Vikan


Vikan - 21.04.1993, Blaðsíða 31

Vikan - 21.04.1993, Blaðsíða 31
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: einlægar tilfinningar sínar til kærustu sinnar sem virðist fljótt á litiö alls ekki sjá neitt athugavert viö hegðun sína aö þessu varhugaveröa leyti, þrátt fyrir réttmætar aöfinnslur hans, FREKJULEGAR KYNLÍFS- KRÖFUR OG NÁTTÚRULEYSI Hann reynir augljóslega of mikið aö þóknast henni á þessu sviöi og þaö er ekki gott. Ef kynlíf Óöins á að byggjast upp á ótta, getur hann gleymt því. Það er ekki hægt aö haga svona nánum samskiptum þannig aö annar aöilinn eigi stööugt von á svikum ef hann get- ur ekki aö öllu leyti fullnægt kröfum hins aöilans um kynlífsleiki án ótta. Þá er eitthvað mikiö aö í sambúðinni. Ef svo kynni aö fara aö hann fullnægði ekki kröfum kærustu sinnar er alveg eins gott fyrir hann að íhuga alvarlega hvort þannig ásakanir frá kærustunnar hendi séu ekki fremur ósanngjarnar og óréttmætar og geti á endanum neytt Óöin til sambúðarrofs ef hún nær ekki aö skilja hans sjónarmiö líka. Svona kröfur koma nefnilega náttúruleysi sjaldan viö enda fyrst og fremst frekju- legar kynlífskröfur en alls ekki vís- bending um kyndeyfð þess sem fyrir þeim veröur. HVER Á BARNIÐ? Hvaö varðar barniö, sem hún gengur meö, má segja sem svo aö alla jafna geti verið erfitt aö sanna meö óyggj- andi hætti hver sé faðir barns sem kemur undir þar sem framhjáhald hef- ur viðgengist um lengri eöa skemmri tíma. Eölilega hvarfla alls kyns efa- semdir aö Óöni um faðerni væntan- legs frumburðar hans og kærustunnar hans. Meö nútíma tækjum má þó sennilega eftir fæöingu þess fara nærri um hvort Óðinn er faðir barnsins eöa ekki. Þaö er óskemmtileg aðgerð en getur því miöur reynst réttlætanleg í einstaka tilviki. TORTRYGGNI OG EFASEMDIR Meö tilliti til þessara efasemda Óöins er hugsanlegt aö á milli hans og kærustunnar myndist einhvers konar taugaspenna þar sem hún kunni að hans mati aö leyna hann því hver raunverulega er faðir barnsins ef út f það er fariö. Brot hennar á trúnaöi viö hann eru þess eðlis aö jafnvel þótt óyggjandi reyndist aö hann væri faðir barnsins er heldur ósennilegt aö grói um heilt á milli þeirra eftir alla brestina sem hún hefur meövitaö skaþað í sambandinu meö tryggöasvikum sín- um í sambúöinni. Ástand þaö sem Óö- inn er aö kljást viö heima fyrir er þess eðlis aö full ástæða er til aö hvetja hann til aö leita sér stuönings sér- fróöra I þvi hvernig nákvæmlega væri eölilegast og heppilegast fyrir hann aö vinna úr vanda þeim sem sambúöin viö konuna hefur skapaö honum. Tor- tryggni hans er skiljanleg en getur reynst varhugaverö fyrir sambandiö. ÓTÆPILEG BRÓKARSÓTT Hann telur hana meö brókarsótt. Slíkt atferli er stundum kallaöaö ósæmileg vergirni og fellur náttúrlega undir hvers kyns lauslæti. Vitanlega má vera aö kærastan eigi viö ákveöin siöferöisleg eöa efnafræðileg vandamál aö stríöa, nema hvort tveggja sé, þegar kemur aö þeirri breytni sem tengist kynlífs- hegðun hennar. Þaö er galli, aö minnsta kosti fyrir þann sem elskar hana og hefur treyst henni í blindni, eins og Óöinn hefur gert, sjálfum sér til stórskaöa sálar- og tilfinningalega séö. Vissulega eru ástæöur fyrir vergirni. Erfitt er að segja nákvæmlega til um hverjar þær eru enda ýmsar hugmynd- ir í gangi. SAFARÍK