Alþýðublaðið - 07.03.1923, Síða 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
4
feðra votra í meðferð á öllum
skepnum| og gera koinandi kyn-
slóðir miskunnarríkari í þeirra
garð. — Og við íslendingar höfum
í þessum efnum fyrir mar'gar og
miklar syndir bætur að gera; því
meðferð manna á skepnum heflr
oft verið slæm, lakari og ljótari
en samboðið er siðuðum möunum.
Margt. heflr á síðari tímum
breyzt til batnaðar hjá þjóðinni í
hugsunarhætti og venjum; með-
ferð á skepnum heflr iíka víða
bitnað hér á landi. — En það
læðast samt enn víða um hér á
iandi ljótir og dimmir skuggar í
þessu efni, Þeim skuggum vili
Dýiaverndunarfélagið útrýma, heizt
um land alt. Takmark þess er,
að gera mennina vitrari og betri.
Dýraverndunarfélagið er því sið-
menningarfélag, án alls efa eitt
helzta siðmenniDgarfélag þjóðar-
innar. Satt er það, að íélagið er '
lítið og helzt, til fáment, en þeir,
sem á annað borð trúa á þroska
og sigur hins góða,. þeir verða að
játa, að þótt iélagið sé enn lítið, .
þá heflr það vaxtarmagn í sér
fÓlgiðl — Það er gott og gamait
oið: „Yerið miskunnsamir, eins
og faðir yðar á himnum er mis-
kunnsamur." Fyrir þennan fagnað-
arboðskap skammast Dýravernd-
unarfélagið sín ekki, og undir þessu
merki vonar það að sigra.
En — „féð er afl þeirra hluta,
sem gera skal“; svo er hjá Dýra- :
verndunarfélaginu líka. — En —
félagið vantar fé, en þarf á fé að
halda. Fað verður að hafa og heflr
margan kostnað; það heldur úti
blaði; það heldur uppi gistingai stað
og það gerir margt, sem fé þarf
til, en oflangt er hér upp að telja.
Nú ætlar ucgt fólk í félaginu að
koma á fót tombólu til fjárauka
fyrir framkvæmdir sínar. — Og
það heitir á alia góða menn að
bregðast nú vel við og styðja
gaðan %málstað.
Eeykvíkingar eru bóngóðir menn,
þegar þeir sjá, að málstaðurinn er
góðui' eða þörf rekur á eftir; svo
vonutn vér líka, að enn muni verða.
Vér biðjum um nokkra aura í
guðskistu góðs málefnis; vér biðj-
um fyrir mállausar skepnuinar;
þær geta það ekki sjálfar. Öllu er
tekið með þökkum, þótt lítið kunni
að vera hjá hverjum einstökum.
„Safnast, þegar saman koma, sop-
arnir þínir; Ólöf mín“; svo segit'
K a r t ö f I u r.
Johs. Hansens Enke.
þjóðtrúin að huldukonan hafl sagt
við góðu konuDa, sem af litlum
efnum, en góðum hug, miðlaði
henni og börnum hennar eiDum
nýmjólkuisopa á hverju máli.
Góðir menn! Látið þá, sem
biðja fyrir Dýraverndunarfélagið
eða öllu heldur fyrir mállausar
skepnurnar, ekki fara bónleiða tii
búðar.
Skyldi það ekki geta átt sór
stað enn, að guð borgi fyrir hrafn-
inn?
Evik, 4. marz 1923.
Ólafur Ólafsson
fríkirkjuprestur.
Enn eiga nokkuð margir menn
eftir að inna af hendi lofuð dags-
verk, pg enn er mikið effcir af því
verki, sem nauðsynlega þarf að
ljúka fyrir sumarið: að ryðja hús-
grunninn.
Látið ekki dragast lengur að
vinna dagsverkin!
Látlð' ekki verkið stöðvasfc fyir
en þessu fyrsta takmarki er náð!
Komið slrax á morgun, þið,
sem enn eruð eftir!
„Tarzan snýr aftur“
komin út.
Feir, sem hafa pantað bókina, vitji
hennar í dag og framvegis á af-
greiðsluna; sömu'.eiðis þeir aðrir,
sem vilja eignast bókina. ftjótir nú!
HHHHH@HHHHH
Úra- og klukku-viðgerðir lækk-
aðar að mun hjá Daníel & IÞorkel
Laugaveg 55.
Alþýðu flokks menn I
Enn þá eru margir steinar eftir
og margar klappir ósprengdar í
Al þýðuhúss-grunninum.
Fleiri komast að.
Hafið grunninn til búinn f vor.
Tiiboð óskast í að byggja hús.
Uppl. gefur Þorleifur Andrésson
Vitastíg 9, — Tilboðin séu send
fyrir þann 11. þ. m.
Litið hús til sölu ásamt bygg-
ingárlóð, iaust til íbúðar 14. maí.
Uppl. á Nönnug. 5 B ki. 5 — 6 síðd.
Undirritaður innkallar skuldir,
skrifar stefnur og samninga, af-
ritar skjöl o. fl. Pétur Jakobsson
Nönnugötu 5 B.
Sjómannamadressur á 6 krónur
altaf fyrirliggjandi áFreyjug. 8 B.
Muniö,
að Mjólkurféiag Reykjavlkur sendir
yður daglega heim mjólk, rjóma
og skyr, yður að kostnaðarlausu.
Pantið í síma 517 eða 1387.
Iíaupendur Alþýöublaðsins eru
ámintir um að gera afgreiðslunni
aðvart, ef vanskil verða á útburði
blaðsins. — Afgreiðslumaður.
Alþýðuflokksmenn! Látið að
öðru jöfnu þá sitja fyrir viðskift-
um ykkar, sem auglýsa í ykkar
eigin blaði!
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hallbjörn Halldórsson.
Prentsmiðja Hallgríms Benediktssonar, Bergstaðastrseti 19.
1