íbúatala Venezuela? 4. Hvar er þessi setning og hver sagði i hana. „Ærið fögur er mær sú, og munu f margir þess gjalda?“ f 5. Hvað merkir „in concreto“ ? í 6. Hvenær afsalaði Játvarður VIII sér | völdum í Englandi og hvað hafði hann f þá ríkt lengi? 1 7. Hvenær er Emest Bevin utanríkisráð- i herra Bretlands, fæddur? f 8. Hvenær var Hitler sýnt banatilræði á 5 flckksfundi í Miinchen ? : 9. Hver var það, sem fann upp stein- i prentunina (litografi) og hvenær var i það ? | 10. Hvar er fjallstindurinn Olympos og i hvað er hann hár? Sjá svör á bls. 14. i jiiiiimiiiiiiiimi11imi■■■ iiii• mimi■ iiiiiii■■■■ ■■ im111||l||n,lll||l bjargað föður sínum og gert heimilið vist- legt. Nú var vorið komið. Og þau fengu nýj- an þrótt, nýja von. „Við skulum gera eins og mamma gerði þegar vorið kom. Þegar ekki þurfti lengur að leggja í vélina gerði hún stofuna hreina og allt húsið. Hún stráði eini á gólfið og setti blóm á arinhilluna. Pabbi kemur sjálfsagt ekki heim fyrr en á morgun, og þá verðum við að vera búin að gera húsið fínt. Við förum ekki í skólann í dag og við förum ekki í vinnuna fyrr en búið er að ferma okkur. Svo mun pabbi sjá um heimilið og láta okkur öll vera heima. Annars verðum við að fara til föðursystur okkar, því að þann- ig getur ekki gengið að við búum við sömu hörmungar sem síðasta vetur.“ Nú tök- um við höndum saman við hreingerning- una. „Era ekki allir ásáttir um það?“ Þetta sögðu elztu stelpurnar við yngri systkinin. Og þau samþykktu þetta með ánægju. Elzta stelpan, sem var þrettán ára, og stór eftir aldri, tók að sér stjórnina. Svo var byrjað á hreingerningunni. Sú elzta tókst á hendur erfiðustu verkin. Hin næst elzta var látin þvo garmana og voru þeir fátæklegir. Þriðja systirin hjálpaði henni. Tíu ára drengurinn, drengirnir voru tveir, var sendur eftir kalki er hann gróf upp sjálfur. Hann hvíttaði arininn. Hann bar líka vatn inn og skolp út. Svo tók hann til í útigeymslunni, hreinsaði til umhverfis húsið og kalkaði stíuna sem geiturnar voru hafðar í. Þá lagaði hann handriðið og kalk- aði það. Hann kalkaði einnig rammana kringum gluggana í húsinu. Litlu systurn- ar tvær, og Bengt vora send út í skóg eftir eini. Þau komu líka með blóm og birki- greinar. Bengt litli fann vepjufjöður. Önn- ur litla systir hans batt fjöðrina á höfuð honum með linda, svo hann þóttist vera Indíáni, og var í góðu skapi allan daginn. Börnin vora hrædd um að faðir þeirra kæmi að þessu sinni of snemma heim. Nú var atvinna hans við hljómlist orðin það eitt að spila við vor- og haustskemmt- anir. Hann hafði verið að heiman í marga daga og sögur voru á kreiki um það, að hann væri á „fylliríi" í steinnámunum. Þar hafði frétzt um hann með tvær flöskur af brennivíni, og einhverjir dónar fylgdu hon- um eftir. Daginn áður hafði hann séð eitt- hvað af dætrunum, fengið þeim nokkra smápeninga og sagzt koma heim bráðlega. Börnin unnu verk sitt af miklum dugn- aði. Veðrið var gott og hlýtt og vetrar- kuldinn var að gleymast. Börnin vonuðu að verk þeirra bæri tilætlaðan árangur. Er leið að kvöldi sáu þau að verkinu yrði lok- ið á þessum degi. Um sólsetur voru sum barnanna send í njósnaferð upp i skóginn. Er þau komu aftur, sögðu þau að allir hefðu verið að ganga til náða í námu- hjöllunum. Þau höfðu rekizt á einn af félögum föður síns, kvað hann föður þeirra Framhald á bls. 14.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.