MELÓNA EÐA UPPÞORNUD SVESKJA? Öllum sem tengst hafa vergjörnum einstaklingum ber saman um að úti- lokað sé aö treysta viðkomandi eftir sí- endurtekin brot. Þaö er einfaldlega vegna þess að þessum ólánsömu ein- staklingum hefur gengiö mjög bögu- lega aö breyta þessari hegöun sinni eöa fíkn - þrátt fyrir gefin loforö kannski. Brókarsótt er aflögun sem erfitt er aö uppræta nema meö hjálp sérfræðinga. Til glöggvunar má geta þess aö sumir segja galvaskir aö ver- girni sé ekki endilega sálarlegt fyrir- bæri heldur og kannski ekkert síður líkamlegt, það er aö segja aö móðurlíf kvenna sé svo margslungið og mis- mergja aö ótrúlegt sé. Þaö geti til dæmis veriö eins og vel þroskuö og safarík melóna eöa eins og uppþornuö og óáhugaverö sveskja og allt þar á milli. Slíkur mismunur hlýtur aö geta skipt sköpum um áhuga kvenna á kyn- lífi. Ekki er ósennilegt aö álykta sem svo, þó ekki sé þaö beint vísindaleg úttekt, að þær melónukenndari og safaríkari geti af líkamlegum ástæðum einfaldlega reynst mun kappsamari kynverur en þær uppþornuðu og sveskjukenndari. ÞRÆTIR FYRIR ALLT Óöinn bendir sjálfur á aö þegar hann beri henni á brýn ótrúmennsku þræti hún fyrir allt saman, alveg sama þó hann hafi kannski staöið hana aö verki. Hvernig i ósköpunum á að bregðast viö þannig afstööu sem vissulega viröist bæöi ófyrirleitin og ómannúðleg? Erfitt er aö segja til um hvaö veldur nákvæmlega þannig skorti á aö kunna aö skammast sín og iörast eöa átta sig á staðreyndum.Um bilun er ekki aö ræða, fremur ófágaöa og ófullkomna siöferöiskennd. Hugs- anlega má kalla þetta atferli siöblindu. SJÁLFSVIRDINGARSKORTUR Auövitaö má ætla, eins og Óöinn bendir á, aö konan beri enga virðingu fyrir honum vegna þess hvernig hún hegöar sér. Hún hreinlega ofbýöur honum tilfinningalega sem andlega. Aftur á móti, þegar dýpra er skoöað, þá fullyröi ég aö hún beri ekki viröingu fyrir eigin persónu og einmitt þess vegna hegöi hún sér óviðkunnanlega og bjóöi Óðni upp á aö taka þátt í því sem er óréttlætanlegt af þvi að hann elskar hana. Eöa eins og heiðarlegi strákurinn sagði eitt sinn hryggur. „Elskurnar mínar. Þaö veit Guö aö ég elska kærustuna mfna. Samt varö ég aö höggva á samband okk- ar. Mér féll ekki aö deila henni meö öörum, andlega sem líkamlega. Viö erum farin sitt f hvora áttina og mér líöur núna eins og ég sé einhvers megnugur en áöur leiö mér ekki þannig." Vonandi gengur Óöni vel aö vinna úr sínum viðkvæmu málum. Með vinsemd, Jóna Rúna VELKOMINÁ SNYRTISTOFU ÁRBÆJAR ROFABÆ 39 - SIMI 68 - 93 - 10 ► ANDLITSBÖÐ ► HÚÐHREINSUN ► LITUN ► PLOKKUN ► VAX-MEÐFERÐ ► FÓTSNYRTING ► FÖRÐUN HULDA SÉRMEÐFERÐ: JURTAMASKI: f. bóluhúS, f. hóræSaslit, f. eldri húS. HITAMASKI: f. þurra húS, f. óhreina húó, f. vannærða húð. AUGNMASKI: f. poka og hrukkur. SILKINEGLUR • TRIM FORM • GERUM GÖT í EYRU HflRGREIÐSLUSTOFR HQLLU MRGHUSDOTTUR MIDIHTI7 - SÍMIB8S5B2 NYJA N, FATAHREINSUNIN REVKJAVÍKURVEGI 64 • HAFNARFIROI • Sl'MI 662620 ■ HEIMASÍMI 62030 Hreinsum allan venjulegan fatnað með bestu vélum sem fáanlegar eru í dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl. HÁRSNYRTISTOFAN GRANDAVEGI 47 Cp 62 61 62 mARA- & HÁRqRE/ÐSMSTDFA HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVlK 8.TBL. 1993 VIKAN 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.