Vikan - 21.04.1993, Blaðsíða 38
TEXTIOG UÓSM.: JÓHANN GUÐNIREYNISSON
María Rún Hafliöadóttir var krýnd í beinni
útsendingu á Stöö 2 í fyrra. Hver veröur
krýnd í beinni þetta áriö?
Vikan kynnist undirbúningi að beinni útsendingu:
Egill Eövarösson sér um dagskrárgerö Stöövar 2 um feguröarsamkeppni
íslands. Hann mun einnig stjórna beinni útsendingu frá krýningarkvöldinu.
Sigursteinn Másson er kynnir feguröar-
samkeppni íslands sem og í kynningar-
þáttum um fegurðardísirnar sem sýndir
veröa á Stöö 2.
Nú líður að fegurðar-
samkeppni íslands og
eitt af þeim lóðum
sem þar vega þungt á vogar-
skálum er útsending Stöðvar
2, hvort tveggja á kynningar-
þáttum um keppendur sem og
frá krýningu. Vikan vippaði sér
inn á fund með Agli Eðvarðs-
syni, stjórnanda þáttagerðar
og útsendingar, og Sigursteini
Mássyni, kynni keppninnar.
Og einnig stungu sér inn á
þennan fund alls kyns tækni-
menn sem koma við sögu.
Þeir eru að tala um það
hvernig svona lagað er í laginu
og þá erum við ekki að tala um
keppendur í samkeppninni
heldur útsendinguna og allt fyr-
irkomulag í dagskrárgerðinni.
Egill segist enga reynslu hafa
af fegurðarsamkeppni en af ör-
yggi bætir hann við að 22 ára
reynsla af dagskrárgerð ætti að
reynast honum notadrjúg. „Ég
hef ekki nokkrar áhyggjur af
þessu,“ segir hann.
GLERHÖRÐ
RAUÐSOKKA
Dagskránni verður þannig
háttað að áður en útsending
hefst frá krýningu fegurstu
konu íslands verður sýndur
50 mínútna þáttur þar sem
stúlkurnar verða kynntar. Og
nú skal breyta yfirbragðinu,
síðast teknar myndir af þeim
dúðuðum í trefla og kápur úti í
náttúrunni. „Þá förum við inn í
tómt verksmiðjuhúsnæði
núna," segir Egill þegar þetta
kemur upp á fundinum. En
hann tekur fram að allt sé
þetta á vinnslustigi og geti fyr-
irvaralaust tekið einhverjum
breytingum.
„Við ætlum að brydda upp
á nýjungum. Þetta er árlegur
viðburður sem margir fylgjast
með, mun fleiri en þora síðan
að viðurkenna það,“ segir Eg-
ill sposkur við fundarborðið og
Sigursteinn tekur i sama
streng, segir hins vegar við-
horf fólks gagnvart fegurðar-
samkeppnum hafa tekið
stakkaskiptum. Hann tekur
dæmisögu af konu sem hann
hitti á ísafirði fyrir nokkru. Sú
hefur hingað til verið talin
glerhörð rauðsokka sem nú er
farin að telja slíkar keppnir
eiga fyllilega rétt á sér. Fólk er
líka farið að gera sér grein fyr-
ir þróuninni sem átt hefur sér
stað á undanförnum árum,
þeirri að íslenskar stúlkur hafa
í auknum mæli farið til starfa
á erlendum grundum sem fyr-
irsætur.
UNDRAVERÐAR
BREYTINGAR
Sigursteinn segist hafa séð
undraverðar breytingar á
stúlkum sem taka þátt í svona
samkeppnum. „Ég hef séð
ungar stúlkur sem eru eins og
litlir, hræddir ungar sem dottið
hafa úr hreiðrinu þegar þær
koma í þjálfun fyrir fegurðar-
samkeppni. Eftir strangan
undirbúning ganga þær um
eins og veraldarvanar konur,
teinróttar og sjálfsöruggar.
Þannig finnst mér þetta gera
þessum stúlkum ekkert nema
gott eitt.“
Sigursteinn er kynnir á úr-
slitakvöldinu og sú spurning
kemur upp hvernig hann und-
irbúi sig fyrir það verkefni. „Ég
legg mig fram um að kynnast
stúlkunum hverri og einni fyrir
sig. Á þann hátt finn ég að
þeim líður mun betur á svið-
inu þegar til kemur. Það er
nefnilega mun betra að
þekkja þar einhvern í stað
þess að standa eins og yfir-
gefin í ljóshafinu,“ segir Sigur-
steinn og talar af reynslu. Síð-
astliðið ár var hann til að
mynda kynnir á fegurðarsam-
keppni íslands. „Það að
þekkja stúlkurnar til dæmis
með nafni getur líka komið í
veg fyrir að mistök eigi sér
stað, hvort sem er á úrslita-
kvöldinu eða í kynningarþátt-
unum,“ bætir hann við.
SENT UM BÍL
Að mörgu er að hyggja þegar
þáttagerð sem þessi er ann-
ars vegar, svo ekki sé talað
um beinar útsendingar. Þætt-
irnir eru skipulagðir gróflega
þarna við fundarborðið og
verða til í höfði Egils dag-
skrárgerðarmanns eftir því
sem hugmyndum er varpað
fram. Þær blandast hans eigin
hugmyndum og úrvinnsluna
fáum við að sjá þann 30. aprfl
þegar keppnin fer fram. Við
beinu útsendinguna koma um
tuttugu manns. Þar verða að
öllum líkindum notuð fimm
stykki af þvf sem fagmennirnir
kalla kamerur en við hin sjón-
varpsmyndavélar. Og allt fer
þetta út í loftið í gegnum
Samversvagninn svokallaða,
útsendingarbíl sem Stöð 2
hefur til umráða.
Hvert yfirbragðið verður að
lokum hjá þeim Agli, Sigur-
steini og félögum á Stöð 2
kemur í Ijós en víst er að það
verður með öðru sniði en
hingað til. Þegar Vikupiltur
laumast út af fundinum
standa yfir umræður um tón-
listina, klippivinnuna, töku-
staði, yfirbragð og hvað þetta
nú heitir allt saman en vita-
skuld nota þeir ekki þessi orð.
Þeir nota treilera, eidíjóa,
dubbera og ég veit ekki hvað
og hvað. Og hvað sem verð-
ur, góða skemmtun. □
38 VIKAN 8. TBL. 1993