Vikan


Vikan - 03.10.1991, Blaðsíða 25

Vikan - 03.10.1991, Blaðsíða 25
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: BJARGAÐI Tóta frænka í Breiðholt- inu er alveg á pinnanum þessa dagana. Þessi spákonusjúka frænka mín fór til einhverrar herfu sem sagði henni að Óli kærastinn hennar, sem er sjómaður, væri á kvennafari einhvers staðar í Afríku. Kerlingargrey- ið er gjörsamlega aftengd og úr stuði. Hún sem hélt að það væri hægt að treysta þessum gutta. Sömuleiðis sagði hún henni að ef hún hætti ekki að borða súkkulaði mætti reikna með verulegum vandræðum af vafasömum toga þegar Óli kæmi heim. Tóta skilur ekki hvað manneskjan er eiginlega að gefa í skyn því hún veit ekki betur en hún hafi grennst um heil tvö kíló af hundrað og tuttugu mögulegum á fimm árum. Kerlingargreyið er alveg í kerfi. Pabbi og mamma sitja uppi með hana hágrátandi öll kvöld. Ég sagði við hana að hún skyldi hætta þessu stressi og fara bara í eróbikk þangað til stauturinn kæmi. Hún ætti að æfa fimm kvöld í viku og um helgar líka ef hún gæti. Ganga svo eins og tuttugu kílómetra kvölds og morgna. Borða þrjá súputeninga þrisvar á dag. Fara reglulega ( gufubað alla eftirmiðdaga. Drekka fimmtán lítra af vatni á dag og gera öndunaræfingar þess á milli. Ef þetta myndi ekki bræða af henni eins og þrjátíu kíló I hvelli skyldi hún skella sér I fótbolta og mætti þá alveg eiga gömlu íþróttaskóna mína ef hún fílaði það betur. Frænka fór að ráðum mínum og lenti á spítala. Pabbi og mamma eru rosa fúl út í mig og létu mig gefa sér stíft loforð um að ráðleggja hvorki vinum né vandamönnum neitt í fram- tíðinni. Ég verð bara að segja eins og er að ég veit ekki betur en manneskjan hafi komist yfir allt prókramið og það stóð hvergi á listanum að hún ætti að missa meövitund og leggj- ast inn á spítala. Það ráð fann hún út sjálf. Manneskjan er svo rosalega stjórnsöm og ráðrík. Jóa vinkona segir að ég sé ofboðslega ráðagóð. Halli bróðir hennar hefur ekkert kíkt á skráargatið síðan ég sagði henni að setja puntstrá í gegn- um það i hvert skipti sem hún héldi að þessi dóni væri að kíkja. Stelpugreyið var á góðri leið með að flytja að heiman vegna þess að hann gaf öllu hverfinu skýrslu frá degi til dags um hvað brjóstin á henni væru stór. Sagði kannski: „Spjótin á henni Jóu hafa stækkað um tvo sentimetra f dag, þó mest eftir hádegi." Gatan var bara komin í biðröð við skráargatið þegar ég fattaði þetta með stráið. Það má segja að ég hafi bjargað geðheilsu hennar og kærastanum líka, pælið í því. Kalli, strákurinn sem hún var með, hélt hún væri kynóð þeg- ar hann fór að heyra sögurnar. Mér finnst ekki rétt að hætta að gefa ráð því ég er greini- lega með allt á hreinu. Von- andi verð ég uppgötvuð fljót- lega. Ég er meiri háttar, það er á tæru. □ HUGARÓRAR HALLGERÐAR AFMÆLISTILBOÐ: Andlitsbað, handsnyrting og fótsnyrting. Aðeins kr. 4.500,- Bjóðum frábæra jurtakúra fyrir bóluhúð, eldri húð og háræðaslit. Einnig Depigel eftir vax, lýsir hár og dregur úr hárvexti. SNYRTISTOFA ÁRBÆJAR SÍMI 63 93 10 Restaurant /s/enskir sjéverréttir kjöt- og postoréttir pizzur ogr ex/oressokctffi © 13340 HARVANDAMAL? Lausnin er: Enzymnl JSÍýtt í Evrópu EURO-HAIR á íslandi iEngin hárígræðsla lEngin gerfihár lEngin lyfjameðferð lEinungis tímabundin notkun Eigið hár med hjálp lífefna-orku EURO-HAIR /?\01.C7WJ| P:0:Box 188 • 121 Rvík .kl.16.00 HÁRSNYRTISTOFAN R! GRANDAVEGI47 0 626162 Hársnyrting fyrir dömur og herra OPIÐ A LAUQARDÖGUM SÉRSTAKT VEKÐ PYRIR ELLILlFEYRISÞEQA Hrafnhildur Konráðsdóttir hárgreiðslumeistari Helena tlólm hárgreiðslumeistari Ásgerður Felixdóttir hárgreiðslunemi RA/CARA- & HÁR(jRE/ÐSLO(SWFA HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVÍK 20. TBL1991 VIKAN 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.