Vikan


Vikan - 06.01.1949, Blaðsíða 1

Vikan - 06.01.1949, Blaðsíða 1
Þórarinn Guðmundsson fiðluleikari Eftir Baldur Andrésson Allir þeir, sem tónlist unna í þessu landi, og þeir eru sem betur fer mjög margir, kannast við Þórarinn fiðluleikara. Nafn hans heyrist oft nefnt í útvarpinu. I öll þau ár, sem útvarpið hefur starfað, hafa tón- amir úr fiðlu hans liðið á öldum ljósvak- ans út í geiminn og inn á heimilin og flutt mönnum gleði og birtu. Ekki er samt alltaf blásið í lúðra, til að láta menn vita, að nú muni heyrast í fiðlimni hans. Dagsskrárliðimir heita þá ýmsmn nöfn- um. En ef trío, strokkvartett, kvintett eða hljómsveit útvarpsins eru að verki, þá er fiðlan hans þar, þótt ekki sé nafns hans getið. Og ef mn söng er að ræða með undirleik hljóðfæra, þá er fiðlan hans einnig þar og lætur til sín heyra. I stuttu máli, ef um hljóðfæraleik er að ræða í útvarpinu í einhverri mynd með hljóð- færaleikurum, sem em fastir starfsmenn útvarpsins, hvort heldur það er nú í sam- bandi við leikrit eða eitthvað annað, þá er fiðlan hans þar oftast nærri. En stund- um kemur hann einnig fram sem einleik- ari á fiðluna og þá er þess auðvitað sér- staklega getið. Þeir eru því margir hér á Framhald á bls. 3. Standandi, fremst á myndinni, er stjómandinn, Þórarinn Guðmundsson. — Sitjandi, fremst í hálíhring, t. v. við stjómandann: Þórir Jónsson (1. fiðla), Þorvaldur Steingrímsson (1. fiðla), Katrín Dannheim (1. fiðla), Jón Sen (1. fiðla), óskar Cortes (1. fiðla). Fyrir framan hann: Sveinn Ólafsson (viola), Ólafur Markússon (viola), Skapti Sigþórsson (2. fiðla), Indriöi Bogason (2. fiðla). — 2. röð: Þórhallur Ámason (cello), Jóhannes Eggertsson (cello). — 3. röð (standandi): Bjarni Böðvarsson (bassi); (sitjandi): Ámi Bjömsson (flauta), Andréa Kolbeinsson (oboe), Vilhjálmur Guðjónsson (klarinett), Fr. Weisshappel (piano). — Aftasta íöð: Björn R. Einarsson (básúna), Karl O. Runólfsson (trompet), Wilh. Lanzky Otto (waldhom), Eggert Gilfer (orgel), A. Klahn (pákur). Á myndina vantar Einar B. Waage (bassi). LANDSSðKASAFN ÍSLANDS

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.