Vikan - 03.10.1991, Blaðsíða 65
sökuö er um aö hafa myrt eig-
inmann sinn.
Hinn skotheldi leikari Nick
Nolte leikur í myndinni The
Price of Tides. Leikur hann
bitran mann sem á systur sem
í tvígang hefur reynt að fremja
sjálfsmorð. Bróðirinn afræður
að aðstoða sálfræðing, sem
hefur systur hans til meðferð-
ar, með því að rifja upp
bernskuárin. Auk þess leika í
myndinni Barbra Streisand
(Yentl, Nuts) og Blythe Dann-
er (Alice).
Nýstirnið Adrienne Shelly.
Fögur, saklaus og efnileg.
Zalman King er ófeiminn aö
gera fagrar myndir.
Nýstirnið Adrienne Shelly
hefur nú gert það gott vestan-
hafs. Hún hefur leikið í þremur
myndum, hvorki meira né
minna. Þetta eru myndirnar
The Unbelievable Truth,
Trust og Stepkids. Trust
greinir frá ungri menntaskóla-
stúlku sem hættir námi. Hún
tekur síöan saman við amer-
íska fótboltahetju sem yfirgef-
ur hana eftir að hún reynist
vera ófrísk. Þunguð og yfirgef-
in ákveður hún þó að gefast
ekki upp á lífinu, stendur sig
eins og hetja og hefur þrosk-
ast svo um munar.
í Stepkids leikur hún líka
unga konu sem er barnshaf-
andi. Hún eignast tvíbura og
giftist mun eldri manni sem á
börn frá fyrra hjónabandi.
Börnin geta þó ekki sætt sig
við þessa nýju ungu mömmu.
Leikkona þessi þykir sviplík
leikkonunum Rosanna Arqu-
ette (Flight of the Intruder) og
Rebecca De Mornay (Back-
draft).
Leikkonan Penelope Ann
Miller (Freshman, Kindergart-
en Cop) leikur nú í mynd sem
er undir leikstjórn hins virta
Normans Jewison. Myndin
heitir Other Peoples Money.
Þar leikur Penelope farsælan
lögfræðing sem lendir heldur
betur í klípu. Mótleikarar
hennar eru ekki af verra tag-
inu, leikarar á borð við Danny
DeVito og Gregory Peck.
Hin unaðslega Greta
Scacchi (Presumed Innocent,
Fires Within) leikur nú í mynd-
inni A Man in Love. Þar leikur
hún á móti Peter Coyote.
Greta leikur fágaða og kynæs-
andi konu frá Evrópu sem stel-
ur hjarta ríks Ameríkana.
Hver man ekki eftir myndun-
um 9Va Weeks og Wild
Orchid? Maðurinn sem stóð
að þessum léttbláu listamynd-
um heitir Zalman King. Hann
stóð líka að myndinni Two
Moon Junction sem sýnd var
hér fyrir tveimur árum eða svo.
Nú hefur Zalman King gert
nýja léttbláa mynd sem hlotið
hefur titilinn Blue Movie Blue
og fjallar um stúlku sem tekin
er í fóstur. Þegar stúlka þessi
er orðin fulltíða ákveður hún
að gerast gleðikona. Hún vinn-
ur síðan í glæsilegu pútna-
húsi. En þrátt fyrir frjálsar ástir
gegn greiðslu verður unga
gleðikonan raunverulega ást-
fangin. Hún segir síðan skilið
við pútnahúsið og ákveður að
ganga menntaveginn.
Sá næstum því níræði Sir
John Gielgud (Chariots of
Fire) leikur nú í nýjustu mynd
hins umdeilda breska leik-
stjóra Peter Greenway (The
Cook, The Thief, His Wife &
Her Lover). Mynd þessi heitir
Prosperos Books og er ein-
hvers konar sérútgáfa Green-
ways af hinu sígilda verki Will-
iams Shakespeare, The
Tempest.
Martin Scorsese og uppáhalds-
leikari hans við tökur á Cape
Fear.
Við skulum enda pistil þenn-
an á nýjasta meistaraverki
Martins Scorsese (GoodFell-
as). Nýjasta myndin úr smiðju
hans heitir Cape Fear og er
endurgerð. Frummyndin var
gerð árið 1962 og var með
Gregory Peck og Robert
Mitchum í aðalhlutverkum. í
útgáfu Scorseses leikur öflugt
leikaralið á borð við Robert
DeNiro, Nick Nolte og Jess-
icu Lange. Hvílíkt einvalalið!
Söguþráðurinn er á þá leið að
Nick Nolte, sem leikur lög-
fræðing, hefur komið morð-
ingja, sem leikinn er af Robert
DeNiro, bak við lás og slá.
Jessica Lange leikur eigin-
konu Nicks Nolte. Robert
DeNiro leikur moröingjann
frábærlega vel. Hann leggur á
ráðin öll árin sem hann situr
inni. Um leið og hann sleppur
úr prísundinni leggur hann til
atlögu við hjónakornin. Hann
ætlar ekki að sýna neina
miskunn. Nú er kominn tími til
aö hefna sín grimmilega.
Mynd þessi verður sýnd í
Laugarásbíói eftir nokkra
mánuði.
SENDUM FRÍTT HEIM
ALLA DAGA VIKUNNAR
Heimsending
Frá sunnudegi til fimmtudags
11.00 til 23.30
föstudaga og laugardaga
frá 11.00 til 06.00
Pöntunarsími 679333
20. TBL. 1991 VIKAN 65